Eins og nafnið gefur til kynna þá langar mig að sjá hvort að það lummi einhver á flottum 18 eða 19" felgum undir bílinn hjá mér sem er e90 bíll. Þá annaðhvort til sölu eða þá skipta á 18" original m3 felgum sem eru á nýjum afturdekkjum og lala framdekkjum. Er samt frekar að leita eftir skiptum þar sem ég hef ekkert alltof mikinn pening á milli handanna eins og er. Svo gæti líka verið að mínar felgur séu til sölu ef ég fæ gott boð í þær
