Page 1 of 1

Bílaklúbb Ak. vantar 14" felgur undir BMW rallycrossbíl...

PostPosted: Fri 17. Dec 2010 09:37
by Þórður Helgason
Sæl, spyrnudeild Bílaklúbbs Ak. eignaðist um daginn BMW E36 rallycrossbíl, og
þar sem í bígerð er að fá undir hann ísdekk, verulega negld, vantar okkur 4 stk venjulegar 14"
felgur undir hann. Stál er alveg nóg.
(Nema 14" sé of lítið, veit einhver það)

Á ekki einhver svona felgur sem hann notar ekki, og vill láta fyrir ekkert, nema nafn sitt á lista yfir styrktaraðila bílsins? Og etv. nokkra hringi á honum, ef vel tekst til.

Ætlunin er að nota bílinn í ýmisskonar sýningar/kynningar og prufu skyni fyrir deildina, og það akstursíþróttasvæði
sem er í byggingu hjá okkur.

Hann var sprautaður um daginn í litum Flytjanda, sem verður líkleg aðalsponsor á bílnum.

kv Þórður

Sjá hérna:

http://spjall.ba.is/index.php?topic=1725.0

Re: Bílaklúbb Ak. vantar 14" felgur undir BMW rallycrossbíl.

PostPosted: Fri 17. Dec 2010 10:49
by Axel Jóhann
Ef ég man rétt held ég að 15" sé lágmark að framan allavega.

Re: Bílaklúbb Ak. vantar 14" felgur undir BMW rallycrossbíl.

PostPosted: Tue 28. Dec 2010 17:13
by 300+
Sorry OT en það er bara fyndið að sjá strákana þrjá inni í sprautuklefa að mála bíl, og enginn með grímu :drunk:

Re: Bílaklúbb Ak. vantar 14" felgur undir BMW rallycrossbíl.

PostPosted: Thu 30. Dec 2010 12:35
by JonHrafn
300+ wrote:Sorry OT en það er bara fyndið að sjá strákana þrjá inni í sprautuklefa að mála bíl, og enginn með grímu :drunk:


Var einmitt að pæla í því sama, hressandi að fá blöðrur í lungun og svona.