Óska eftir 17" álfelgum undir E46
Jáh, málið er einfalt. Ég er með 99´árg. af 318i E46 BMW og mig langar að lífga aðeins upp á sportútlitið á honum með því að skella undir hann 17" felgum. Það er aðeins eitt skilyrði og það felst í því að sæmilega nýtileg dekk verða að fylgja felgunum. Ég vil alls ekki fá sundurstrigaða spólslikka. Annars þá er ég opinn fyrir ýmsu og koma jafnvel 18" felgur til greina. Bara endilega hafið samband og bjallið í mig ef þið hafið áhuga á að selja felgur á bilinu 40 - 80 þús.