Page 1 of 1
Vantar ráð varðandi vetrardekk

Posted:
Sat 26. Jan 2008 01:25
by e_b
Góða kvöldið,
Vantar vetrardekk undir 335i coupe með Star-spoke Style 189 felgum (kóði: 2C6). Stærðin á felgunum er 18" og 8J (framdekk) og 8.5J (afturdekk).
Hvaða stærð er best að setja á þetta? Var með Michelin Pilot Alpin undir gamla bílnum mínum og fannst þau virka mjög vel.
Orginal dekkin eru 225/40 R18 og 255/35R18.
Kv.
Eggert

Posted:
Sat 26. Jan 2008 01:41
by e_b
Gæti maður sloppið með 235/40, allan hringinn?

Posted:
Sat 26. Jan 2008 02:07
by e_b
Svo á ég líka til vetrarfelgurnar sem ég notaði á E39 M5 bílnum mínum. Felgurnar eru 17" og dekkin eru 235/45. Man nú ekki alveg heitið á felgunum, en þetta voru orginal M5 vetrarfelgur (minnir að bimmer sé með eins felgur undir sínum).
Spurning hvort þetta myndi ganga á E92 335 coupe?
Kv.
Eggert

Posted:
Sat 26. Jan 2008 08:34
by Logi
235 sleppur alveg allan hringinn á 8 og 8,5" felgur, bara spurn. með hæðina á dekkjunum...

Posted:
Mon 28. Jan 2008 14:10
by JonHrafn
er með 225 allan hringin á sömu breidd af felgum ,reyndar 17", afturdekkin eru vel stretched

Posted:
Mon 28. Jan 2008 15:06
by Angelic0-
Persónulega væri ég að runna 225 & 245 á þessu....
en ég held að 235 sleppi alveg allan hringinn...

Posted:
Mon 28. Jan 2008 21:03
by e_b
Grunaði nefnilega að 225 á afturfelgurnar yrði of mikið stretched.

Posted:
Mon 28. Jan 2008 21:09
by bjahja
225 á 8,5 er ekkert mál samt

Posted:
Mon 28. Jan 2008 21:10
by ///M
rönnaði fart ekki 225 hringinn á mroadsternum? 9.5" að aftan þar
Re: Vantar ráð varðandi vetrardekk

Posted:
Mon 28. Jan 2008 21:38
by KFC
e_b wrote:Góða kvöldið,
Vantar vetrardekk undir 335i coupe með Star-spoke Style 189 felgum (kóði: 2C6). Stærðin á felgunum er 18" og 8J (framdekk) og 8.5J (afturdekk).
Hvaða stærð er best að setja á þetta? Var með Michelin Pilot Alpin undir gamla bílnum mínum og fannst þau virka mjög vel.
Orginal dekkin eru 225/40 R18 og 255/35R18.
Kv.
Eggert
Ég er með E92 325 Coupe á sömuflegum og þú ert með og ég fékk mér Bridgestone Blizzak LM-25, 235/40 R18 að framan og 265/35 R18 af aftan. Þessi dekk eru að virka mjög vel hjá mér.

Posted:
Mon 28. Jan 2008 22:44
by JonHrafn
e_b wrote:Grunaði nefnilega að 225 á afturfelgurnar yrði of mikið stretched.
Virkar alveg en er ekkert augnayndi :þ

Posted:
Wed 30. Jan 2008 18:53
by e_b
KFC, mætti ég forvitnast um hvar þú keyptir dekkin, og hve mikið þau kostuðu?
Og af hverju tókstu stærri dekk on orginal?
Kv.
Eggert

Posted:
Thu 31. Jan 2008 01:03
by KFC
Fékk þau í gengnum vinnuna, á mjög góðu verði, má því miður ekki gefa það upp, en annars er Betra Grip
http://www.betragrip.is umboðsaðili fyrir Bridgestone.
Ástæðan fyrir því að ég tók stærra en að rétta stærðin var búinn.
Svo er líka hægt að panta þau frá usa
http://www.tirerack.com/

Posted:
Thu 31. Jan 2008 13:00
by e_b
Hvaða reynslu hafa menn af Dunlop SP Winter Sport 3D?
Kv.
Eggert