Page 1 of 1

18" Excel E-2 umvafðar Toyo gúmmíleðri **SELT**

PostPosted: Mon 26. Mar 2007 21:16
by ömmudriver
Þá er komið að því að ath. markaðinn.

Í boði eru fjórar 18" Excel E-2(8.5") felgur ásamt fimm Toyo T1-S dekkjum(245/40ZR18) og af þeim eru fjögur á felgunum en eitt dekkið er ónotað. Ég keyrði um á þessu í ca. fjóra mánuði á sjöuni minni og er því nóg eftir af munstrinu í dekkjunum. Það eina sem sér á þessum blessuðu felgum eru rispur í boltagötunum eftir felgukross. Með felgunum geta fylgt annað hvort fimm læstir boltar ásamt topp frá Bavarian Autosport sem enn eru í kassanum, ónotaðir, eða tuttugu læstir króm boltar ásamt topp sem fylgdu með felgunum.

Ég þarf að nota miðjuhringi til þess að setja þetta undir sjöuna, þannig að möguleiki er fyrir því að þær passi á nýrri BMW. Ég skal reyna ath. sem fyrst stærðina á gatinu í felgunum.

Hérna er svo mynd af samskonar felgu en ég skal reyna að redda myndum af öllum felgunum sem fyrst.

Image

Endilega skjóta á mig verðhugmynd í PM ef menn hafa áhuga.

Tekið skal fram að felgurnar seljast ekki þá barasta skelli ég þeim undir sjöunna þegar hún kemur á götuna, hvenær sem það verður :wink:

Og já, öll skítakomment og athugasemdir skulu líka vera send í PM.

PostPosted: Mon 26. Mar 2007 21:50
by íbbi_
þetta yrði alvarlega flott undir camaronum

PostPosted: Mon 26. Mar 2007 22:40
by X-ray
Flottar felgur undir E34 án efa !!!


Arnar 18 :arrow: 19 eða á nokkuð að fá sér dúbbur ?

PostPosted: Tue 27. Mar 2007 00:10
by Gustur GT
Ertu með Verðhugmynd ???

PostPosted: Tue 27. Mar 2007 00:40
by X-ray
Svona pakki, kostar nýr ríflega 260 þús. þá án alla lásaboltana.

PostPosted: Tue 27. Mar 2007 20:43
by ömmudriver
Þá eru þessar elskur seldar :(

PostPosted: Wed 28. Mar 2007 00:53
by Bandit79
Tók ekki langan tíma 8)

PostPosted: Wed 28. Mar 2007 00:55
by ömmudriver
Bandit79 wrote:Tók ekki langan tíma 8)


Óóónei 8) Enda AUÐseljanleg vara :twisted: