by Mundi » Wed 01. Jun 2005 23:18
Þakka þér fyrir,
Jú jú hann vekur alltaf athyggli hvar sem ég er á honum. Hann verður í gerfi brúðarbíls á laugardaginn þannig að ég verð fjarri, einn starfsmaður hjá mér er að gifta sig og valdi náttúrlega BMW.
Kannski verður hann til sölu vorið 2006 en þá kemur vonandi nýr 330 á planið, ekki vill maður nú kaupa þann nýja á fyrsta ári.
Svar við fyrri spurningu frá Loga, þessar líta eins út og er undir 525iX bílnum, ég keypti þær á ebay undir X bílinn en þær passa ekki, eru of útvíðar, offsettið er annað, ég held að þessar séu ET 20 en 525iX þarf ET 35.
Endilega losið mig við þessar felgur, skúrinn er fullur af BMW felgum.
mbk. mundi
ps. ef einhver lyggur á felgum undir 525iX bílinn þá hef ég kaupanda.