Page 1 of 1

Innflutningur frá Norge

PostPosted: Mon 04. Apr 2005 20:59
by jens
Er einhver sem er með tollalöginn á hreinu, málið er að það er bíll út í Noregi sem hugmyndin er að flytja inn. Veit einhver hvað legst í % á bílinn og hvor það sé miðað við kaupverð bílsins í upphafi eða eitthvað
viðmiðunarverð.

Re: Innflutningur frá Norge

PostPosted: Mon 04. Apr 2005 21:23
by gstuning
jens wrote:Er einhver sem er með tollalöginn á hreinu, málið er að það er bíll út í Noregi sem hugmyndin er að flytja inn. Veit einhver hvað legst í % á bílinn og hvor það sé miðað við kaupverð bílsins í upphafi eða eitthvað
viðmiðunarverð.


Um þetta er búið að tala um nokkuð oft, svo er innflutningsreiknivélin fremst á síðunni og hana geturðu notað til að reikna heildarverðið

PostPosted: Mon 04. Apr 2005 23:19
by jens
K THX

PostPosted: Tue 05. Apr 2005 16:56
by saemi
taktu hann heim með norrænu, sparar bönsch í flutning.

PostPosted: Sun 10. Apr 2005 21:37
by Bjarkih
Leggst nokkur tollur á fyrst að við erum með Noregi í EFTA? Kannski má fynna eitthvað hér: http://www.hallonorden.org/

PostPosted: Sun 10. Apr 2005 23:36
by Chrome
Hallonorden.org wrote:Skráning ökutækis. Tollar og gjöld við influtning ökutækis. - Ísland

Þú getur flutt með þér eigið ökutæki til Íslands án þess að greiða af því aðflutningsgjöld ætlir þú að dvelja sem ferðamaður á Íslandi í skamman tíma. Skilyrði er að þú hafir verið búsettur erlendis í a.m.k. eitt ár, að ökutækið sé skráður erlendis en tryggt fyrir akstri á Íslandi og að það hafi komið til landsins á svipuðum tíma og þú sjálfur.
Tollstjóri veitir akstursleyfi til eins mánaðar í senn. Þú getur sótt um framlengingu á akstursleyfi að því tilskyldu að þú hvorki hafir fasta búsetu á Íslandi né hafir hér tekjur. Akstursleyfi er aldrei veitt til lengri tíma en eins árs.

Þú hefur leyfi til þess að hafa ökutækið á erlendu skráningarnúmerunum í allt að einn mánuð frá því að það kemur til landsins.

PostPosted: Sun 10. Apr 2005 23:51
by Kristjan
Bróðir minn tók bílinn sinn með sér til Danmerkur þegar hann var þar í námi, svo þegar árið rann út flutti hann bílinn aftur heim.