Page 1 of 3

Hvað finnst mönnum um nýja Dodge Chargerinn?

PostPosted: Tue 29. Mar 2005 22:55
by Eggert
Dodge Charger SRT-8.

Image

Image

Image

Image

Image

Image

:?:




8)

PostPosted: Tue 29. Mar 2005 23:04
by Bjössi
Mér finnst allt flott nema framendinn, annars örugglega ágætasti bíll

PostPosted: Tue 29. Mar 2005 23:14
by Jökull
úber svalur 8)

PostPosted: Tue 29. Mar 2005 23:18
by ///Matti
Boddýið ekki alveg að virka á mig :? ,en öruglega geðveik græja :twisted:

PostPosted: Tue 29. Mar 2005 23:37
by gunnar
2 og margar hurðar.

PostPosted: Tue 29. Mar 2005 23:41
by hlynurst
Mér finnst þetta bara mjög flottur bíll þrátt fyrir að ég sé ekki mikið fyrir USA... virðist þó vera að þeir séu að hanna flotta bíla núna. :)

PostPosted: Tue 29. Mar 2005 23:48
by Eggert
hlynurst wrote:Mér finnst þetta bara mjög flottur bíll þrátt fyrir að ég sé ekki mikið fyrir USA... virðist þó vera að þeir séu að hanna flotta bíla núna. :)


Já, og loksins innréttingar farnar að vera sæmilegar. Sjáiði bara sætin og mælaborðið.. þetta er ekki í líkingu hvernig þetta var fyrir 5 eða 10 árum síðan.

PostPosted: Tue 29. Mar 2005 23:53
by Schnitzerinn
Ég fíla framendann alveg þokkalega en afturendinn er fokk ljótur og er alveg eins og á einhverjum öðrum bíl frá Dodge sem ég man ekki hvað heitir í augnablikinu. Og Charger á að vera COUPE ekki 4ra dyra :burn:

PostPosted: Wed 30. Mar 2005 00:16
by Djofullinn
gunnar wrote:2 og margar hurðar.

Og? Meinaru ekki of?

PostPosted: Wed 30. Mar 2005 00:27
by BlitZ3r
alltí lagi sem bíll en þetta er vanvirðing á gamla chargerinnum.þessi bíll meðal annars pontiac gto voru bara endur vaknir aftur upp til að auka sölur á bílunum þeirra og ekkert annað

PostPosted: Wed 30. Mar 2005 00:31
by Arnar
Þetta er 8) 8) 8) Mynd !

Image

PostPosted: Wed 30. Mar 2005 01:15
by Schnitzerinn
Arnar wrote:Þetta er 8) 8) 8) Mynd !

Image


Tjekkið á aðvörunar textanum fyrir ameríkanabjánana neðst vinstra megin, "Closed course, Professional Driver, Do Not Attempt" :lol: :P

PostPosted: Wed 30. Mar 2005 07:23
by gunnar
Djofullinn wrote:
gunnar wrote:2 og margar hurðar.

Og? Meinaru ekki of?


jú að sjálfsögðu, smá type-o :wink:

PostPosted: Wed 30. Mar 2005 08:19
by íbbi_
mér finnst þessir bílar alveg sjúkir!

PostPosted: Wed 30. Mar 2005 08:31
by Þórir
Mér finnst þessi mynd geðveik og bíllinn sjúklega flottur. Mér finnst líka svalt af Mopar að þora að koma með fjögurra dyra bíl, þó svo hann hefði verið geggjaður sem tveggja dyra.

Annars fannst mér minn, 1969 R/T, fallegri. 8)