Hringtorg í París
Ég man ekki hvort ég póstaði þessu, en ég rakst á þessa mynd þegar ég var að skoða myndir frá því í sumar. Þessi er tekin af "hringtorginu" fræga ofan af sigurboganum. Alveg magnað caos þarna þegar er mikil umferð, engar akreinar og eina reglan sem er í gangi er hægriréttur. Það þýðir því lítið að hætta sér of innarlega því þá kemstu bara ekkert út!

