Page 1 of 1

Soldið töff í skottið...

PostPosted: Mon 03. Jan 2005 22:36
by Chrome
Image

8) restin af bílnum er ekki svo slæm heldur :)

PostPosted: Mon 03. Jan 2005 22:52
by Kristjan
Klikkaður.

Mjög snyrtilegur frágangur á græjunum.

PostPosted: Tue 04. Jan 2005 01:12
by Schnitzerinn
Sætur skrattakollur 8)

PostPosted: Tue 04. Jan 2005 01:42
by oli m3
Nice rúntkerra .. fullyloaded :lol:

PostPosted: Tue 04. Jan 2005 20:37
by O.Johnson
Hata svona skottbreytingar fyrir græjur.
Skemmir allt notagildi skotsins og svo er þetta næstum alltaf forljótt, þar á meðal þetta.
Einnig sé ég ekki tilganginn að vera með einhverjar súper græjur sem geta spilað súper hátt. Allur þessi bassi fer bara illa með bílinn og þá sem eru inn í honum. Þar að auki notar enginn heilvita maður allt sem fæst út úr græjunum þegar setið er inn í bílnum, bara pain það sko. Þetta ætti bara að vera í sýningarbílum og þeim sem taka þátt í þessum heimskulegu hávaðakeppnum.

PostPosted: Tue 04. Jan 2005 20:48
by Kull
O.Johnson wrote:Hata svona skottbreytingar fyrir græjur.
Skemmir allt notagildi skotsins og svo er þetta næstum alltaf forljótt, þar á meðal þetta.
Einnig sé ég ekki tilganginn að vera með einhverjar súper græjur sem geta spilað súper hátt. Allur þessi bassi fer bara illa með bílinn og þá sem eru inn í honum. Þar að auki notar enginn heilvita maður allt sem fæst út úr græjunum þegar setið er inn í bílnum, bara pain það sko. Þetta ætti bara að vera í sýningarbílum og þeim sem taka þátt í þessum heimskulegu hávaðakeppnum.


Það er nú lítill tilgangur í mörgu í sambandi við bíla nema að auka skemmtanagildið fyrir eigandann. Margir hafa gaman af flottum og hljómgóður græjum og finnst mér það ekkert heimskulegra en að elta bolta eða keyra í hringi.

PostPosted: Thu 06. Jan 2005 05:23
by Twincam
ég er nú með falskan botn í skottinu á mínum Polo, magnarar þar undir og svo ofan á kemur 3ja keilu box. Og allt þetta gerir það að verkum að það er varla séns á að koma pari af strigaskóm fyrir í skottinu líka. En mér er alveg sama um það, get þá bara sett skóna í aftursætið.

Eins og "Kull" sagði, það er bara misjafnt hverju menn hafa áhuga á. Mig persónulega langar meira að fara út að keyra og hlusta á tónlist í góðum græjum heldur en að fara út og vera með frat græjur :roll:

PostPosted: Thu 06. Jan 2005 09:11
by gunnar
Ég sé nú samt ekki alveg af hverju eigandinn ætti ekki að geta notað skottið sitt? Það er alveg nóg pláss þarna ?

Eins og ég er td búinn að hanna dæmið í bílnum hjá mér, þá smíðaði ég bara lítið box utan um 12" keilu, festi báða magnarana á boxið þannig þetta tekur sáralítið pláss.

PostPosted: Thu 06. Jan 2005 09:21
by Kristjan
Skottið hjá mér fyllist oftast bara af einhverju drasli, ef maður væri með eitthvað svona setup þá geri ég ráð fyrir því að maður myndi hætta að henda rusli í skottið...