Keyt á bílinn minn og stungið af! (SÖKUDÓLGUR FUNDINN)
BÍLLINN OG ÖKUMAÐUR FUNDNIR!!
Það var keyrt á bílinn minn, rauðan nissan sunny gti ´92 sem er alveg orginal í útliti í Stapaseli 1-3 í dag 25.des milli 14 - 20 en mjög líklega um 4 leitið þar sem kona í næsta húsi sagðist hafa heyrt hvell um það leiti.
Bíllinn sem mig grunar mjög sterklega um verknaðinn er rauð honda civic esi 3ja dyra þar sem ég tók sérstaklega vel eftir honum þar sem ég lagði fyrir aftan hann (en samt nóg pláss til að komast framhjá).
Hann var eini rauði bíllinn á svæðinu (fyrir utan minn) og það voru rauðar flygsur af honum (liturinn passaði ekki við minn) liggjandi á jörðinni og dekkjafar sem passar við lengd frá bílstjórahurðinni og sömuleiðis hæðin á beyglunni.
Þessi bíll (hondan) virtist vera mjög orginal í útliti þannig að það ætti ekki að vera svo erfitt að finna hann.
Hurðin mín er allavega það beygluð að ég get ekki opnað hana þannig að ég skil ekki hvernig viðkomandi fór að því að keyra svona harkalega á bílinn.
En allavega, ég vil vinsamlegast biðja viðkomandi um að gefa sig fram að fyrra bragði til að spara báðum aðilum vandræðin.
Sömuleiðis langar mig til að byðja alla sem geta mögulega gefið mér einhverjar upplýsingar um þennan bíl að láta mig vita hér eða í síma 865-9599 hvort sem þeir hafi séð svona bíl á þessu svæði áður eða þá í umferðinni með klesstan afturstuðara/stuðaralausan. Þetta er semsagt ofarlega í seljahverfi rétt hjá Ölduselsskóla og seljakirkju í hverfunum sem eru rétt hinum megin við nýbyggingasvæði kópavogs. Þetta var semsagt þar í botnlanga.
Og ég ætla ekki að vera með nein leiðindi útaf þessu og gera einhvað vesen þar sem ég er þónokkuð viss um að finna bílinn og vona bara að viðkomandi sé nógu mikill maður til að gefa sig fram og við leisum þá málin eins og menn.
Annars er ég þegar búinn að fara með þetta til lögreglu en bíllinn minn er ekki í kaskó þannig að þetta kom sér frekar illa fyrir mig og allar mögulegar upplýsingar eru mun meira en vel þegnar!!
Með fyrirfram þökk