bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

bók um sprautun
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=8425
Page 1 of 1

Author:  Arnar [ Fri 03. Dec 2004 12:35 ]
Post subject:  bók um sprautun

Sælir

Hvaða bók um sprautun og boddý-viðgerðir mælið þið með ?? ég panta þetta bara að utan frá amasone.com eða ebay

Ég var búinn að finna eina sem heitir " how to paint your car" hefur eitthver skoða hana eða kannski á hana?
Ég væri líka alveg til í að kaupa hana af spjallverja ef hann ætti hana....:wink:

hér er eitt tilboð á ebay
http://cgi.ebay.com/ws/eBayISAPI.dll?ViewItem&category=378&item=4508519726&rd=1&ssPageName=WDVW


Hér er önnur sem gæti verið góð
Image

Hverju mæla menn með ??

Author:  Arnar [ Sat 04. Dec 2004 13:22 ]
Post subject: 

Er enginn sem veit eitthvað um þetta ???

Author:  ///MR HUNG [ Sat 04. Dec 2004 19:58 ]
Post subject: 

Jú það er einn hérna sem er mjög fróður um þessi mál,Getur gefið þér verð á lakkinu og hverning þetta er gert.Man ekki hvað hann heitir enn hann á örugglega eftir að láta heyra í sér :whip:

Author:  Friðrik [ Sun 05. Dec 2004 01:39 ]
Post subject: 

ég fékk þessa bók á bókasafninu hérna í kringlunni og skoðaði hana smá, hún er mjög ýtarleg og margar myndir til útskýringar, en þar sem ég las hana ekki nærriþví alla er ég í engri aðstöðu til þess að dæma hana. ég mæli bara með að þú skutlist út á bókasafn og skoðir hana.

Author:  Bjarki [ Sun 05. Dec 2004 03:44 ]
Post subject: 

Ég pantaði svona bók fyrr á þessu ári "Automotive paint handbook" (ISBN: 1557882916). Hún er allt í lagi en ekki mikið um step by step leiðbeiningar. Meira svona almenn umfjöllun um bílasprautun og boddy-viðgerðir.
Málið er bara að 10 ára gömul bók um bílasprautun er með svo mikið af upplýsingum um eitthvað sem er ekki lengur til eða aðferðir sem er hætt að nota. Það er svo hröð þróun í þessu. Veldu 1-2 nýlegar bækur og þá ættir þú að vera nokkuð liðtækur DIY sprautari.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/