Innlent | mbl.is | 28.11.2004 | 19:31
Slökkvistarfi lokið í miðbænum
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur lokið starfi við veitingahúsið 22 á Laugavegi 22, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu. Tilkynnt var um reyk frá húsinu á sjöunda tímanum í kvöld. Slökkviliðið segir að hitnað hafi út frá ofni í húsinu og menn hafi um tíma haldið að eldur hefði borist í vegg af þeim sökum. Svo reyndist hins vegar ekki vera, en rífa þurfti vegginn til þess að sjá hvað gerst hafði.



