Opel Speedster í Bílheimum og fyrsti 997 S bíllinn á götunni
Jæja, þar kom að því Speedsterinn er lentur og stendur hann á bláum dregli uppí Bílheimum, ég fór og skoðaði hann nú í kvöld og var hann einu orði satt geggjaður. Bíllinn er 2,2 lítra og fékkst hann hingað vegna þess að stjórnarformaður Opel erlendis hætti við að taka hann. Að mínu mati er þetta mikið fallegri bíll en Lotusinn
Á leið minni uppí Bílheima sá ég einhverja umferð við Bílabúð Benna og þar var greinilega verið að afhenta fyrsta Porsche 997 S bílinn en sá bíll er blár og býr eigandinn á Hellu 