Björgvin wrote:Mér sýnist þetta nú vera gamli saabinn minn hehe var nú ágætis bíll á margan hátt náttúrulega vel ryðgaður eins og Saab er siður en örugglega fínn bíll fyrir 50 kall ef það er búið að gera svona mikið fyrir hann.En þegar ég losaði mig við hann þá voru náttúrulega allar hurðar ónýtar af ryði þannig að þetta er nú ekki bíll sem á mörg ár eftir!
ok.... og þér finnst skrítið að fólk fari í móral út í þig??
Getur þú ímyndað þér hvað ÉG var ótrúlega "ánægður" með að kúplingin í bílnum skildi fara >>>ÞREM DÖGUM<<< eftir að ég keypti hann af þér? Og ég hafi þurft að bíða hátt í 8 vikur eftir nýrri.. og því aldrei keyrt bílinn neitt að ráði áður en ég lét hann frá mér...
Ekki fór ég að væla í þér yfir því að hún skildi hafa farið og ekki hef ég sýnt þér neina andúð eftir það (Þó ég hafi sent þér sms um að kúplingsfjandinn hafi farið).
En stundum þykir mér þú fara full langt yfir strikið með skítköstum á aðra. Heldurðu virkilega að Jón Mar reyni að leyna ryðinu í hurðunum? Dálítið erfitt þar sem þetta er með fyrstu stöðunum sem fólk kíkir eftir ryði á. Og auk þess, þá er það sem er ryðgað í hurðunum einungis það sem kemur í stað sílsa á venjulegum bílum þar sem SAAB þarf að vera það spes að láta hurðarnar ná niður að grindarbitum.
Ég held þú ættir aðeins að fara að lýta í eigin barm Björgvin, því þegar ég ræddi við þig, þá virtist þú hinn fínasti gaur. En eftir að hafa séð hvernig þú hagar þér á netinu, þá er ég alvarlega farinn að íhuga að taka upp þína siði og einbeita mér að því að skemma hvern einn og einasta söluþráð sem þú kemur til með að setja inn hérna.. eða bara hvar sem ég sé þig auglýsa eitthvað.
Komum í sandkassaleik...

