bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Í framhaldi af þessari umræðu um hugbúnað og stuld https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=7612 |
Page 1 of 2 |
Author: | gstuning [ Wed 29. Sep 2004 22:03 ] |
Post subject: | Í framhaldi af þessari umræðu um hugbúnað og stuld |
Ég var að spá Að copera mynd sem einhver hefur breytt úr DVD í MPG format er það ennþá bíómyndin?,, er það ekki bara bunch af kóða sem í raun enginn á nema sá sem bjó til kóðann þ.e þjófurinn Augljós skilgreining á stuld úr búð er að taka hlutinn hreinlega eins og hann kemur fram sem söluvara t,d geisladiskur í pakkningu Hvað ef ég tek upp úr útvarpinu er það þá líka stuldur?? þ.e lagið sem ég heyrði í útvarpinu eða þátturinn í sjónvarpinu, 1980 í USA kærðu kvikmynda framleiðendur videotækja framleiðendur því að þeir voru að búa til búnað til að stela kvikmyndunum og dreifa ólöglega,, Kvikmynda framleiðendur töpuðu málinu. Samskonar kæra var gerð á hendur TIVO þar sem að sjónvarpstöðvar háðu mál þar sem að þú getur tekið upp heilu dagskránna og látið tækið sleppa auglýsingum sjálfkrafa, sjónvarpstöðvar töpuðu því máli Ef ég myndi recorda myndir sem koma á skjá og hljóð sem kemur úr hátalara er ég þá að stela gögnum, hvaða gögn sem það eru, eða eru það lögleg gögn sem ég get tekið upp og svo ólögleg gögn Það sem ég er að segja er ,, hvenær hættir t,d bíómynd að vera það sem framleiðandi gaf út í raun,, Samkvæmt því sem ég held að sé skilgreint sem löglegt er að það má taka backup af gögnunum sínum og eiga til að geyma ef upprunalegu skemmast, Má fara með gögnin út fyrir húsins dyr??(þá er það geisladiskur, DVD mynd, eða hvað annað sem er löglegt að búa til backup af) um leið og það má geyma gögninn annarstaðar en heima hjá sér þá er ekki hægt að banna dreifingu á þessu sem er verið að dreifa á DC..... Ég tel málið eiga eftir að stoppa á þessari skilgreiningu á endanum, En ég er með á því að þetta sé ólöglegt þangað til að annað kemur í ljós, Eitt sem er bókað ólöglegt samt er að þar sem að gögnin væru backup þá mætti sá sem er með þau undir hendinni ekki nota þau, heldur þyrfti hann að fá original diskinn eða spóluna hjá original eiganda,, það er því í höndum þess sem er með bíómynd sem hann keypti ekki að horfa ekki á hana því að þá væri hann að stela!! |
Author: | Bjarkih [ Wed 29. Sep 2004 22:24 ] |
Post subject: | |
Við borgum nú líka til höfunda í hvert skipti sem við kaupum tóma video spólu eða geisladisk. En ég hugsa að þegar maður tekur á móti bíómynd sem búið er að converta yfir á mpg þá sé maður strangt til tekið að taka á móti þýfi. |
Author: | bjahja [ Thu 30. Sep 2004 01:08 ] |
Post subject: | |
Það er víst ólöglegt að taka upp sjónvarpsefni og útvarp........ég fékk það svar einusinni þegar ég var að spá í þessu sama ![]() |
Author: | Kull [ Thu 30. Sep 2004 08:56 ] |
Post subject: | |
Fá sér bara góðann lögfræðing og halda því fram að þetta sé allt löglegt því það var búið að borga fyrir höfundarréttinn þegar diskarnir voru keyptir. |
Author: | Giz [ Thu 30. Sep 2004 10:20 ] |
Post subject: | |
Kull wrote: Fá sér bara góðann lögfræðing og halda því fram að þetta sé allt löglegt því það var búið að borga fyrir höfundarréttinn þegar diskarnir voru keyptir.
RIGHT Hversu sárt sem mönnum finnst nú að viðukenna það, þá er og verður þetta ekkert annað en stuldur. Menn geta svo verið sammála eða ósammála eða bara notað 5 ára aðferðina og sagst aldrei ætla að versla við Skífuna aftur og þar fram eftir götunum. Mér þætti gaman að sjá viðbrögð þessara aðila sem finnst þetta ekki vera stuldur ef einhver kæmi og stæli einhverju frá þeim og notaði svo bara sömu rök og hafa verið notuð undanfarið. ÉG ER EKKERT AÐ STELA! Hins vegar ætla ég síður en svo að lýsa mig alsaklausan í þessum málum þannig en á sama tíma eykur þetta ef eitthvað er geisladiskakaup hjá mér persónulega. Maður finnur með þessu móti fleiri skemmtilega tónlistarmenn og kaupir svo viðkomandi disk ef áhugi er fyrir. Þannig að það eru margar hliðar á þessu máli en fyrst og síðast er þetta stuldur og brot á höfundarrétti, algerlega óháð því hversu mikið og hvort borgaður hafi verið höfundarréttur(STEF gjöld) af tímum geisladiski. Bara minn fim kall G |
Author: | iar [ Thu 30. Sep 2004 11:05 ] |
Post subject: | |
Gunni og fleiri, þið megið ekki gleyma því að málið snýst um höfundarétt að hugverkinu, ekki endilega diskinn, spóluna eða hvernig sem hugverkinu er komið til skila. Málið snýst líka um ólöglega _dreifingu_ á hugverkinu, þú mátt alveg taka þetta upp úr sjónvarpi, breyta yfir á mpg eða vmw form fyrir sjálfan þig en þú mátt ekki dreifa því án leyfis. Ef ég mála flotta mynd og ætla að selja hana til Louvre og svo kemur þú og tekur mynd af því og ferð að selja eða dreifa póstkort um allan heim með eftirmynd af myndinni minni. Hvað ertu að gera annað en að stela hugverkinu mínu? Louvre hættir við að kaupa það og ég sit eftir slippur og snauður (og andlega og fjárhagslega særður sbr. umræðu í öðrum þræði um að engin særðist við svona dreifingu). |
Author: | gstuning [ Thu 30. Sep 2004 11:18 ] |
Post subject: | |
iar wrote: Gunni og fleiri, þið megið ekki gleyma því að málið snýst um höfundarétt að hugverkinu, ekki endilega diskinn, spóluna eða hvernig sem hugverkinu er komið til skila.
Málið snýst líka um ólöglega _dreifingu_ á hugverkinu, þú mátt alveg taka þetta upp úr sjónvarpi, breyta yfir á mpg eða vmw form fyrir sjálfan þig en þú mátt ekki dreifa því án leyfis. Ef ég mála flotta mynd og ætla að selja hana til Louvre og svo kemur þú og tekur mynd af því og ferð að selja eða dreifa póstkort um allan heim með eftirmynd af myndinni minni. Hvað ertu að gera annað en að stela hugverkinu mínu? Louvre hættir við að kaupa það og ég sit eftir slippur og snauður (og andlega og fjárhagslega særður sbr. umræðu í öðrum þræði um að engin særðist við svona dreifingu). Ég er bara að búa til mál úr engu ![]() |
Author: | jonthor [ Thu 30. Sep 2004 12:03 ] |
Post subject: | |
bjahja wrote: Það er víst ólöglegt að taka upp sjónvarpsefni og útvarp........ég fékk það svar einusinni þegar ég var að spá í þessu sama
![]() Ha? Það er ekki ólöglegt lengur, er ekki bara ólöglegt að dreyfa því eftir það? Þetta er einmitt munurinn. Sjónvarpstöðin greiðir höfundum fyrir að sýna myndina og þú mátt taka hana upp en ekki dreyfa henni. Eins og þú mátt taka afrit af einhverju sem þú hefur keypt en mátt ekki dreyfa því. Ég skildi TiVo málið þannig að það snerist aðallega um að allar auglýsingar eru klipptar út. Það er svo rosaleg tekjulind fyrir sjónvarpsstöðvarnar. Annars er þetta bara millibilsástand. Muniði þegar videoin komu fyrst og allir voru að copy-a myndir og dreyfa. Fólk hætti að nenna því. Sama á eftir að gerast með þetta og er þegar að gerast með tónlist. Þegar þú getur downloadað uppáhalds laginu þínu löglega á mp3 formati fyrir 0,99$ þá endar það þannig að mainstreamið gerir það. Sama á eftir að gerast með myndir þegar bandvíddin er orðin nógu mikil til að almenningur geti keypt myndir í gegnum netið. |
Author: | gunnar [ Thu 30. Sep 2004 12:03 ] |
Post subject: | |
Ok, Ok ok, þetta er ólöglegt, ég held að flestir séu alveg búnir að fatta það... En vitðiði, ég held að flestum sé alveg slétt sama og þar á meðal mér.. Só sorrí stína en ég sé ekkert eftir þessu.... Bara hreint út sagt |
Author: | Giz [ Thu 30. Sep 2004 12:17 ] |
Post subject: | |
gunnar wrote: Ok, Ok ok, þetta er ólöglegt, ég held að flestir séu alveg búnir að fatta það... En vitðiði, ég held að flestum sé alveg slétt sama og þar á meðal mér.. Só sorrí stína en ég sé ekkert eftir þessu....
Bara hreint út sagt Já, þarna kemuru einmitt að kjarna málsins. Ef allir eru búnir að fatta það þá ætti í raun engin að vera að væla yfir að vera tekinn eða álíka. Með því að gera sér grein fyrir að maður sé að fremja ólöglegt athæfi, hlýtur maður að vera tilbúinn að taka afleiðingum þess athæfis. If you can´t do the time, don´t do the crime. Var það ekki einhvernveginn þannig sem það hljómaði. Eflaust er flestum sléttsama en það eru víst lög í landinu og þau ber víst að virða, allavega í teoríunni. Þetta er eins og þegar fólk er með skítkast út í dómara eða dómstóla landsins vegna of stuttra dóma fyrir eitthvað. Það er ríkið sem ákveður refsirammann og býr til lög, dómstólarnir fara bara eftir þeim. Svona er bananalýðveldið Ísland í dag, skyldi Jón steinar vita af þessu? |
Author: | Benzari [ Thu 30. Sep 2004 12:26 ] |
Post subject: | |
Það finnast "glæpamenn" allstaðar ![]() http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... 16&start=0 |
Author: | Giz [ Thu 30. Sep 2004 12:43 ] |
Post subject: | |
Benzari wrote:
HEHE ![]() Yfir og út |
Author: | Einsii [ Thu 30. Sep 2004 14:43 ] |
Post subject: | |
ok en ef ég kaupi mér cd og tíni honum svo er þá ólöglegt að fara á dc og ná í sömu lög og setja þau á nyjann disk sem auka afrit til eigin brúks ?? |
Author: | gstuning [ Thu 30. Sep 2004 14:59 ] |
Post subject: | |
Einsii wrote: ok en ef ég kaupi mér cd og tíni honum svo er þá ólöglegt að fara á dc og ná í sömu lög og setja þau á nyjann disk sem auka afrit til eigin brúks ??
Ef þú ættir kvittun fyrir kaupunum þá myndirru sleppa held ég |
Author: | Svezel [ Thu 30. Sep 2004 15:20 ] |
Post subject: | |
Ef hlutir eru almennilegir þá seljast þeir, svo einfalt er það. Drasli er stolið á netinu, almennilega dótið er keypt. Ég gæti t.d. dl einhverri mynd út í bláinn sem er ömurleg og horfi ekki nema max einu sinni á en ef þetta er almennileg mynd þá langar mig að sjá hana aftur á DVD eða jafnvel kaupa hana, þá geri ég það. Eins með lög, ef þetta er leiðinlegur diskur þá hlusta ég ekkert á hann meir en ef ég fíla hann þá fer ég og kaupi diskinn. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |