bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Litapælingar
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=7403
Page 1 of 1

Author:  Kristjan [ Sun 12. Sep 2004 23:14 ]
Post subject:  Litapælingar

Ég er búinn að vera hugleiða málin og hef ákveðið að láta sprauta bílinn í fjarveru skírteinisins.

Það eru nokkrir litir sem ég hef verið að velta fyrir mér.

Sá fyrsti er Original liturinn: "Delphin Metallic" Það væri vissulega laaaaaaaang auðveldast og ódýrast að sprauta hann í upprunalega litnum. En það freistar að láta taka hann alveg í gegn.
Image

Þar á eftir kemur "Calypso Röt Metallic".

Margir kannast við þann lit af bílnum hans Dr. E31

Hér er mynd af E36 með þessum lit.
Image

Og E34 að kvöldi til.
Image

Þetta er óneitanlega mjög spennandi litur. En ég býst við því að hafa bílinn shadowline eins og þessa tvo. Enda ekki mikill króm aðdáandi.

Sæmi gaf mér hugmynd af þriðja litnum.
Image

Ég veit nú reyndar ekki hvað þessi litur heitir ("purpurrot metallic") ? en þrátt fyrir það Þá fíla ég hann í tætlur.

Ykkar hugleiðingar?

Author:  saemi [ Sun 12. Sep 2004 23:19 ]
Post subject: 

Ég myndi EKKI skipta um lit á bílnum. Það er bara svo erfitt að gera það vel. MIKLU ódýrara að hafa sama lit áfram.

Author:  Haffi [ Sun 12. Sep 2004 23:36 ]
Post subject: 

don't be a cocoanut ! þetta er fíínn litur!

Author:  gstuning [ Sun 12. Sep 2004 23:37 ]
Post subject: 

Mér finnst Calypso rot alveg geðveikt

en þú veist að þú verður að taka vélina úr til að skipta um lit og það er nú meira en að segja það,,
Til að gera það rétt þarf að taka ALLT úr bílnum, hægt að sleppa einu og öðru í farþegarýminu enn annars ertu að rífa allt í burtu og skömm að skipta ekki um dót þegar þú ert komin að því og því á það eftir að kosta enn meira enn bara að sprauta og taka enn lengri tíma

Ég hef staðið í því að skipta um lit og það er bara ekki auðvelt og ég náði bara að klára í húddinu,,
það þarf svo lítið til að verkið verði lélegt

Author:  saemi [ Sun 12. Sep 2004 23:47 ]
Post subject: 

Annars heitir liturinn á 525i bílnum mínum Brokatrot Metallic

Author:  Kristjan [ Sun 12. Sep 2004 23:56 ]
Post subject: 

Ég þakka góð ráð. Ætli maður haldi ekki uprunalega litnum. Ég fæ mér bara Calypso rot M5 einhvern góðan dag :P

Author:  gunnar [ Mon 13. Sep 2004 09:22 ]
Post subject: 

+ þinn litur er bara helvíti flottur! :) Myndi ekki skipta

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/