bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Skjá hugleiðingar
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=7332
Page 1 of 1

Author:  jens [ Wed 08. Sep 2004 11:50 ]
Post subject:  Skjá hugleiðingar

Hefur einhver reynslu af "19 MEDION flötum (LCD) skjá, er að spá í svoleiðis dæmi gamli '01 skjárinn minn gafst upp. Er að nota skjáinn ca. 75% í online leiki og svo auðvita á kraftinn.

Author:  fart [ Wed 08. Sep 2004 11:56 ]
Post subject: 

Ef þú ætlar að spila í LCD skjá, passaðu þig þá á því að svartími skjásins sé ekki hár. Þú þarft skjá sem er svona 12-15ms max.

Author:  jonthor [ Wed 08. Sep 2004 11:57 ]
Post subject: 

fart wrote:
Ef þú ætlar að spila í LCD skjá, passaðu þig þá á því að svartími skjásins sé ekki hár. Þú þarft skjá sem er svona 12-15ms max.


Ef hann er að spila FPS online leiki já, en ef hann er að spila MMORPG leiki þá skiptir það engu! Mér skilst annars að samsung syncmaster skjáirnir séu snilld!

Author:  jens [ Wed 08. Sep 2004 12:16 ]
Post subject: 

Fyrir mér er FPS mjög mikið mál.

Author:  oskard [ Wed 08. Sep 2004 23:38 ]
Post subject: 

medion er svona bónus... svona til að quota þjóðverjann
sem var boðið svona medion dót til sölu: "Oh, no I don't
want medion...thats like.. bonus in germany" :)

Author:  Kristjan [ Thu 09. Sep 2004 00:34 ]
Post subject: 

Taktu 17" Neovo. svartíminn í honum er c.a 15ms. Góð upplausn og glerplata framaná.

Eðal sjáir

Author:  gunnar [ Thu 09. Sep 2004 09:53 ]
Post subject: 

oskard wrote:
medion er svona bónus... svona til að quota þjóðverjann
sem var boðið svona medion dót til sölu: "Oh, no I don't
want medion...thats like.. bonus in germany" :)


Mikið rétt, Medion er ekki mjög sterkt merki... SKoðaði einu sinni Medion skjá í Elko og var að prufa upplausnir (ekki það háar), nei nei grillaðist skjárinn ekki bara allt í einu... Og allir starfsmenn í búðinni litu á mig eins og ég væri Osama Bin Laden og ég bara afsakaði mig og labbaði út :roll:

Ég er með 19" Viewsonic skjá sem hefur reynst mér rosalega vel.. En´ég mæli með að þú kaupir þér dýrann og mjög góðann skjá sem verndar líka augun í þér. Fólk í dag klikkar alltaf á þessu, kaupir góða tölvu en crappy skjá! Kolröng aðferð :x

Author:  Thrullerinn [ Thu 09. Sep 2004 10:13 ]
Post subject: 

Skjáir eru líka tölvuhlutir sem geta lifað 2-3falt lengur en sjálf tölvan,
það er þvíí raun skynsamlegt að kaupa almennilegan skjá ;) ...

Author:  fart [ Thu 09. Sep 2004 10:15 ]
Post subject: 

Thrullerinn wrote:
Skjáir eru líka tölvuhlutir sem geta lifað 2-3falt lengur en sjálf tölvan,
þannig það er "skynsamlegt" að kaupa almennilegan skjá...


well put

Og því til viðbótar þá finnst mér alltaf fyndið þegar menn eyða grilljónum í skjakort, og keyra það svo á einvherju Sampo dæmi. Hver vill keyra Enzo á sóluðum dekkjum.

Author:  jens [ Wed 22. Sep 2004 16:17 ]
Post subject: 

Jæja málið leist, fékk mér


Image
Stærð: 19" L1925 TFT flatur skjár
Upplausn: SXGA 1280x1024
Sjónarhorn: 170ø
Birta í nits: 250
Skerpa: 500:1
Tengi: Dual inputs VGA og DVI-I
+ lyklaborð í stíl. Hörku stöff.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/