Takk strákar

Torveg verkefnið er enn í gangi, ég er að mestu búinn með útlitshönnunina og er búinn með 3D módelið og renderingar/video er í vinnslu. Innréttingin er á frumskrefum en grunn hugmyndin er komin og ég held að það sé eitthvað sem fólk á eftir að vera ánægt með og mun passa bílnum og hans tilgangi vel!
Annars er líka verið að undirbúa gerð módels og svo auðvitað undirbúningur á prótótýpunni, þetta tekur bara allt tíma.
Annars er ég að vinna í öðrum verkefnum líka, er að vinna fyrir Arctic trucks akkúrat núna.
Svo ég ætla ég aðeins að nýta það sem ég lærði og gefa aðeins aftur til bílamenningarinnar á íslandi og auðvitað ætla ég að byrja á BMWkrafti
