Page 1 of 1

Trooper vesen

PostPosted: Sat 06. Dec 2014 20:26
by takecover
Ég er með 98'' Isuzu Tropper sem er með 3,0 L disel vélinni.

Vesenið sem er á bílnum hjá mér er að smurþrýstings mælirinn inn í bíl segir að það sé enginn smurþrýstingur á vélinni hjá mér, en bíllinn fer í gang og gengur eðlilega enginn aukahljóð, sem hann á víst ekki að geta gert ef það sé enginn smurþrýstingur á honum, það er eitthvað tengt því að það er comon rail kerfi í þessum vélum.
það logar líka rauða ljósið með mynd af olíu könnu í mælaborðinnu
er búinn að skifta um olíupunginn sem er á húsinnu sem smursían er á og það er enginn breyting

eru menn með einhverjar hugmyndir um hvað það er sem er að hrjá bíllinn.
vonandi að þessi lýsing meiki einhvern sens hjá mér.

Re: Trooper vesen

PostPosted: Sun 07. Dec 2014 01:35
by sosupabbi
Það er mikið atriði á Trooper að smurolían sé á milli min og max, alls ekki í max, ef olían er uppí topp á kvarðanum hjá þér skaltu taka hálfan líter af og prufa aftur.

Re: Trooper vesen

PostPosted: Sun 07. Dec 2014 01:38
by Angelic0-
Polo>Yaris>Patrol>Trooper.... hvað næst :?:

Re: Trooper vesen

PostPosted: Sun 07. Dec 2014 02:34
by sosupabbi
Angelic0- wrote:Polo>Yaris>Patrol>Trooper.... hvað næst :?:

Skjárinn í saumavélinni minni var að bila, hvert fer maður með svona nýjan yaris í viðgerð? PFAFF getur ekkert fyrir mig gert :mrgreen: