Page 1 of 1

Alltaf fjör í KEF.....

PostPosted: Thu 09. Oct 2014 12:28
by saemi
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/ ... f_fjollum/

Bölvað vesen!


Lög­regl­an á Suður­nesj­um hafði um helg­ina af­skipti af bif­reiðar­eig­anda sem hafði held­ur bet­ur óhreint mjöl í poka­horn­inu. Hann hafði tekið núm­er af bif­reið sem hann átti og sett á aðra bif­reið af sams kon­ar teg­und sem hann átti einnig. Gall­inn var bara sá að fyrr­nefnda bif­reiðin sem núm­er­in til­heyrðu var grá, hafði verið flutt inn frá Englandi og var með stýrið hæga meg­in. Hin bif­reiðin var rauð, með stýrið vinstra meg­in. Hún var einnig ótryggð. Eig­and­inn viður­kenndi að eiga bæði núm­erið og bif­reiðina sem þau voru á en kvaðst koma af fjöll­um um ástæðuna fyr­ir þess­um til­fær­ing­um. Hon­um var tjáð að hann yrði kærður fyr­ir skjalafals.

Ann­ar ökumaður, sem stöðvaður var, ók rétt­inda­laus á ótryggðri bif­reið. Skrán­ing­ar­merki voru fjar­lægð af henni. Þriðji ökumaður­inn ók und­ir áhrif­um kanna­bis­efna, að því er sýna­tök­ur á lög­reglu­stöð staðfestu.


:santa:

Re: Alltaf fjör í KEF.....

PostPosted: Thu 09. Oct 2014 12:37
by Alpina
Hef ónefnda aðila grunaða :angel:

Re: Alltaf fjör í KEF.....

PostPosted: Thu 09. Oct 2014 12:41
by saemi
Aldrei má ekki neitt......

Re: Alltaf fjör í KEF.....

PostPosted: Thu 09. Oct 2014 12:47
by fart
saemi wrote:Aldrei má ekki neitt......


Ótrúlegur klaufaskapur að hafa ekki bara tekið VIN plöturnar af báðum bilum, setja svo bara franskan rennilás aftaná og þá væri hægt að skipta um plötur og skráningu að vild... :thup:

Re: Alltaf fjör í KEF.....

PostPosted: Thu 09. Oct 2014 12:47
by bimmer
Hver skyldi þetta vera......?

Re: Alltaf fjör í KEF.....

PostPosted: Thu 09. Oct 2014 14:09
by Danni
Þetta var einhver Corolla 91 árgerð held ég.

Ekki Skúli RHD meister.

Re: Alltaf fjör í KEF.....

PostPosted: Thu 09. Oct 2014 14:53
by srr
Eins og sumir segja:

"Steinhaldiði kjafti um það sem þið hafið EKKERT hundsvit á"

Þetta var EKKI ég!
Toyota Corolla 5 dyra grá 1991 RHD.

Re: Alltaf fjör í KEF.....

PostPosted: Thu 09. Oct 2014 15:01
by bimmer
Var einhver að kenna þig við þetta???? :hmm:

Eini sem minnist á þig tekur það fram að þetta hafi ekki verið þú.

Re: Alltaf fjör í KEF.....

PostPosted: Thu 09. Oct 2014 15:28
by Angelic0-
Maður sér nú alveg hvert Sveinbjörn er að fara með þessu...

Ég er allavega stikkfrí...

Re: Alltaf fjör í KEF.....

PostPosted: Thu 09. Oct 2014 15:46
by Alpina
Angelic0- wrote:Maður sér nú alveg hvert Sveinbjörn er að fara með þessu...

Ég er allavega stikkfrí...


Nei ég vissi að þetta var ekki þú,,,,miðað við bílalýsingarnar......... :lol:

annars hefði skotið verið all nákvæmar :wink:

Re: Alltaf fjör í KEF.....

PostPosted: Fri 17. Oct 2014 14:34
by Kristjan
Leiðindi alltaf í þessum löggum.