Page 1 of 4
Hvaða bíl?

Posted:
Wed 05. Feb 2014 12:20
by Jónas
Er farið að langa að færa mig upp frá 3dyra 15 ára gömlum 1L Toyota Yaris sem ég hef átt í nokkuð langan tíma og hefur þjónað mér gríðarlega vel á þeim tíma.
Er að byrja að hugleiða hvaða bíl ég ætti að stefna á að versla næst.
Kröfur:
Verð á bilinu 1-2 m.kr.
Ekinn undir 120.000
4/5 dyra
Hófleg eyðsla innanbæjar
Lág bilanatíðni
Góður akstursbíll
Hef verið að horfa einstaklega mikið til Toyota Avensis og Skoda Octavia, þá meira til Avensis þar sem að mér finnst Octavian ekkert sérstaklega fallegur bíll. Þeir eru þó hugsanlega í stærri kantinum á því sem okkur vantar (erum tvö, en það bætist eflaust einhverntíman í fjölskylduna). Þá er spurning með bíla eins og Focus, i30, Ceed o.s.frv.
Hvað segja menn? Ef þið væruð í þessum sporum hvert mynduð þið horfa?
Re: Hvaða bíl?

Posted:
Wed 05. Feb 2014 13:09
by sosupabbi
Myndi gleyma öllu sem er framleitt af VW(ss vw, audi, skoda) einfaldlega afþví að það er drasl og bilar fyrir allan peninginn, ég myndi persónulega skoða að kaupa mér hondu accord eða subaru legacy, þeir kanski eyða aðeins meira en þeir bila sama sem ekkert, toyota kæmi þó líka til greina en gæðin hafa þó dvalað á síðustu árum hjá þeim. Ef planið er að eiga bílinn til lengri tíma myndi ég líka forðast nýrri dísel bíla þótt þeir séu freistandi kaup, þegar þeir bila er viðgerðakostnaðurinn alveg himin hár (þaes á vélartengdum bilunum).
Re: Hvaða bíl?

Posted:
Wed 05. Feb 2014 14:18
by Orri Þorkell
fljótt á litið. ef þig vantar bara svona a-b bíl sem er sæmilega þægilegur og ekki með dósafíling, þá segi ég toyota avensis bensínbíl
Re: Hvaða bíl?

Posted:
Wed 05. Feb 2014 14:49
by D.Árna
BMW E46 316/320D
Getur fengið hann í Touring(station) útgáfu ef það hentar betur.
Re: Hvaða bíl?

Posted:
Wed 05. Feb 2014 18:46
by Dóri-
Orri Þorkell wrote:fljótt á litið. ef þig vantar bara svona a-b bíl sem er sæmilega þægilegur og ekki með dósafíling, þá segi ég toyota avensis bensínbíl
Avensis hefur nú alveg verið þekktur fyrir að það skemmist í honum stýrisliður og svo það sem verra er eru margir af þeim að brenna olíu.
Legacy inn er fínn en 165 ha vélin eyðir of miklu miðað við hvernig hún vinnur og svo hafa verið að fara sjálfskiptingar í þeim.
Ef ég væri að reyna að finna mér bíl fyrir 1-2 millj. myndi ég frekar fara í lítið ekinn 1.6l bensín octaviu með góða þjónustusögu.
Re: Hvaða bíl?

Posted:
Wed 05. Feb 2014 19:42
by D.Árna
Dóri- wrote:Orri Þorkell wrote:fljótt á litið. ef þig vantar bara svona a-b bíl sem er sæmilega þægilegur og ekki með dósafíling, þá segi ég toyota avensis bensínbíl
Avensis hefur nú alveg verið þekktur fyrir að það skemmist í honum stýrisliður og svo það sem verra er eru margir af þeim að brenna olíu.
Legacy inn er fínn en 165 ha vélin eyðir of miklu miðað við hvernig hún vinnur og svo hafa verið að fara sjálfskiptingar í þeim.
Ef ég væri að reyna að finna mér bíl fyrir 1-2 millj. myndi ég frekar fara í lítið ekinn 1.6l bensín octaviu með góða þjónustusögu.
VW og allt sem því fylgir (skoda,audi) verður bara vandamál.. þetta bilar kannski ekkert að ráði svona fyrst en þegar þetta er orðið ekið svolítið þá verður þetta bara vesen t.d. rafmagnsbilanir sem engin nennir að standa í, mælaborðið er eins og jólatré loga öll heimsins ljós.
Það er hægt að fá svo margt annað hagstæðara á sama pening.. bara spurning um að leita í réttu tegundina (bmw sem er ekki orðinn alltof gamall,sama gildir með benz,legacy/impreza 2003+ og margt fl.
Gangi þér vel

Re: Hvaða bíl?

Posted:
Wed 05. Feb 2014 19:51
by gunnar
Hef einmitt verið í sömu pælingum og þú Jónas.
Vantar nýrri fjölskyldu bíl handa konunni. Hef verið að skoða svolítið Toyota Avensis ca. 2005-2007.
Hægt að fá þessa bíla frekar lítið ekna, station með krók og jafnvel leðri osfv á fínu verði.
Hef verið á svona bíl í vinnunni og líkar eiginlega bara afar vel. Finnst bíllinn afar vel hannaður og eldist bara rosalega vel.
En það var talað um hér að ofan um olíubrennslu? Var það eitthvað x tímabil eða eru þessir 1.8vvti mótorar ekki að gera sig? Hef ekki heyrt af þessu.
Re: Hvaða bíl?

Posted:
Wed 05. Feb 2014 19:56
by sosupabbi
L473R wrote:Dóri- wrote:Orri Þorkell wrote:fljótt á litið. ef þig vantar bara svona a-b bíl sem er sæmilega þægilegur og ekki með dósafíling, þá segi ég toyota avensis bensínbíl
Avensis hefur nú alveg verið þekktur fyrir að það skemmist í honum stýrisliður og svo það sem verra er eru margir af þeim að brenna olíu.
Legacy inn er fínn en 165 ha vélin eyðir of miklu miðað við hvernig hún vinnur og svo hafa verið að fara sjálfskiptingar í þeim.
Ef ég væri að reyna að finna mér bíl fyrir 1-2 millj. myndi ég frekar fara í lítið ekinn 1.6l bensín octaviu með góða þjónustusögu.
VW og allt sem því fylgir (skoda,audi) verður bara vandamál.. þetta bilar kannski ekkert að ráði svona fyrst en þegar þetta er orðið ekið svolítið þá verður þetta bara vesen t.d. rafmagnsbilanir sem engin nennir að standa í, mælaborðið er eins og jólatré loga öll heimsins ljós.
Það er hægt að fá svo margt annað hagstæðara á sama pening.. bara spurning um að leita í réttu tegundina (bmw sem er ekki orðinn alltof gamall,sama gildir með benz,legacy/impreza 2003+ og margt fl.
Gangi þér vel

Sannari orð hafa ekki verið sögð, þetta eru alveg einstaklega lélegir bílar, þeir bila og bila og bila og bila sem væri allt í lagi ef þeir gæfu eitthvað til baka annað en að vera a-b drusla. Honda og subaru eru besti kosturinn að mínu mati, myndi skoða mözdu líka ef varahlutir í þá væru ekki svona dýrir, varðandi toyotu þá hafa þeir aðdáendur sem ég hef talað við talað um dvínandi gæði frá og með árinu 2005, þekki það ekki frekar.
Re: Hvaða bíl?

Posted:
Wed 05. Feb 2014 20:01
by gunnar
Eyðir Honda Accord með 2L mótor ekki bara rosalega miklu, svipað og Subaru Legacy hefur maður heyrt.
Einhverjum 12-13 lítrum.
Re: Hvaða bíl?

Posted:
Wed 05. Feb 2014 20:22
by Orri Þorkell
ef þú ert að pæla í innanbæjareyðslu mikið, þá er bmw diesel samt alveg málið. þarft ekki að vera hræddur við aksturinn ef þeim er rétt við haldið. ef þú ert að keyra mikið innanbæjar þá ertu ekki lengi að spara það sem þú borgar meira fyrir diesel bíl. 3.0 M57 stendur í 8.5 hjá mér. það er ansi mikill munur á 8.5-9.5 og 12-13.
2.0 lítra diesel bmw mótorinn er að fara með ennþá minna en ég hef enga reynslu eða þekkingu hvernig þeir eru að endast.
Ég hugsa það gæti verið sterkur leikur samt að spjalla við þá hjá eðalbílum ef þú villt skoða bmw
Re: Hvaða bíl?

Posted:
Wed 05. Feb 2014 20:48
by Vlad
Mér finnst fremur fyndið að menn tali um að VW og Skoda bili en mæla svo með 11-12 ára BMW.
Bróðir pabba á 2008 árgerð af skoda keyrðan 160 þús og það er bara eðlilegt viðhald á honum, hef svipaða sögu að segja um Passat frá sama tímabili. Ef þú hugsar almennilega um bílinn þá fyrirbyggiru þetta vesen, nánast sama hvaða tegund af bíl er um að ræða.
Subaru Legacyinn er flottur en eyðir frekar miklu. Sjálfur myndi ég velja mér Octaviu eða einhverja Toyotu ef ég væri í þessum pælingum.
Re: Hvaða bíl?

Posted:
Wed 05. Feb 2014 21:05
by sosupabbi
gunnar wrote:Eyðir Honda Accord með 2L mótor ekki bara rosalega miklu, svipað og Subaru Legacy hefur maður heyrt.
Einhverjum 12-13 lítrum.
Hugsa að þeir séu í kringum 11-12 lítrum jú, en persónulega vill ég frekar eyða 2 lítrum meira á hverja 100km ekna heldur en að vera með skodan minn alltaf á verkstæði, fyndið hvað margir vw eigendur eru með stockholm syndrome, kaupa sér alltaf nýjan og nýjan samt var gamli alltaf bilaður

Re: Hvaða bíl?

Posted:
Wed 05. Feb 2014 21:12
by Orri Þorkell
Vlad wrote:Mér finnst fremur fyndið að menn tali um að VW og Skoda bili en mæla svo með 11-12 ára BMW.
Bróðir pabba á 2008 árgerð af skoda keyrðan 160 þús og það er bara eðlilegt viðhald á honum, hef svipaða sögu að segja um Passat frá sama tímabili. Ef þú hugsar almennilega um bílinn þá fyrirbyggiru þetta vesen, nánast sama hvaða tegund af bíl er um að ræða.
Subaru Legacyinn er flottur en eyðir frekar miklu. Sjálfur myndi ég velja mér Octaviu eða einhverja Toyotu ef ég væri í þessum pælingum.
allir þeir sem ég þekki sem hafa átt octaviu 2007+ hafa verið ánægðir. sjálfur átti ég octaviu 2002 með 1600cc og eina sem ég gerði var að fara með hann í smurningu og bremsur. svo átti ég passat 2004 með 1.9tdi og það fór túrbína í honum en annað var það ekki nema viðhald. Eftir að ég seldi hann fór rafkerfið eitthvað í rugl en það var afþví framrúðan var vitlaust sett í og lak slatta inn. Enginn af þessum bílum voru með mælaborð sem var eins og jólaseria og enginn af þeim með tölvuvesen.
Er svosem ekki að rengja þá sem segja að þetta séu drasl bílar, en þeir mættu koma með betri rök, og hvað þetta er sem er alltaf að bila þegar þeir eru keyrðir eitthvað af viti. Svo er það líka eins og Vlad segir, eigandinn skiptir öllu máli
Re: Hvaða bíl?

Posted:
Wed 05. Feb 2014 21:16
by Orri Þorkell
sosupabbi wrote:gunnar wrote:Eyðir Honda Accord með 2L mótor ekki bara rosalega miklu, svipað og Subaru Legacy hefur maður heyrt.
Einhverjum 12-13 lítrum.
Hugsa að þeir séu í kringum 11-12 lítrum jú, en persónulega vill ég frekar eyða 2 lítrum meira á hverja 100km ekna heldur en að vera með skodan minn alltaf á verkstæði, fyndið hvað margir vw eigendur eru með stockholm syndrome, kaupa sér alltaf nýjan og nýjan samt var gamli alltaf bilaður

og hverskonar fólk er það? hvað var að gamla bílnum? hvernig bilaði nýji bíllinn? fara þeir vel með bílana sína? vita þeir eitthvað um bíla? hver sá um viðhaldið á þeim?
er ekki að segja þetta séu góðir eða slæmir bílar það vantar bara allt sem heitir rök í þetta
Re: Hvaða bíl?

Posted:
Wed 05. Feb 2014 21:45
by 300+
Hvað með Volvo v40/50 2.0d ?