bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Þjófar á ferð.
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=64401
Page 1 of 1

Author:  ///MR HUNG [ Thu 12. Dec 2013 04:31 ]
Post subject:  Þjófar á ferð.

Einhverjum ílla uppöldum aðila fannst svakagóð hugmynd að stela þessari kastaragrind og þessum 4 kösturum með.

Ef honum finnst líklegt að hann geti notað þetta þá er það virkilega rangur misskilningur hjá honum því þessir hlutir eru orginal krómaðir og ég málaði þá svarta og merkti þá í leiðinni þannig lítið beri á því ég átti alveg von á að svona rasshaus mundi taka upp á þessu og ég þekki þetta dót úr langri fjarlægð.

Einnig mun ég sjá til þess að allir þeir sem eru með internet tengingu viti af því að þetta er þýfi.

Ef þessu verður ekki skilað á þann stað sem þetta hvarf frá þá mun sá sem verður nappaður með þetta laminn íllilega með þessari grind og vel rúmlega það!!!

Vegleg verðlaun eru í boði fyrir þann sem getur bent mér á þann sem tók þetta því okkur félagana klæjar í hnefana að útskýra fyrir honum hvernig hlutirnir ganga fyrir sig :)

Skilaboð eða 8204469 fyrir upplýsingar og fullri nafnleynd heitið að sjálfsögðu ;)

Image

Author:  Angelic0- [ Thu 12. Dec 2013 04:56 ]
Post subject:  Re: Þjófar á ferð.

Geri mér í hugarlund að þú hafir bara verið að komast að þessu rétt í þessu....

Ógeðis hyski, það fær ekkert að vera í friði :argh:

Væri samt ekkert að taka fram sér-einkenni á þessum hlutum heldur bara láta þetta birtast og ganga svo í verkin :!:

Author:  ///MR HUNG [ Thu 12. Dec 2013 05:12 ]
Post subject:  Re: Þjófar á ferð.

Nei nei þetta gerðist um helgina en ég er nú alveg pollrólegur því þetta hverfur ekki svo auðveldlega inn í hópinn.
Svo eru nú myndavélar þar sem bíllinn stendur og á eftir að fara yfir þær þannig að þetta er svosem ekki alslæmt :lol:
Ég er ekkert að fara að gefa neitt upp hvernig ég þekki þetta :wink:

Author:  fart [ Thu 12. Dec 2013 08:03 ]
Post subject:  Re: Þjófar á ferð.

Óþolandi svona lagað, en að hóta barsmíðum :x er ekki nóg um slíkt á Íslandi í dag.

En "rangur misskilningur" :D
Sorry, bara varð

Author:  ///MR HUNG [ Thu 12. Dec 2013 13:18 ]
Post subject:  Re: Þjófar á ferð.

Ekkert verið að hóta heldur bara verið að útskýra hvernig hlutirnir ganga fyrir sig :mrgreen:

Ég hef alveg núll þolinmæði fyrir svona fávitum!

Author:  Fatandre [ Thu 12. Dec 2013 14:48 ]
Post subject:  Re: Þjófar á ferð.

Persónulega ætti að taka hendina af þjófum.
Ætti allt að vera metið því segjum að maður steli mat vegna hungurs þá er fangelsi réttlætanlegt en stuldur á hlutum í hagnaðarskyni væri í mínum huga hönd höggin af aðilanum.
Maður er kannski búinn að vera safna fyrir einhverju. Fórna einu fyrir annað og svo kemur trúður og stelur því af þér.
Gerir mig alveg brjálaðan.

Author:  ///MR HUNG [ Thu 12. Dec 2013 15:05 ]
Post subject:  Re: Þjófar á ferð.

Þetta er fundið :thup:

Author:  Fatandre [ Thu 12. Dec 2013 15:11 ]
Post subject:  Re: Þjófar á ferð.

Vó.
Hef samband ef eithvað týnist hjá mér

Author:  Páll Ágúst [ Thu 12. Dec 2013 18:49 ]
Post subject:  Re: Þjófar á ferð.

Var hann laminn?

Author:  Aron M5 [ Thu 12. Dec 2013 21:44 ]
Post subject:  Re: Þjófar á ferð.

Hann er týndur.....

Author:  Zed III [ Mon 16. Dec 2013 10:39 ]
Post subject:  Re: Þjófar á ferð.

Fatandre wrote:
Persónulega ætti að taka hendina af þjófum.
Ætti allt að vera metið því segjum að maður steli mat vegna hungurs þá er fangelsi réttlætanlegt en stuldur á hlutum í hagnaðarskyni væri í mínum huga hönd höggin af aðilanum.
Maður er kannski búinn að vera safna fyrir einhverju. Fórna einu fyrir annað og svo kemur trúður og stelur því af þér.
Gerir mig alveg brjálaðan.

:argh:

Author:  Fatandre [ Mon 16. Dec 2013 13:13 ]
Post subject:  Re: Þjófar á ferð.

Zed III wrote:
Fatandre wrote:
Persónulega ætti að taka hendina af þjófum.
Ætti allt að vera metið því segjum að maður steli mat vegna hungurs þá er fangelsi réttlætanlegt en stuldur á hlutum í hagnaðarskyni væri í mínum huga hönd höggin af aðilanum.
Maður er kannski búinn að vera safna fyrir einhverju. Fórna einu fyrir annað og svo kemur trúður og stelur því af þér.
Gerir mig alveg brjálaðan.

:argh:

Eins og ég sagði, er alveg brjálaður!!

Author:  Zed III [ Mon 16. Dec 2013 13:16 ]

Myndir örugglega plumma þig vel með Kim Jong Un :roll:

Author:  Fatandre [ Mon 16. Dec 2013 17:29 ]
Post subject:  Re: Þjófar á ferð.

:lol: :lol: :lol:

Author:  Zed III [ Mon 16. Dec 2013 20:52 ]
Post subject:  Re: Þjófar á ferð.

:mrgreen:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/