bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Project - 1990 Honda Civic DX (Type-R) https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=64262 |
Page 1 of 4 |
Author: | aronjarl [ Sun 01. Dec 2013 23:26 ] |
Post subject: | Project - 1990 Honda Civic DX (Type-R) |
Sælir ákvað að setja inn myndir af því sem ég hef verið að bardúsa síðustu mánuði. Það hafa sjálfsagt einhverjir gaman að þessu. Ég hef alltaf langað til að eiga góðan Civic EF 88-91 árg. Hef fílað þetta body alveg í ræmur. Tók mig nokkra mánuði að finna rétta bílinn í þetta, en planið var að setja í hann B18C6 sem er mótor og kassi úr Honda Integra Type-R. 1800cc 190hö læst drif í gírkassa. Revar 9000+ rpm Það er svolítið mál að setja svona ofaní en ég var búin að liggja aðeins yfir internetinu og skoða þetta og fór að fá alltaf meiri og meiri áhuga á þessu. ætla láta myndirnar tala sínu máli en þetta er ekki búið ég er bara nýbúinn að geta burrað á honum. Bíllinn. 1990 Civic DX ég er þriðji eigandinn, var almálaður 2011. Test fit á felgur og búin að setja á hann rauða rönd, (felgurnar verða málaðar í öðrum lit). Mótor komin úr. Honda CRX sæti komið í farþegameginn, hitt á eftir að fara í en ég var að láta bólstra það. búið að tilla vélinni í, mikil vinna að koma þessu fyrir. Þurfti að beygja og hita hluti til að þetta rækist ekki í. síkkaði mótorinn niður aðeins svo hægt væri að loka húddinu. Integru Type-R mælaborði komið fyrir - MOMO stýri og Integru gírnhúa. ![]() Rafgeymir lagður aftur í skott ásamt búið til festingar. Setti í hann bensíndælu og lagði leiðslur fyrir það þar sem þetta var blöndungsbíll. Baldur Gíslason vel þekktur í turbo heiminum græjaði fyrir mig allar tengingar, mikill meistari. Kúl að vera með 10K á snúningmælinum. Til að fá kúplinguna til að virka þurfti að breyta töluvert þar sem þessi bíll kemur orginal með barkakúplingu en gírkassinn er með vökvakúplingu, annað hvort að fá sér braket til að nota barkakúplingu á kassan en menn mæla ekki með því. Eða breyta yfir í vökvakúplingu. Ég ákvað að smíða braket á pedalasettið sjálfur og leggja þar með vökvakúplingu í bílinn. kúplað snar virkar ![]() Þá er allt klárt í húddinu og ALLT saman virkar. Hérna er síðan test run í bleytu, svolítið riskí að spóla svona á báðum. Sérstaklega þegar það er beygja.... ![]() https://www.facebook.com/photo.php?v=10151723657487093 Á eftir að setja undir hann pústkerfi, stærri bremsur úr 93 VTi framan og aftan. Svo spæna á þessu og hafa gaman. Kem kannski með fleiri myndir þegar heildar lookið er komið á hann. Þetta er í mínum huga ''ultimate hot hatch/pocket rocket''. ![]() kv. AJH |
Author: | íbbi_ [ Sun 01. Dec 2013 23:34 ] |
Post subject: | Re: Project - 1990 Honda Civic DX (Type-R) |
þetta er awesome, þessi bíll með þessari vél verður alveg æðislegt verkfæri ![]() |
Author: | Emil Örn [ Sun 01. Dec 2013 23:41 ] |
Post subject: | Re: Project - 1990 Honda Civic DX (Type-R) |
Virkilega töff! ![]() ![]() |
Author: | srr [ Sun 01. Dec 2013 23:43 ] |
Post subject: | Re: Project - 1990 Honda Civic DX (Type-R) |
Áhugavert ![]() |
Author: | Bandit79 [ Mon 02. Dec 2013 00:00 ] |
Post subject: | Re: Project - 1990 Honda Civic DX (Type-R) |
Djöfull er flott vinnsla í þessu apparati ! ![]() ![]() |
Author: | aronjarl [ Mon 02. Dec 2013 00:08 ] |
Post subject: | Re: Project - 1990 Honda Civic DX (Type-R) |
þetta fer sennilega í kringum 13.7 út míluna. |
Author: | Aron M5 [ Mon 02. Dec 2013 00:11 ] |
Post subject: | Re: Project - 1990 Honda Civic DX (Type-R) |
Þetta er magnað. Heppinn að finna þennan civic, eflaust ekki margir til í þessu ástandi. |
Author: | saemi [ Mon 02. Dec 2013 02:57 ] |
Post subject: | Re: Project - 1990 Honda Civic DX (Type-R) |
Flott project. Þetta eru einkar smekklegir bílar, langaði alltaf í CRX á sínum tíma. Þegar maður var með hár á hausnum og Bjarni Ara var skíturinn ![]() |
Author: | sh4rk [ Mon 02. Dec 2013 03:04 ] |
Post subject: | Re: Project - 1990 Honda Civic DX (Type-R) |
saemi wrote: Flott project. Þetta eru einkar smekklegir bílar, langaði alltaf í CRX á sínum tíma. Þegar maður var með hár á hausnum og Bjarni Ara var skíturinn ![]() CRX var skemmtilegur bíll með 1,6 lítra vélinni en ekki eins gaman að sitja aftur í svoleiðis bíl ![]() En annars mjög áhugavert project |
Author: | ömmudriver [ Mon 02. Dec 2013 04:53 ] |
Post subject: | Re: Project - 1990 Honda Civic DX (Type-R) |
Virkilega flott verkefni hjá þér og þessi bíll hlýtur að vera mökkskemmtilegur í akstri með þessu krami ![]() P.s. Bróðir minn átti CRX um 97-98 og djöfull skítvann sá bíll, man þó ómögulega númerið á honum. |
Author: | Alpina [ Mon 02. Dec 2013 07:52 ] |
Post subject: | Re: Project - 1990 Honda Civic DX (Type-R) |
saemi wrote: Flott project. Þetta eru einkar smekklegir bílar, langaði alltaf í CRX á sínum tíma. Þegar maður var með hár á hausnum og Bjarni Ara var skíturinn ![]() Haha,, ók ekki B.A. á CRX ?? |
Author: | JBV [ Mon 02. Dec 2013 09:09 ] |
Post subject: | Re: Project - 1990 Honda Civic DX (Type-R) |
Alpina wrote: saemi wrote: Flott project. Þetta eru einkar smekklegir bílar, langaði alltaf í CRX á sínum tíma. Þegar maður var með hár á hausnum og Bjarni Ara var skíturinn ![]() Haha,, ók ekki B.A. á CRX ?? Jú, hans fyrsti bíll að mig minnir. Ekki amalegt fyrir 17 ára gutta að fá nýjan CRX á þeim tíma. ![]() Annars flott project hjá þér Aron Jarl. Átti sjálfur svona sjálfsk. Civic DX '88 fyrir rúmum 20 árum síðan. Fallegir og frábærir bílar. ![]() |
Author: | Mazi! [ Mon 02. Dec 2013 10:47 ] |
Post subject: | Re: Project - 1990 Honda Civic DX (Type-R) |
Þetta er án vafa áhugaverðasta verkefni í sögu BMWKrafts ![]() ![]() Geðveikt og þetta vinnur svakalega flott! |
Author: | Thrullerinn [ Mon 02. Dec 2013 10:55 ] |
Post subject: | Re: Project - 1990 Honda Civic DX (Type-R) |
Aron M5 wrote: Þetta er magnað. Heppinn að finna þennan civic, eflaust ekki margir til í þessu ástandi. Sammála.. Skemmtilegt val á bíl !! |
Author: | gstuning [ Mon 02. Dec 2013 13:26 ] |
Post subject: | Re: Project - 1990 Honda Civic DX (Type-R) |
íbbi_ wrote: þetta er awesome, þessi bíll með þessari vél verður alveg æðislegt verkfæri ![]() B18C6 er geðveikt skemmtileg vel, þetta væri daily sem ég væri til í, smella í hann Integru Type sætum (Recaro SRD) og hann væri bara bestur. |
Page 1 of 4 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |