bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Dodge RAM 3500 DRW - Nýr og endurbættur OFUR TURBO ! https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=63685 |
Page 1 of 4 |
Author: | Angelic0- [ Wed 23. Oct 2013 22:53 ] |
Post subject: | Dodge RAM 3500 DRW - Nýr og endurbættur OFUR TURBO ! |
Fannst endilega eins og ég hefði verið búinn að pósta þráð hérna en fann hann ekki... Þetta byrjaði allavega sem bíll sem að átti að endast yfir bíladaga 2010, var ógeðslega ljótur Dodge RAM 2500HD... Keypti hann í snatri afþví að hann átti að draga E39 535i á bílakerru á bíladaga það árið, en ekki varð af því þar sem að fjaðrarhengjurnar að aftan brotnuðu af ryði og eftir að ég lagaði það var fljótt tekin ákvörðun um að sjá hvort að ég gæti ekki gert "krafta cummins" trukk úr þessu... eitt leiddi af öðru og í hverju skrefinu varð hann aflmeiri og betri, þangað til að boddý-ið gafst upp og þá hófst leitin að öðru body, illa gekk að finna óryðgað eintak, og eftir að hafa misst af þessum fína RAM 3500 Dually bíl, fann ég 1500 bensín RAM sem að ég keypti og færði kramið yfir í... Var hann alltaf ætlaður sem test-tube þangað til að ég fyndi annan og fallegri hýsil fyrir kramið, hvort sem að það væri flottur Chevrolet, Ford eða Dodge, svo sprakk bremsurör og 1500 RAMinn endaði ævina á bensíndælu. Þökkum bara fyrir að enginn gangandi varð á milli eða fyrir bílnum. Um leið fer ég á stjá, finn 2006 Ford F350 kramlausan... innréttingarlausan... hásingalausan... hálf perfect, en samt ekki... en allt kom fyrir ekki... hann er ekki til sölu... Ákvað að hafa samband við þáverandi eiganda RM973 (Dually bíllinn sem að ég hafði misst af 2 árum áður) og samningar náðust um skipti á enduro hjóli sem að ég átti, og þar höfum við það, í stæðið var kominn stríheill og semi flottur DUALLY... Þá svona útlítandi: Á meðan að beðið var eftir hinum og þessum hlutum sem að vantaði uppá að klára upptekningu og smá uppfærslu á mótornum, dundaði ég mér við að sjæna greyið, pimpa hann og gera hann fínan. Setti undir hann 285/75R16 E-Load, málaði felgurnar svartar, keypti á hann ný ljós og króm hjólkoppa, hann fékk mössun og sjæningu en hann lítur c.a. svona út í dag: ![]() Keypti á hann LED afturljós frá Go-Recon: og svo á ég framljós sem að ég er ekki ennþá búinn að setja á hann en þau líta svona út: í sömu atrenu og kopparnir komu, þá mættu þessir bolir handa konunni: ![]() Mótorinn verður sá sami og ég var með í gamla 1500 bílnum síðustu bíladaga, nema í þetta skiptið aðeins uppfærður... Til að koma í veg fyrir að þetta bili aftur kortér í keppni var bætt við o-rings í heddið, sleeve-pins og block girdle... Og verður að telja að mótorinn sé orðinn sama-og skotheldur í þetta skiptið, um leið ákvað ég að taka þröskuldinn úr bílnum og seldi úr honum beinskipta kassann, og er að svo stöddu að vinna í að smíða mér sprengjuhelda skiptingu ![]() En svo að ég listi þau mod sem að hafa verið framkvæmd á mótor: BBD 60lbs Ventlagormar Haisley Machine O-Ring kit Gorilla 6BT Block Girdle & Sleeve Pin kit 4000rpm revlimit Raptor 150GPH fæðidæla DDP Stage IV spíssar P-7100 Olíuverk með 13mm dælum Fuel plate fjarlægt AFC tjúnað 20° tími á olíuverk pre-TDC Holset Super HX40 & HX60 Twin Turbo kerfi Það sem að ég er búinn að kaupa í skiptinguna er eftirfarandi; RED Alto HD Master kit Transgo SK-TFOD shift kit Sonnax Billet Accumulator og Servo Kit Wedge og Strut úr krómstáli (veit ekki hvað þetta heitir á íslensku) og TCI pönnu á skiptinguna með kæliraufum Það sem að ég á eftir að kaupa í skiptinguna til að gera hana sprengjuhelda: TCS 300M krómstál input, intermediate og output sköft 6 pinion fremri plánetugír og 4pinion aftari plánetugír er síðan að skoða triple disc Suncoast torque converter með stock stall speed... Þetta ætti að gera mér kleift að launcha á 60psi án þess að mölva allt og eyðileggja, er ekkert að flýta mér núna... ef að ég næ næsta sumri þá næ ég því... ef ekki... þá bara ekki... þetta verður 100% áður en þetta fer af stað í þetta skipti ![]() Svo er hlátursgasið tilbúið á flösku... |
Author: | íbbi_ [ Thu 24. Oct 2013 00:26 ] |
Post subject: | Re: Dodge RAM 3500 DRW - Nýr og endurbættur OFUR TURBO ! |
ánægður með að þú sért kominn með rauða, ég þekki bílinn ekkert, en hef oft séð hann, er hrifinn af þessari kynslóð af ram, og dually. facelift, cummins. þeir eru fæstir með hakað í svona mörg box. það er einmitt svartur 2000ish 24v í næstu blokk, stórt hús með afturhurðunum, svart leður, stóla og flr |
Author: | thorsteinarg [ Thu 24. Oct 2013 00:31 ] |
Post subject: | Re: Dodge RAM 3500 DRW - Nýr og endurbættur OFUR TURBO ! |
Flottur kaggi, enn finnst hann kjánalega hár, gæti verið afþví að hann er uppá kantinum ? Eða mætti fá stærri felgur ? |
Author: | Angelic0- [ Thu 24. Oct 2013 00:51 ] |
Post subject: | Re: Dodge RAM 3500 DRW - Nýr og endurbættur OFUR TURBO ! |
Hehe, kjánalega hár segja menn, þetta er pickup en ekki low-rider ![]() Hann hentar mjög fínt í það sem að hann á að gera svona eins og hann er, við skulum ekki gleyma því að bíllinn verður notaður í vinnu og daglegan akstur.... Þarf í sumum verkefnum að fara út fyrir malbik og þá er þessi hæð fín, svo dregur þetta vagninn góða líka, hann er að vigta um 5 tonn full-lestaður... En hann (vagninn) fer undir hnífinn fljótlega og verður breytt ansi skemmtilega, ég set það sennilega í þennan þráð þegar að kemur... En hvað segir þú Ívar, varst þú ekki í einhverjum pickup kauphugleiðingum fyrir veturinn ?? er ekki um að gera að banka uppá og spyrjast fyrir um þennan 24ventla ![]() Ég á nokkrar túrbínur ef að þér langar að detta í delluna, Quadzilla Adrenaline er hörku verkfæri í svona 24ventla ![]() |
Author: | íbbi_ [ Thu 24. Oct 2013 01:09 ] |
Post subject: | Re: Dodge RAM 3500 DRW - Nýr og endurbættur OFUR TURBO ! |
heyrðu jú ég var kominn með aðra höndina á 04 Hemi, sem ég hefði alveg viljað, en var í óvenju góðu skapi og endaði á eldorado ![]() |
Author: | Angelic0- [ Thu 24. Oct 2013 02:13 ] |
Post subject: | Re: Dodge RAM 3500 DRW - Nýr og endurbættur OFUR TURBO ! |
íbbi_ wrote: heyrðu jú ég var kominn með aðra höndina á 04 Hemi, sem ég hefði alveg viljað, en var í óvenju góðu skapi og endaði á eldorado ![]() Ferð ekkert í snjónum á Eldorado ![]() er ekki um að gera að skipta í Cummins ![]() |
Author: | íbbi_ [ Thu 24. Oct 2013 09:15 ] |
Post subject: | Re: Dodge RAM 3500 DRW - Nýr og endurbættur OFUR TURBO ! |
Eldo er bara inni í hlýjunni. |
Author: | gardara [ Thu 24. Oct 2013 09:56 ] |
Post subject: | Re: Dodge RAM 3500 DRW - Nýr og endurbættur OFUR TURBO ! |
thorsteinarg wrote: Flottur kaggi, enn finnst hann kjánalega hár, gæti verið afþví að hann er uppá kantinum ? Eða mætti fá stærri felgur ? ![]() |
Author: | IvanAnders [ Thu 24. Oct 2013 09:58 ] |
Post subject: | Re: Dodge RAM 3500 DRW - Nýr og endurbættur OFUR TURBO ! |
Angelic0- wrote: Og verður að telja að mótorinn sé orðinn sama-og skotheldur í þetta skiptið, Ert þú vinur hans Svenna fart? |
Author: | fart [ Thu 24. Oct 2013 12:07 ] |
Post subject: | Re: Dodge RAM 3500 DRW - Nýr og endurbættur OFUR TURBO ! |
IvanAnders wrote: Angelic0- wrote: Og verður að telja að mótorinn sé orðinn sama-og skotheldur í þetta skiptið, Ert þú vinur hans Svenna fart? hehe ![]() |
Author: | thorsteinarg [ Thu 24. Oct 2013 13:14 ] |
Post subject: | Re: Dodge RAM 3500 DRW - Nýr og endurbættur OFUR TURBO ! |
gardara wrote: thorsteinarg wrote: Flottur kaggi, enn finnst hann kjánalega hár, gæti verið afþví að hann er uppá kantinum ? Eða mætti fá stærri felgur ? ![]() hehehe nei kannski ekki alveg svona ! Finnst hann bara svo skrítinn á þessarri mynd miðað við aðra svona bíla, enn það gæti verið útaf hann er uppá kannti. ![]() |
Author: | Aron M5 [ Thu 24. Oct 2013 14:04 ] |
Post subject: | Re: Dodge RAM 3500 DRW - Nýr og endurbættur OFUR TURBO ! |
Kanski af því að það vantar alveg tonn í vélarsalinn á honum..? |
Author: | Zed III [ Thu 24. Oct 2013 14:11 ] |
Post subject: | Re: Dodge RAM 3500 DRW - Nýr og endurbættur OFUR TURBO ! |
Aron M5 wrote: Kanski af því að það vantar alveg tonn í vélarsalinn á honum..? Vélin að aftan ? |
Author: | Fatandre [ Thu 24. Oct 2013 14:59 ] |
Post subject: | Re: Dodge RAM 3500 DRW - Nýr og endurbættur OFUR TURBO ! |
Þessi er nú verulega smekklegur |
Author: | Angelic0- [ Thu 24. Oct 2013 17:12 ] |
Post subject: | Re: Dodge RAM 3500 DRW - Nýr og endurbættur OFUR TURBO ! |
Zed III wrote: Aron M5 wrote: Kanski af því að það vantar alveg tonn í vélarsalinn á honum..? Vélin að aftan ? Nei, en það vantar líka skiptingu millikassa og drifsköpt... samanlögð þyngd 770kg ![]() |
Page 1 of 4 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |