Page 1 of 4

Porsche 928 S4 árg. 1991

PostPosted: Tue 17. Sep 2013 20:48
by Spiderman
Ég lét gamlan draum rætast um helgina og keypti mér Porsche 928.

Fyrir valinu varð eitt best eintak landsins svokallaður „Vestmannaeyjabíll" en það er S4 týpa árg. 1991 (fyrst skráður í Þýskalandi 27.11.1990). Bifreiðin er sjálfskipt með 5 lítra V8 vél, vigtar 1600 kg. og er skráð 316 hestöfl.

Bifreiðin var flutt hingað til lands þann 22.9.1999 og hafði henni þá verið ekið 126.176 km. Bifreiðin hafði fengið mjög viðhald í Þýskalandi og eingöngu verið þjónustuð af viðurkenndu Porsche umboði. Innflytjandi bifreiðarinnar átti hana til ársins 2002 en þá fól hann Bílabúð Benna að annast sölumeðferð á henni. Í október það ár kom kona upp á fasta landið í þeim tilgangi að finna fertugsafmælisgjöf handa manni sínum. Mörgum árum áður hafði hún gefið manninum það loforð, er hann varð að selja muscle-car bifreið sína vegna barneigna, að þegar hann yrði fertugur þá myndi hún gefa honum sportbíl. Hún stóð við stóru orðin, keypti bifreiðina, lét setja á hana slaufu, flutti til Vestmannaeyja og færði kalli sínum á kæjanum í eyjum. Næstu 11 árin fékk bifreiðin gott viðhald hjá þeim hjónum og notuðu þau hana sem sumarbíl bæði í eyjum sem og upp á landi. Frá árinu 2010 hefur bifreiðin hins vegar lítið verið notuð og aðallega kúrt undir ábreiðu.

Síðastliðinn laugardagsmorgun fór ég, Bjartur (Guðbjartur) og Ingólfur (Bannsettur) til Vestmannaeyja í þeim tilgangi að skoða bifreiðina. Þar sem bifreiðin var óskoðuð og númer innlögð þá tókum við til öryggis með okkur bílakerru sem við skildum eftir við Landeyjarhöfn. Í Vestmannaeyjum skoðuðum við bifreiðina ítarlega og eftir að Bjartur hafði gefið henni heilbrigðisvottorð þá reynsluókum við henni við Stórhöfða. Í framhaldinu hófust viðræður við hjónin um ættleiðingu og tveimur kaffibollum síðar var ég kominn með afsal og lykla í hönd. Bifreiðinni fylgdu ýmsir hlutir eins og t.d. upprunalegu D90 felgurnar á vetrardekkjum, tölvukubbar, bremsuklossar, opið púst, Porsche málverk o.fl. Þar sem samningaviðræður höfðu staðið yfir lengi og Herjólfur í þann mund að fara þá var lítið annað að gera en að fylla ferðabílinn okkar af varahlutunum og koma 928 um borð í dallinn.

Image

Eyjaskeggjar voru að vísu ekkert sérstaklega sáttir við þetta plan okkar og hafði vélstjóri Herjólfs og nokkrir starfsmenn hafnarinnar það á orði að það væri synd að missa Skrugga úr eyjunni (bifreiðin gengur víst undir því nafni í eyjum).

Image

Image

Þegar á fasta landið var komið settum við græjuna á kerru og drógum til Reykjavíkur like a boss 8)

Image

Ég á því miður ekki fleiri myndir en ég mun bæta úr því innan tíðar. Næstu kvöld ætla ég að nota í mössun og allsherjar innréttingar- og felguþrif. Ég geri svo ráð fyrir að láta skipta um tímareim og vatnsdælu um næstu mánaðarmót en koma bifreiðinni svo í vetrargeymslu.

Re: Porsche 928 S4 árg. 1991

PostPosted: Tue 17. Sep 2013 21:02
by Emil Örn
Alveg rosalega fallegur þessi!

Er grænn af öfund hérna, til hamingju með kaupin! :D

Re: Porsche 928 S4 árg. 1991

PostPosted: Tue 17. Sep 2013 21:31
by íbbi_
til hamingju með þennan, þessir eru ansi hátt skrifaðir hjá mér

Re: Porsche 928 S4 árg. 1991

PostPosted: Wed 18. Sep 2013 00:15
by Wolf
Úff maður,,, flott combo Eydís og þessi 8) til hamingju :!:

Re: Porsche 928 S4 árg. 1991

PostPosted: Wed 18. Sep 2013 08:12
by jens
Til hamingju með æðislegan bíl

Re: Porsche 928 S4 árg. 1991

PostPosted: Wed 18. Sep 2013 08:31
by bErio
SNILLD!
Til hamingju með þetta

Re: Porsche 928 S4 árg. 1991

PostPosted: Wed 18. Sep 2013 08:36
by fart
Glæsilegt!!

til hamingju

Re: Porsche 928 S4 árg. 1991

PostPosted: Wed 18. Sep 2013 13:13
by Hreiðar
Ótrúlega er þetta fallegur bíll :thup:

Re: Porsche 928 S4 árg. 1991

PostPosted: Wed 18. Sep 2013 15:13
by Thrullerinn
Merkilegt hvað 928 verður flottari með aldrinum :thup:
Það er einn á 997 felgum hér í Reykjavik og sá ber þær felgur ansi vel, merkilegt nokk.

Re: Porsche 928 S4 árg. 1991

PostPosted: Wed 18. Sep 2013 20:16
by JOGA
Til hamingju.
Virkilega flottur.

Mig langar í Porsche :cry:

Re: Porsche 928 S4 árg. 1991

PostPosted: Wed 18. Sep 2013 23:50
by Spiderman
Ég þakka fyrir kveðjurnar, er alveg í skýjunum með bílinn.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir eftir bónsession kvöldsins:

Image

Image

Image

Image

Image

Image

Re: Porsche 928 S4 árg. 1991

PostPosted: Wed 18. Sep 2013 23:52
by bimmer
Til hamingju með þennan - virðist vera í verulega góðu standi.

Re: Porsche 928 S4 árg. 1991

PostPosted: Thu 19. Sep 2013 10:21
by íbbi_
já virkar alveg djöfull heill, og er alveg stórglæsilegur svo ekki sé meira sagt.

Re: Porsche 928 S4 árg. 1991

PostPosted: Thu 19. Sep 2013 22:15
by Alpina
Illa svalt 8)

Re: Porsche 928 S4 árg. 1991

PostPosted: Thu 19. Sep 2013 23:02
by Axel Jóhann
Þennan bíl hef ég nú oft séð, gott ef það er ekki annað háspennukeflið í honum úr gamla BMW mínum sem ég seldi honum fyrir einvherjum árum síðan. :santa: Til hamingju, ég hélt að hann Andrés myndi nú ekki selja þennan. :thup: