bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hvernig bíl myndir þú kaupa í USA? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=62888 |
Page 1 of 4 |
Author: | batti [ Mon 26. Aug 2013 16:47 ] |
Post subject: | Hvernig bíl myndir þú kaupa í USA? |
Ætla að teikna upp aðstæður og langar mig að sjá hvað þið mynduð gera í þessum aðstæðum. Hvernig bíl myndir þú kaupa þér í USA? 25.000$ sem budget. Þetta yrði í Californiu svo að veðrið er yfirleitt til fyrirmyndar. Fyrir mér eru þetta barátta á milli skynsemi og skemmtanagildis. Reyna að finna gullna meðalveginn og sameina þetta. Eina sem mér er sama um er bensíneyðsla. 50% af verðinu á íslandi og um að gera að njóta þess að eiga bensínhák. Nokkrir hlutir sem þyrfti að hafa í huga. Því þetta yrði eini bíll heimilsins og því notaður í daglegt amstur. Hann þarf t.d. að fara í gang án þess að opna húddið. 2 einstaklingar sem nota hann og því ekkert must að hann sé eitthvað ofur fjölskylduvænn. Gott væri ef menn myndu aðeins hugsa útfyrir BMW og reyna að setja sig í þessar aðstæður. Akstur: Þetta þyrfti að hafa í huga í sambandi við viðhald o.s.frv. Tegund: Bíllinn þyrfti að meika sens í rekstri, maður verður að hafa efni á því að bremsa og keyra. Aldur: Viltu eiga 2007-2013 árgerð eða ertu tilbúinn að díla við það sem fylgir því að eiga eldri bíla. 2 sæta/dyra vs 4 sæti/hurðar: Ef það koma gestir eða þú þarft að skuttla vinafólki. Pæliru í það? Fun vs notagildi: Ferð í ferðalag, fer vel um þig í bílnum á langkeyrslu? veghljóð, þéttur o.s.frv. Beinskipt/Sjálfskipt: beinskipt vissulega gaman af ákveðnum bílum, en að bíða í röð til að borga vegadolla eða bara í downtown traffík er algjört rassgat til lengdar á beinskiptum. jeppi vs fólksbíll: vissulega næs að eiga jeppa en semi óþarfi að vera á 4x4 við þessar aðstæður 360 daga ársins. 4x4 vs rwd/fwd. Eyðslan sem fylgir 4x4 vs það að geta verið á afturdrifnu allan ársins hring. http://sfbay.craigslist.org/cta/ - Hérna er barnaland þeirra bandaríkjamanna og hægt væri að slá inn eitthvað til að átta sig á gangverði bíla á svæðinu, því það er vissulega hærra í CA eins og flest allt annað í samanburði við aðra staði í USA. Verð á sportbíl í minnesota er irrelevant í þessu tilfelli. Nokkur dæmi; Ford mustang gt premium 2006-2007 - 15.000-22.000$ bsk/ssk? Bandaríkt, ódýrt viðhald, en mikið harðplast og brak og brestir sem því fylgir. 2 dyra en þó bærilegt til að redda 4 á milli staða. Honda S2000, árg.2000-2007 - 10.000-25.000$ - 2 dyra, 2 manna, beinskiptur, mögulega blæju. Getur ekki tekið 2 töskur út á flugvöll einu sinni. BMW 645 coupe, árg.2004-2005 20.000-25.000$ - 2 dyra, ssk, pláss fyrir 4. Þægindi en samt sprækur. BMW 335 e90 eða e92, árg.2007-2009 25.000$ - rosa fjör, alveg á budgeti samt. Viðhald? Porsche 911 996, árg 2001-2004 22.000-25.000$ - orðnir gamli, daldið eknir til að falla undir budget. Dýrt í rekstri í mikilli notkun. Nógu gaman til að réttlæta það? Augljóslega ekki turbo fyrir þetta budget. Yrði all show, no go. SRT8 bílarnir eldri: charger, 300c, magnum - 15.000-25.000$ - Mikið pláss, USA og ódýrir varahlutir, ekki mest kosy bílar að innan en vissulega mikið power og en allt drullu hrátt, meira að segja aflið. Brakar og brestur í innréttingum og svona. Challenger RT, Camaro SS: 22.000$+ - alveg á budget, nýlegir bílar og hef ég 0 reynslu af þeim en virkar sem eitthvað sem gaman væri að prófa að eiga. Lítið pláss afturí, en þó möguleiki að koma fleiri en tveim farþegum. BMW e60 M5: árg.2005-2006 23.000$+ - Alveg á budget, dýrt í rekstri og dáldið eknir til að fást á þessu verði. Verður viðhaldsfaktorinn stærri en skemmtanagildið. Hefur pláss, kraft og í raun allt. En að ég tel langt frá því að vera skynsamt. BMW e46 M3: 15.000$+ - Hægt að finna fín eintök af þannig með því að fara langt með að maxa budgetið. En vissulega gamlir M bílar og kannski full viðhaldsfrekir fyrir daglega notkun? Benz nýji C-class: árg.2007-2010 - 20.000$+ - flottir, praktískir, nýlegir, þýsk gæði og mun meira kósý en USA bílar. BMW 5 series e60: 2005+ - 15.000$+ - Mikið til af hinum ýmsu týpum og margir mjög vel búnir og snyrtilegir. Skynsamt og flott en skemmtanagildið? Uppástungur? Hvað myndir ÞÚ gera? |
Author: | fart [ Mon 26. Aug 2013 17:00 ] |
Post subject: | Re: Hvernig bíl myndir þú kaupa í USA? |
E60M5 ![]() |
Author: | batti [ Mon 26. Aug 2013 17:04 ] |
Post subject: | Re: Hvernig bíl myndir þú kaupa í USA? |
fart wrote: E60M5 ![]() worth it ef þetta er ekið 60.000 mílur+ að þínu mati í daily drive? Jafnvel meira. 90k miles. En mikið ofboðslega er þetta fagurt. http://sfbay.craigslist.org/sfc/cto/4016477399.html |
Author: | bjarnim [ Mon 26. Aug 2013 17:40 ] |
Post subject: | Re: Hvernig bíl myndir þú kaupa í USA? |
Rosa neikvæður á viðhaldi á bmw ![]() |
Author: | rockstone [ Mon 26. Aug 2013 17:45 ] |
Post subject: | Re: Hvernig bíl myndir þú kaupa í USA? |
af þessu myndi ég velja e60 m5 eða e46 m3 ![]() |
Author: | batti [ Mon 26. Aug 2013 17:46 ] |
Post subject: | Re: Hvernig bíl myndir þú kaupa í USA? |
bjarnim wrote: Rosa neikvæður á viðhaldi á bmw ![]() Það er nú ekkert launungarmál að viðhald á M kostar. Kostar vissulega minna úti, en mun alltaf kosta $$$. Ég minntist reyndar á það við e60, sem er nú ofmat af minni hálfu viðurkenni ég. Þá var ég aðallega að tengja það við aldur bílsins en ég hef svosem ekki orðið var við mikið af viðgerðum á e60 sem þarf að hafa áhyggjur af. |
Author: | Benzari [ Mon 26. Aug 2013 17:54 ] |
Post subject: | Re: Hvernig bíl myndir þú kaupa í USA? |
M.B. E500 / 500E http://cgi.ebay.com/ebaymotors/200931963909 ![]() |
Author: | Alpina [ Mon 26. Aug 2013 18:11 ] |
Post subject: | Re: Hvernig bíl myndir þú kaupa í USA? |
Benzari wrote: M.B. E500 / 500E ALGERLEGA,,,,,,,,, en samt hef ég minimal áhuga á eurocar sem er usa-spec ![]() |
Author: | Geysir [ Mon 26. Aug 2013 18:34 ] |
Post subject: | Re: Hvernig bíl myndir þú kaupa í USA? |
Það yrði einhvað svona: http://sfbay.craigslist.org/sfc/cto/4025422044.html Eða teygja budgetið aðeins og: http://sfbay.craigslist.org/sfc/cto/3980292870.html Myndi ekki spá í sætafjölda, alltaf hægt að leigja bíl ef það kemur einhver í heimsókn og það þarf að ferja fleiri, hræódýrt. |
Author: | íbbi_ [ Mon 26. Aug 2013 18:39 ] |
Post subject: | Re: Hvernig bíl myndir þú kaupa í USA? |
fyrir 25þús dollara fengi ég mér sl/s class benz með v12 biturbo |
Author: | gardara [ Mon 26. Aug 2013 19:46 ] |
Post subject: | Re: Hvernig bíl myndir þú kaupa í USA? |
2010 Camaro SS |
Author: | Daníel Már [ Mon 26. Aug 2013 23:49 ] |
Post subject: | Re: Hvernig bíl myndir þú kaupa í USA? |
E90 m3 eða 335i biturbo |
Author: | batti [ Tue 27. Aug 2013 00:37 ] |
Post subject: | Re: Hvernig bíl myndir þú kaupa í USA? |
Daníel Már wrote: E90 m3 eða 335i biturbo e90/e92 M3 er alveg 10-15k over budget. Enda komu þeir þeir elstu 2008 og því full nýjir fyrir þetta verð. 2005 e60 M5 rétt slefar þarna inn mikið eknir. |
Author: | srr [ Tue 27. Aug 2013 00:56 ] |
Post subject: | Re: Hvernig bíl myndir þú kaupa í USA? |
E28 M5 og henda stuðurunum út í sjó um leið. Senda svo bílinn til Íslands. |
Author: | Aron Fridrik [ Tue 27. Aug 2013 01:06 ] |
Post subject: | Re: Hvernig bíl myndir þú kaupa í USA? |
Infiniti G37s Coupe Nóg power Næg þægindi Ábyrgð til 2016 Undir budget Tekur 4 farþegar Flottur Er í réttu fylki http://sfbay.craigslist.org/sby/cto/4022148250.html |
Page 1 of 4 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |