Mest of topic ever ! GE Turbine Engine for Airbus A380

Posted:
Wed 02. Jun 2004 20:09
by hostage
Sælir allir !
Ég veit að þetta er mjög of topic, en ég veit að við flest allir höfum gaman að öllu sem er kraftmikið
Þess vegna langaði mig bara að deila þessum myndum af komandi mótor frá GE sem nú er í test run-um á 747 vél með ykkur.
Þessi nýji GE mótor á að prýða nýju
airbus A380 vélarnar. Notaðir verða 4 mótorar á hana.
Eins og sést er stærðarmunurinn soldill á GE mótornum sem nú eru notaðir á 747 vélunum og þessum nýja. Þess má geta að áður en tekið er á loft með hann þarf að "dauðhreinsa" flugbrautina algerlega því þessi mótor er cirka "fed" frá jörðu þanni að hann breytist í ryksugu um leið og lagt er á hann. Og talandi um það þá þarf eingöngu að nota 1/3 af afli nýja mótorsins á móti báðum hinum mótorunum við flugtak, meðan mótorin sem er við hlið nýja GE mótorsins er dauður.
Svona til viðmiðunar þá eru 747 GE mótorarnir að búa til cirka 60K lbs/thrust meðan þessi nýju GE mótorar eiga víst að vera rate-aður í kringum cirka 125K lbs/thrust!
*Myndir innanlands*


Posted:
Wed 02. Jun 2004 20:12
by Kristjan
Nennirðu að breyta þessum bmp myndum í jpg... mun léttari í vinnslu


Posted:
Wed 02. Jun 2004 21:53
by Haffi
ég elska svona off topics


Posted:
Wed 02. Jun 2004 22:13
by Kristjan
þessir ráða nú við nokkra máva

Posted:
Wed 02. Jun 2004 22:23
by gunnar
Pant fá að strappa þetta við bimmann minn
Eitthver til í kvartmílu


Posted:
Wed 02. Jun 2004 22:24
by Alpina
-------
))))))
///////
,,,,,,,,,,,,,,,,,,Þetta var ,,,,BARA,,,flott

Posted:
Thu 03. Jun 2004 09:10
by Jss
Skrýtið að sjá þetta svona, en alltaf gaman að svona löguðu.


Posted:
Thu 03. Jun 2004 09:21
by Twincam
THAT THING IS
HUGE!!!
Shit hvað þetta er stórt.. og að ráða við nokkra máva? Gætir fleygt strútahjörð þarna inn án þess að það breytti nokkru!


Posted:
Thu 03. Jun 2004 09:24
by bebecar
Flýgur hún ekki bara í hringi ef hún er með einn svona stórann á ÖÐRUM vængnum


Posted:
Thu 03. Jun 2004 09:32
by Jss
bebecar wrote:Flýgur hún ekki bara í hringi ef hún er með einn svona stórann á ÖÐRUM vængnum

Neibb, þessi eini stóri er notaður á móti tveimur "litlum" hinum megin.