bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Leikur þar sem þú smíðar þinn eigin bíl og vélar https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=62279 |
Page 1 of 1 |
Author: | ppp [ Fri 05. Jul 2013 17:42 ] |
Post subject: | Leikur þar sem þú smíðar þinn eigin bíl og vélar |
Ég ákvað að pósta þessu hérna frekar en í leikjaþræðinum, þar sem þetta höfðar kannski til fleiri hérna en bara leikjanörda. Allavega, ég rakst á link á þennan "leik" á Live2cruize og ákvað að prófa, og ég verð að segja að hann kom mér vel á óvart. Ég segi "leik" því að þetta er allt í vinnslu hjá þeim, og leikurinn sjálfur er ekki tilbúinn, en maður getur samt sem áður downloadað demoinu, smíðað vélar og testað þær. Fínt skemmtun, og þeir útskýra allt mjög vel, þannig að ég lærði líka hitt og þetta. Kom mér líka vel á óvart hvað tölurnar virðast ekki vera algjört bull í þessu. Ég t.d. fann specs fyrir M54B30 (330i E46) og ákvað að smíða eina svoleiðis vél, og sjá hvaða tölur ég fengi. Alvöru M54B30 er: 231hp @ 5900 RPM 300Nm @ 3500 RPM Og það sem ég fékk í leiknum er: 224hp @ 6200 RPM 295Nm @ 3000 RPM Og ég er viss um að með smá tweaks þá væri hægt að fá þessi extra hestöfl og eflaust gott betur. ![]() Allavega, downloadið er hérna: http://automationgame.com/ og það kostar ekki nema 25 dollara að preordera, sem ég gerði, og það unlockar V8, I6 og turbochargers fyrir demoið -- og svo auðvitað fulla leikinn þegar hann klárast. Mæli með þessu! |
Author: | íbbi_ [ Fri 05. Jul 2013 21:49 ] |
Post subject: | Re: Leikur þar sem þú smíðar þinn eigin bíl og vélar |
þetta er brilliant, ég hef ekki keypt fulla útgáfu en búinn að hafa mjög gaman af demoinu, sá þetta einhverstaðar á netinu fyrir stuttu og náði í þetta. maður er að ná vélum þarna í yfir 100hö/liter ![]() |
Author: | ppp [ Fri 05. Jul 2013 23:40 ] |
Post subject: | Re: Leikur þar sem þú smíðar þinn eigin bíl og vélar |
íbbi_ wrote: þetta er brilliant, ég hef ekki keypt fulla útgáfu en búinn að hafa mjög gaman af demoinu, sá þetta einhverstaðar á netinu fyrir stuttu og náði í þetta. maður er að ná vélum þarna í yfir 100hö/liter ![]() Ekki svo gott hjá mér. Ég reyndi að búa til turbocharged Ecoboost eins lítra vél, en endaði á einhverju 60 hestafla rusli sem mengaði svipað og 330i vélin. ![]() |
Author: | íbbi_ [ Sat 06. Jul 2013 00:26 ] |
Post subject: | Re: Leikur þar sem þú smíðar þinn eigin bíl og vélar |
ég er ekki með aðgang að 6cyl og turbo, en ég er með 2.1l línu fjarka sem ég er búinn að ná í rúm 260hö, og 227hö á pumpubensíni með þolanlegan ás og þjöppu, svo er ég með 1400 mótor sem ég á líka ýmsa varianta af, búinn að ná henni í tæp 200hö, og 160hö ish með fullu pústi, hvarfakútum, littlum-ish ás á 91oct. |
Author: | ppp [ Sat 06. Jul 2013 01:07 ] |
Post subject: | Re: Leikur þar sem þú smíðar þinn eigin bíl og vélar |
Virkilega töff btw hvernig þeir leyfa manni að búa til boddýið á bílnum sjálfum. Fólk hefur verið að smíða allskonar með þessu kerfi þeirra: ![]() ![]() ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |