Page 1 of 1

Danmörk

PostPosted: Sun 30. Jun 2013 00:31
by AronT1
Sælir vinir,


Er að fara til DK núna í Júlí, hef ekki nennt að sækja um fullnaðarskírteini og er enþá með brágðabyrgða skrírteinið.
Verð ég að vera með fullnaðar til að geta keyrt löglega í norðurlöndunum eða hvernig virkar þetta? og er dýrt að leiga sér bíl í DK ?

Re: Danmörk

PostPosted: Sun 30. Jun 2013 01:43
by Danni
Fullt af tíma til að sækja um fullnaðar. Do it while you still can!

Ég var tekinn 3 dögum eftir að ég fékk fullnægðarskírteini. Hefði ég beðið aðeins lengur hefði ég þurft að vera á bráðarbirðga ár í viðbót :D

Re: Danmörk

PostPosted: Sun 30. Jun 2013 01:46
by Misdo
ég býst við því að þú þurfir fullnaðarskírteini

Re: Danmörk

PostPosted: Sun 30. Jun 2013 10:08
by Twincam
Ég myndi halda að það sakaði ekki að vera með fullnaðarskírteini.


Og bílaleigubílar eru að sjálsögðu misdýrir eftir því hvern þú verslar við.
Getur t.d. leigt bíl hjá www.lejetlig.dk ,þeir eru með eldri bíla og misgóða og misfallega.
En ódýrari fyrir vikið.

En svo er aftur á móti spurning hvort þú getir leigt bíl yfirhöfuð, það er að segja, ef þú ert
undir 25 ára.

Re: Danmörk

PostPosted: Sun 30. Jun 2013 19:11
by Alpina
Twincam wrote:Ég myndi halda að það sakaði ekki að vera með fullnaðarskírteini.

.

En svo er aftur á móti spurning hvort þú getir leigt bíl yfirhöfuð, það er að segja, ef þú ert
undir 25 ára
.


Sem er algerlega málið,,,,


ef hægt er að leigja bíl ,,undir þeim aldri,,, er verðið ævintýralega mikið hærra,,, oftast nær

Re: Danmörk

PostPosted: Sun 30. Jun 2013 23:40
by Daníel Már
Efast um að það sé hægt að leigja bíl undir 25, er ekki viss enn já ef svo þá verður það DÝÝÝÝRT!

Allavega það er 25 ára reglan í USA.

Re: Danmörk

PostPosted: Mon 01. Jul 2013 00:40
by olinn
Daníel Már wrote:Efast um að það sé hægt að leigja bíl undir 25, er ekki viss enn já ef svo þá verður það DÝÝÝÝRT!

Allavega það er 25 ára reglan í USA.


Skoðaði þetta þegar ég var að hugsa um smá road trip um evrópu í sumar.
21-24 ára þurfa að borga um 30 evrur á dag aukalega !
Ég var fljótur að hætta við, auka 100k fyrir þrjár vikur :santa:

Re: Danmörk

PostPosted: Mon 01. Jul 2013 21:39
by Jss
Daníel Már wrote:Efast um að það sé hægt að leigja bíl undir 25, er ekki viss enn já ef svo þá verður það DÝÝÝÝRT!

Allavega það er 25 ára reglan í USA.


Það er reyndar ekki rétt með 25 ára regluna í USA, reyndi ekki sjálfur að leigja bíl þar en bróðir minn leigði bíl þar í tvær vikur þegar hann var 22 ára. Hef sjálfur leigt bíl þar en skv. skilmálum þá þurfti að greiða aukalega ef ökumaður væri undir 25 ára og þar var um "premium" bíl að ræða.

Re: Danmörk

PostPosted: Wed 03. Jul 2013 01:45
by SteiniDJ
Ég er 23 ára (1989) og var í USA í mars og tók mér bíl á leigu:

Image

Chrysler 300C, 2013 árgerð, ekinn um 200 km. 5.7L vél ef ég man rétt, gjörsamlega hlaðinn af aukabúnaði (með _öllu_, meira að segja loftkæld sæti og upphitaðir/kældir cupholders).

Fyrir þennan bíl borgaði ég um 12.500 krónur íslenskar / dag, og þeir komu með bílinn á hótelið til mín. Underage gjaldið var $25, man ekki hvort það var á dag eða sólahring.

Re: Danmörk

PostPosted: Wed 03. Jul 2013 02:36
by ömmudriver
Hjá hvaða bílaleigu var þetta?

Re: Danmörk

PostPosted: Wed 03. Jul 2013 03:25
by SteiniDJ
Enterprise, ef ég man rétt.

Talaði bara við concierge deginum áður um að ég þyrfti bílaleigubíl og vildi eitthvað almennilegt. Þeir eru með ágætis sambönd og redda yfirleitt góðum prísum og í þetta skiptið var það á betra verði en t.d. hotwire.com :)

Re: Danmörk

PostPosted: Wed 03. Jul 2013 20:10
by ömmudriver
SteiniDJ wrote:Enterprise, ef ég man rétt.

Talaði bara við concierge deginum áður um að ég þyrfti bílaleigubíl og vildi eitthvað almennilegt. Þeir eru með ágætis sambönd og redda yfirleitt góðum prísum og í þetta skiptið var það á betra verði en t.d. hotwire.com :)



Já Enterprise leigan er helvíti góð :thup:

Re: Danmörk

PostPosted: Sun 14. Jul 2013 13:04
by auðun
Eg leigði bil hja budget i danmörku. Honda crv 2013 og underage gjaldið var sirka 2000 kall dagurinn rumur

Re: Danmörk

PostPosted: Sun 14. Jul 2013 14:16
by Haffer
kannadi thetta thegar eg fekk bilprofid og ætladi keyra i dk, en eg thurfti hafa fullnaðarskírteini.. thad var I 2009, veit ekki hvernig thetta er nuna samt