ég sem hef nú eytt ófáum stundum í að drulla yfir breska bíla. og flestir þeirra áttu og eiga ekkert annað skilið
ég hinsvegar er haldin ansi miklu blæti fyrir vissum bílum frá bentley
þá sérstaklega Arnagae, en BMW voru rolls royce innan handar í hönnun þessara bíla. silver seraph og arnage voru báðir með bmw kram og rafkerfi. silver seraph með m73 og zf5hp30 og arnage með m62b44TU með twin turbo set-up frá cosworth.
miðstöð. allir takkar og margt flr er svo beint úr E38/E39/E46. þetta er ekki ósvipað 02-12 range rover.
það er í raun merkilegt að í dag er bentley rolls. og rolls er nýtt fyrirtæki sem er satt að segja ekki hægt að tengja við það gamla á margan hátt. vw keypti í raunini rolls royce með manni og mús en svo kom upp úr kafinu að rolls royce flugvélaframleiðandinn átti réttinn á bæði nafninu og grillinu/merkinu. bmw keypti réttinn á brot af því sem að vw greiddi.
vw sat þá í raunini eftir með allt nema réttinn til að setja nafnið á bílana, og bentley og rolls voru í þokkabót samningsbundnir bmw upp á vélar og búnað bílanna, þetta endaði með samningum á milli bmw og vw sem endaði með að bmw byggðu nýjar verksmiðjur frá grunni og fóru sjálfir að framleiða rolls, vw losnaði á örfáum árum undan samningunum við bmw og fóru að framleiða vw pheaton í 2 og 4 dyra útfærslum undir merkjum bentley (continental/flying spur) og arnage fékk aftur gömlu 6.3/4l bentley vélina,
ARNAGE green label 98-01 eru með m62B44TU twin turbo. eftir að vw tekur yfir kemur strax arnage Red label sem er með bentley mótornum.
það sést kannski ágætlega hversu miklir bílar þetta eru að rolls royce silver seraph með m73 er talin alveg sérlega afllaus bíll og mikill sleði. arnage með twin turbo m62 er talsvert hægari en normal E38 740 bíll.
arnage með bentley turbo mótornum togar 700nm+ í sínu minnsta formi og skilar þeim vel áfram, en gaman af því að arnage með honum er gefinn upp með hátt í 30l/100 í innanbæjar akstri.
arnage

minn uppáhalds bentley er svo 09-11 brooklands. 2.7tonna 5.6m langur coupe. sem orkar svipað og E39 m5 og kostar í flestum tilfellum um og yfir 400þús evrur nýr. eftir top gear þá sáust nokkur video á youtube þar sem menn raunverulega sannreyndu að það náðist ekki talstöðvarsamband inn í honum

