Dabbi kaddlinn

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Dabbi kaddlinn

Postby jonthor » Wed 19. May 2004 14:08

Þó Dabbi sé orðinn þreyttur, bitur, sífellt að gera meiri vitleysu og líklega búinn með sitt skeið í þjóðarpólitíkinni þá verð ég bara að taka undir orð baggalúts. Það er auðvelt að gleyma því góða sem menn hafa gert:

Nú er mér nóg boðið. Ég sit ekki lengur undir þessu fretblandna málæði öllu sem beint er að forsætisráðherra lýðveldisins. Að menn skuli voga sér. Að menn skuli dirfast.

Mér verður hreint út sagt ómótt af að líta inn í sali hins háa Alþingis og sjá þessa úrkynjuðu undanrennukrata og upplituðu roðamaura sperra sig þar upp á afturlappirnar, gjárífaða og fyllta eldmóði. Heimtandi höfuð Davíðs og útlimi alla á fati. Það held ég að þessi naðurtyngda hræsnisklíka öll ætti fremur að lúta höfði og kyssa bæði hnúa hans og tær, áður en hún spænir burt á ríkisstyrktum jeppunum í margmánað sauðburðarleyfið.

En nei. Þess í stað ryðst þetta hyski fram, æpandi ókvæðisorð að þeim sama manni og hefur rifið þessa þjóð áfram og upp á við, snýtt henni og skeint - og dröslað henni, nánast upp á sitt einsdæmi, yfir aldamótin sómasamlega útlítandi og frjálsri.

Já, því á meðan Evrópa hniprar sig getulítil og undanskorin saman í blóðugri bakraufinni milli austurs og vesturs - skagar Ísland enn fram líkt og stolt varta á hlaunum heimsins.

Og hverjum er það að þakka? Davíð Oddssyni.

Því segi ég áfram Davíð - og Davíð áfram.


http://www.baggalutur.is/rit.php?t=skrif&teg=1&id=476

Það er kannski fullsterkt að segja að ég taki undir orðin en inntakið tek ég sannarlega undir.

Frá fyrstu hendi get ég staðfest hvað Evrópa er langt á eftir Íslandi bara nánast nokkrum áratugum að sumu leyti. Lífsgæði á Íslandi eru ótrúlega góð og í tíð Davíðs hefur kaupmáttur launa láglaunafólks hækkað um 50%, meðalkaupmáttur um 27% á meðan OECD ríkin eru nærri 10%. Á meðan hafa skuldir ríkisins minnkað gríðarlega.

Rétt er að þeir ríku hafa orðið ríkari en þeir fátæku hafa orðið hlutfallslega enn ríkari. Þetta er bottom line, þetta er það sem skiptir mestu máli. Ekki að einhverjir ríkisbubbar hafi getað keypt sér flottari jeppa, heldur að einstæðar mæður hafi átt meiri möguleika á að kaupa sér bíl yfir höfuð. (bíll verandi þessi fína myndlíking, enda við hæfi á þessum vef :lol: )
Last edited by jonthor on Wed 19. May 2004 14:32, edited 1 time in total.
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby bebecar » Wed 19. May 2004 14:16

Það versta er að ég held að Baggalútsmenn séu nú samt að grínast :naughty:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby jonthor » Wed 19. May 2004 14:28

Þú ert að rugla saman fréttagreinunum og forystugreinum, kíktu á síðuna. Fréttagreinarnar eru kaldhæðnisfullar og alltaf grín og alltaf mjög skemmtilegar. Forystugreinar eru öfgafull læti um allt og ekkert, en yfirleitt smá hint af málefnaleika. Það er ástæða fyrir því að þær greinar eru ekki í sama flokki og fréttir :D

Hér eru nýjust forystugreinarnar:

http://www.baggalutur.is/skrif.php?teg=1&t=skrif
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík

Postby bebecar » Wed 19. May 2004 14:33

Ach so - það er svo langt síðan ég hef kíkt þarna :lol:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby jonthor » Wed 19. May 2004 14:35

Ég editaði líka smá, það er jú fullsterkt að segjast taka undir þessi orð :D -frekar innihaldið :D
User avatar
jonthor
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1638
Joined: Fri 14. Mar 2003 16:41
Location: Reykjavík


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 70 guests