Langaði til að athuga hvort að menn gætu aðstoðað mig aðeins með spólvarnarvesen? á volvo s40.
Ég fór semsagt með bíl frænku minnar á ónefnt verkstæði í hjólaleguskipti bílstjóramegin framan þegar ég var með bílinn hennar í láni síðustu jól. Eftir viðgerðina þá er eins og oft þegar maður er að taka af stað, í venjulegum akstri, fullkomnum aðstæðum og mögulega helst í hægri beygju/brekku þá missir bíllinn allan kraft, semsagt eins og spólvörnin kötti á aflið.
Þrátt fyrir þetta er oft hægt að taka vel hressilega af stað án þess að spólvörnin taki inní.
Frænka mín talaði við brimborg eftir þetta og þeir vildu meina að þetta væri því að verkstæðið hafi sett ranga hjólalegu í. Hún fer þá á verkstæðið þar sem var skipt um þetta en þeir vilja meina að það sé ekki rétt. Hringja í brimborgar manninn og þá dregur hann úr því að þetta sé pottþétt ástæðan.
Verkstæðismaðurinn tekur góðan rúnt á bílnum til að finna þetta sjálfur en þá gerist auðvitað ekkert. En þennan dag kemur þetta samt 5 sinnum fyrir á meðan frænka mín er að keyra eftir að hún var á verkstæðinu.
E-r hugmyndir hvað geti verið í gangi??



