Page 1 of 3

Davíð gunga og drusla :)

PostPosted: Fri 14. May 2004 15:31
by Haffi
mms://media.straumar.is/ruv/1405.wma << opnist í mediaplayer

PostPosted: Fri 14. May 2004 15:55
by Heizzi
snilld :!: maðurinn er algjör TÖFFARI 8)

PostPosted: Fri 14. May 2004 16:06
by BMW3
ójá hann er það þetta er Steingrímur helvíti góður nágranni :)

PostPosted: Fri 14. May 2004 16:12
by Heizzi
BMW3 wrote:ójá hann er það þetta er Steingrímur helvíti góður nágranni :)


Já, þú átt semsagt heima í Þingaselinu eða þar um slóðir. Steingrímur var nágranni minn í rúman áratug í Brekkuselinu.... skemmtileg tilviljun... ef tilviljun skyldi kalla.... :)

PostPosted: Fri 14. May 2004 16:27
by Svezel
Mér finnst þetta nú þessum þingmanni til ekki framdráttar að vera með svona orðbragð á Alþingi og alls ekki við hæfi.

PostPosted: Fri 14. May 2004 16:29
by bebecar
Svezel wrote:Mér finnst þetta nú þessum þingmanni til ekki framdráttar að vera með svona orðbragð á Alþingi og alls ekki við hæfi.


Sama segi ég, alveg jafn lágkúrulegt að hin fleygu orð afmælisbarns dagsins.

PostPosted: Fri 14. May 2004 16:35
by Heizzi
Við hæfi og ekki við hæfi.... :roll:

Auðvitað er þetta honum engan veginn til framdráttar en annað eins hefur nú fengið að fjúka á þinginu, og mergur málsins er sá að þetta er sagt í hita leiksins án þess að nokkur eiginleg meining sé að baki...

Ef þingmenn væru dæmdir fyrir allt sem þeir hafa látið út úr sér í ræðustól þá ættu þeir stóran dóm yfir höfði sér.....

PostPosted: Fri 14. May 2004 16:37
by arnib
bebecar wrote:
Svezel wrote:Mér finnst þetta nú þessum þingmanni til ekki framdráttar að vera með svona orðbragð á Alþingi og alls ekki við hæfi.


Sama segi ég, alveg jafn lágkúrulegt að hin fleygu orð afmælisbarns dagsins.


Hver er það, og hver voru þau?

(ég er alveg úti kuldanum hérna :o )

PostPosted: Fri 14. May 2004 16:42
by bebecar
arnib wrote:
bebecar wrote:
Svezel wrote:Mér finnst þetta nú þessum þingmanni til ekki framdráttar að vera með svona orðbragð á Alþingi og alls ekki við hæfi.


Sama segi ég, alveg jafn lágkúrulegt að hin fleygu orð afmælisbarns dagsins.


Hver er það, og hver voru þau?

(ég er alveg úti kuldanum hérna :o )


Á ekki Ólafur Ragnar afmæli í dag? Orðin voru "skítlegt eðli" eins og frægt er orðið :wink:

Nei, það eru ekki margir sem hafa látið svona orðbragð frá sér fara og ég man í fljótu bragði bara eftir þessum tveimur kommum.

PostPosted: Fri 14. May 2004 16:49
by jth
Heizzi wrote:annað eins hefur nú fengið að fjúka á þinginu, og mergur málsins er sá að þetta er sagt í hita leiksins án þess að nokkur eiginleg meining sé að baki...


Ég hefði áhuga á að vita hvað hafi áður verið sagt í þingræðu sem jafnast á við þessi ummæli! Ef ræður þingmanna standa saman af ummælum sem eru "...sögð í hita leiksins og án þess að nokkur eiginleg meining sé að baki..." þá held ég að við þurfum heldur betur að endurskoða kjör okkar á leiðtogum landsins.

Steingrímur hefur þótt skemmtilegur ræðumaður og vel máli farinn - en ummæli sem þessi eru fyrir neðan allar hellur.
Staðreyndin er raunar sú að þetta dregur allan mátt úr málflutningi hans, hann hefur fyrirgert öllum frekari viðræðum milli sín og Davíðs hvað þetta mál varðar.

PostPosted: Fri 14. May 2004 16:50
by arnib
En hvar var Davíð þegar þetta átti sér stað?

Og af hverju mætti hann ekki til að ræða málin?

PostPosted: Fri 14. May 2004 16:53
by Kull
Hvað er þetta, held það sé í lagi að það hitni aðeins í mönnum og þeir láti í sér heyra. Væri til í að sjá svona ástríðu hjá fleiri þingmönnum heldur en þetta endalausa já lið sem er þarna.

PostPosted: Fri 14. May 2004 16:59
by jth
Ekkert að því að menn séu áhugasamir og grimmir í málflutningi - en hvaðan í ósköpunum kemur "druslu" kommentið. Síðast þegar ég vissi var það meira lýsandi um lauslæti frekar en aumingjadóm ;)

PostPosted: Fri 14. May 2004 17:03
by Kull
Hehe, satt, kannski ekki besta lýsingarorðið :)

PostPosted: Fri 14. May 2004 17:29
by Heizzi
jth wrote:
Heizzi wrote:annað eins hefur nú fengið að fjúka á þinginu, og mergur málsins er sá að þetta er sagt í hita leiksins án þess að nokkur eiginleg meining sé að baki...


Ég hefði áhuga á að vita hvað hafi áður verið sagt í þingræðu sem jafnast á við þessi ummæli! Ef ræður þingmanna standa saman af ummælum sem eru "...sögð í hita leiksins og án þess að nokkur eiginleg meining sé að baki..." þá held ég að við þurfum heldur betur að endurskoða kjör okkar á leiðtogum landsins.

Steingrímur hefur þótt skemmtilegur ræðumaður og vel máli farinn - en ummæli sem þessi eru fyrir neðan allar hellur.
Staðreyndin er raunar sú að þetta dregur allan mátt úr málflutningi hans, hann hefur fyrirgert öllum frekari viðræðum milli sín og Davíðs hvað þetta mál varðar.


Finnst þér jth semsagt hin frægu ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar um "skítlegt eðli" ekki jafnast á við þetta.... :roll:

Aldrei minn kæri jth sagði ég að ræður þingmanna samanstæðu af ummælum sögðum í hita leiksins....

Það sem ég átti við var að þessi einstöku ummæli Steingríms um Davíð væru sögð í hita leiksins.

Ég er fullkomlega sammála þér um að þetta dragi allan mátt úr málflutningi hans, þetta var engan veginn málefnalegt, enda sprottið af tilfinningum og þegar tillfinningar taka völdin þá fær skynsemin oft að víkja....

Mér finnst ansi margir hérna vera að setja sig háan hest og dæma menn fyrir að missa stjórn á tilfinningum sínum eitt augnablik... já það er gott að vera fullkominn... :roll:

arnib wrote:En hvar var Davíð þegar þetta átti sér stað?

Og af hverju mætti hann ekki til að ræða málin?


nákvæmlega...