Page 1 of 2
Flugeldaþráðurinn 2012

Posted:
Thu 27. Dec 2012 23:02
by Hrannar E.
Þarf ekki að vera einn svona þráður þar sem sölustaðir opna á morgun. Sjálfur er ég með flugeldafíkn og kaupi eins mikið og ég get

Eru menn mikið að versla flugelda hérna, hvar þá helst ?
Um að gera að mynda einhverja skemmtilega umræðu um þetta (nenni samt ekki að allir fari að commenta maður á bara að versla hjá björgunarsveitum.....)
Svo ef að menn eða konur eru ýkt/ir í þessu þá er um að gera að smella inn myndum af því sem fólk verslar.
Re: Flugeldaþráðurinn 2012

Posted:
Thu 27. Dec 2012 23:29
by íbbi_
kaupi aldrei flugelda,
á hinsvegar 10þús kr gjafabréf fyrir svona, sem ég vill ólmur losna við, helst á einhvern annan hátt en að kaupa flugelda
Re: Flugeldaþráðurinn 2012

Posted:
Fri 28. Dec 2012 00:13
by Hrannar E.
íbbi_ wrote:kaupi aldrei flugelda,
á hinsvegar 10þús kr gjafabréf fyrir svona, sem ég vill ólmur losna við, helst á einhvern annan hátt en að kaupa flugelda
Hvar gildir það gjafabréf og hvað viltu fá fyrir það?
Re: Flugeldaþráðurinn 2012

Posted:
Fri 28. Dec 2012 07:45
by gulli
Þar sem ég er mikill tertukall þá hef ég sl tvö ár verslað hjá bomba.is
Í bæði skiptin bað ég starfsmann um að velja fyrir mig það besta sem ég gæti fengið fyrir peningin og ég get alveg mælt með þeim

Re: Flugeldaþráðurinn 2012

Posted:
Fri 28. Dec 2012 08:36
by Svezel

Ég hef engan áhuga á flugeldum og fer í mesta lagi á næsta sölustað björgunarsveitanna og kaupi stjörnuljós
Re: Flugeldaþráðurinn 2012

Posted:
Fri 28. Dec 2012 09:16
by Jón Ragnar
Svezel wrote:
Ég hef engan áhuga á flugeldum og fer í mesta lagi á næsta sölustað björgunarsveitanna og kaupi stjörnuljós
Þetta
Facebook er fokking óþolandi þessa daga fyrir áramót
Re: Flugeldaþráðurinn 2012

Posted:
Fri 28. Dec 2012 13:24
by gardara
Jón Ragnar wrote:Þetta
Facebook er fokking óþolandi þessa daga fyrir áramót
Unfrienda alla sem eru með björgunarsveitavæl
Annars virðist maður aldrei ætla að þroskast upp úr þessu flugeldadóti, innkaupin aukast og aukast með hverju árinu

Re: Flugeldaþráðurinn 2012

Posted:
Fri 28. Dec 2012 13:42
by bimmer
Í götunni hjá mér er svo massíf pissukeppni með flugelda að maður
þarf eiginlega ekkert að kaupa - bara fara út og njóta.
Mesta lagi að maður kaupi 1-2 flugelda og svo stjörnuljós fyrir
Ísabellu.
Re: Flugeldaþráðurinn 2012

Posted:
Fri 28. Dec 2012 14:38
by Jón Ragnar
gardara wrote:Jón Ragnar wrote:Þetta
Facebook er fokking óþolandi þessa daga fyrir áramót
Unfrienda alla sem eru með björgunarsveitavæl
Annars virðist maður aldrei ætla að þroskast upp úr þessu flugeldadóti, innkaupin aukast og aukast með hverju árinu

Mundi enda með sirka 5 vini

Re: Flugeldaþráðurinn 2012

Posted:
Fri 28. Dec 2012 14:41
by íbbi_
hehe ég er einmitt í þeim pakka. finnst gaman að horfa á aðra sprengja þetta, en hef enga ánægju af því sjálfur
Re: Flugeldaþráðurinn 2012

Posted:
Sat 29. Dec 2012 00:10
by Einsii
Mér finnast "ílurnar" sem maður kaupir sjálfur óttalegt prump eftir flugeldasyninguna sem er alltaf fyrir skaup á Akureyri
En ég kaupi mér nú samt alltaf allavega eina fína tertu og styrki mína björgunarsveit.
Og þið plebbarnir sem verslið við Örn árna og Einar áttavilta verðið bara að þola skít frá þeim sem eru ósammála þessum einkaflugeldasölum.
Mér persónulega finnst þessi samkeppni við sveitirnar hallærisleg!
Re: Flugeldaþráðurinn 2012

Posted:
Sat 29. Dec 2012 02:18
by SteiniDJ
Ef ég versla eitthvað af flugeldum, þá versla ég þá af björgunarsveitinni. Mér finnst samt absúrd að fólk sé að hrauna yfir aðra sem eru að reyna að selja flugelda. Björgunarsveitin á markaðinn, en það á ekki að gefa þeim hann eða setja bann á að aðrir selji flugelda. Það er fátt annað eins fáranlegt og þessar pælingar enda stríðir þetta gegn öllu því sem frjálst land á að standa fyrir.
Svo sá ég þennan póst á facebook í dag:
Festi mig við Bláfjöll í nótt, alveg pikkfesti mig. Hringdi fyrst í hopkaup.is og bað þá um að koma og hjálpa mér, virtist sem maður hafi verið sofandi en hann sagðist ekkert geta hjálpað mér og varð frekar pirraður á þessu. Hringdi svo í Örn Árnason og bað hann um að koma og hann varð eitthvað vandræðalegur en bauð mér afslátt á flugeldum, ég hló bara og sagðist aldrei ætla að versla við hann, hringdi að lokum í björgunarsveitina og þeir sögu mér að bíða í 20 mín því þeir væru að koma. Bið fólk að hugsa rökrétt í þessum málum, þú ert ekkert að brenna peningana þína með flugeldum heldur ertu að styrkja gott málefni með að versla af björgunarsveitunum

Og mig langaði að skalla viðkomandi. Hvert einasta ár.
Re: Flugeldaþráðurinn 2012

Posted:
Sat 29. Dec 2012 03:02
by tolliii
Þetta er sammt þannig að flugeldasalan er ein helsta fjáröflun björgunarsveitanna og mér finnst súrt að
fólk skuli versla við einkaaðila, en ekki björgunarsveitina.. einfaldlega til að styrkja hana.
Við eigum eina öflugustu björgunarsveit í heiminum og þetta er allt sjálfboðavinna.
Einhvernveiginn verðum við að gefa til baka fyrir allt það sem þetta fólk hefur gert fyrir okkur og
mér finnst heimskulegt að fólk styrkji þær ekki því þú veist aldrei hvenar þú þarft á henni að halda!
Það er enginn að sega að þær eigi einkarétt á þessari sölu enda selja einkaaðilar fluglelda, en afhverju að versla við einkaaðila
þegar við getur styrkt við björgunarsveitina okkar og haldið henni fremstri í heimi?
Re: Flugeldaþráðurinn 2012

Posted:
Sat 29. Dec 2012 04:02
by SteiniDJ
Svo selja þeir neyðarkallinn líka, og það er alltaf öskrandi mikið að gera í því rétt eins og í flugeldasölunni. Allt sjálfboðavinna þar á ferð í þokkabót.
Fólk leitar kannski í aðrar sprengju-auðlindir heldur en björgunarsveitina því þau fá viðráðanlegri verð (oft fínt um jólin fyrir ýmsa) eða vörur sem björgunarsveitirnar geta ekki boðið upp á.
Sé ekki afhverju það þarf að vera svona mikið brjálæði hvert einasta ár.
Re: Flugeldaþráðurinn 2012

Posted:
Sat 29. Dec 2012 19:35
by oskar9
Ég ven mig á að kaupa fyrir sirka 100-150 þús annað hvert ár hjá Björgunarsveitinni, er mikið á fjallaskíðum, vélsleðum og gönguferðum svo ég vil styðja við þá.
Var með flott sjóv í fyrra svo ég fylgist bara með hjá öðrum núna og mynda