bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hugleiðing um stöðuleika bíla https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=5929 |
Page 1 of 1 |
Author: | GudmundurGeir [ Mon 10. May 2004 01:01 ] |
Post subject: | Hugleiðing um stöðuleika bíla |
Ég sá video um daginn á netinu af bíl sem var að taka 360° á þurru malbiki. Þetta var BMW station bíll , man ekki alveg hvernig týpa. Það sem ég var mjög hissa á var það að þegar gaurinn var að snúa bílnum til baka eftir að hafa snúið honum 180° á góðri ferð, þá lyftist bíllinn upp að aftan og hendist á toppinn og rústast gjörsamlega!! Þá fór ég að hugsa aðeins um þetta, ég hefi nú haldið að svona bíll myndi þola þetta. Ég var oft að leika mér að þessu, bara á blautu malbiki... þarf svona 70-80kmh til að klára snúninginn almennilega. Nú fer ég að fara fá minn kagga úr sprautun og þetta verður eitt af því fyrsta sem ég mun reyna á honum:D Haldiði ekki að 944 hafi þetta?? ...(þetta er mjög gaman, þarf að vera snöggur á stýrinu og gjöfinni;) |
Author: | Chrome [ Mon 10. May 2004 07:27 ] |
Post subject: | |
hann hefur það sjálfsagt en spurninginn er...týmir þú bílum í þetta? ![]() |
Author: | bebecar [ Mon 10. May 2004 08:20 ] |
Post subject: | |
Ég held að þetta fari nú eftir ýmsu öðru en bílnum, t.d. dekkjum. Það er ekki langt síðan við horfðum á listdans Volvo bifreiða hér á spjallinu þar sem svipuð stunt voru tekin, án þessi að nokkur færi á toppinn ![]() |
Author: | gstuning [ Mon 10. May 2004 08:28 ] |
Post subject: | |
bebecar wrote: Ég held að þetta fari nú eftir ýmsu öðru en bílnum, t.d. dekkjum. Það er ekki langt síðan við horfðum á listdans Volvo bifreiða hér á spjallinu þar sem svipuð stunt voru tekin, án þessi að nokkur færi á toppinn
![]() Það voru SAAB bifreiðar En allaveganna þá er það málið að oft er það viðbragð fjöðrunarinnar sem veldur að bílar velta,, þegar fjöðrunin er búinn að þjappast niður og dekkin eru að renna til og fjöðrunin er með oft langt mót slag eins og á stock bílum þegar þyngdin er að færa sig þá verður svona slys til,, virkilega stífur bíll myndi ekki gera svona heldur renna áfram á dekkjunum og því geta tekið °360 Ég myndi allaveganna ekki vera að prufa þetta á mínum 944 ever.. |
Author: | bebecar [ Mon 10. May 2004 08:38 ] |
Post subject: | |
Alveg rétt - Saab 9000 ![]() |
Author: | fart [ Mon 10. May 2004 08:54 ] |
Post subject: | |
Saab rokkar! hehe ![]() |
Author: | bebecar [ Mon 10. May 2004 08:55 ] |
Post subject: | |
fart wrote: Saab rokkar! hehe
![]() ![]() |
Author: | Jss [ Mon 10. May 2004 10:19 ] |
Post subject: | |
Ég heyrði að þetta hafi verið starfsmaður BMW sem var að sýna bílinn og það fylgir sögunni að hann hafi nú ekki unnið þarna lengi eftir þetta "stunt". ![]() |
Author: | bebecar [ Mon 10. May 2004 10:29 ] |
Post subject: | |
Mig langar að sjá þetta videó! ![]() |
Author: | iar [ Mon 10. May 2004 10:58 ] |
Post subject: | |
Held ég hafi séð þetta vídeó, man bara ómögulega hvar... var þetta ekki E46 ? |
Author: | Jss [ Mon 10. May 2004 10:58 ] |
Post subject: | |
iar wrote: Held ég hafi séð þetta vídeó, man bara ómögulega hvar... var þetta ekki E46 ?
Jú minnir að þetta hafi verið E46 touring. |
Author: | bjahja [ Mon 10. May 2004 15:18 ] |
Post subject: | |
Alveg rétt.........hef séð þetta, var þessu ekki bara póstað hérna einvherntímann? |
Author: | gunnar [ Mon 10. May 2004 19:14 ] |
Post subject: | |
Væri til í að sjá þetta ![]() ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |