bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Asian Bride... https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=5817 |
Page 1 of 1 |
Author: | Chrome [ Tue 04. May 2004 07:16 ] |
Post subject: | Asian Bride... |
Jón bóndi í Útnára hafði aldrei verið giftur, en var í gær að fá til sín eina Tælenska úr póstlistanum "Einn með Öllu". Hann veit ekki alveg hvernig hann á að umgangast dömuna og ákveður að hringja í póstlistann, en fyrir slysni ruglast hann á símanúmerum og fær samband við tölvubúðina "Ein með Öllu". Heyrum nú hvað þeim fór á milli. Sölumaður (S) Jón bóndi (J) RING RING S "Ein með öllu" góðan daginn, J "Já, góðan daginn. Ég fékk hjá ykkkur "Eina" núna um daginn og ég er í helvítis brasi með hana. Ég kann bara ekkert á hana. Ég held að hún sé tælensk....." S "Neiii.... Það getur ekki verið. Ef þú hefur fengið hana nýlega þá hlýtur hún að vera frá Kóreu. Hvað heitir hún annars?" J "Hún heitir Híun Dæ, held ég. Hún var allavega með merki framan á sér sem á stóð Híun Dæ." S "Já, Hyundai, það getur passað. En hvaða vandræði eru með hana?" J "Ég er búin að vera að berjast við að reyna að koma henni af stað í allan dag en ekkert gengið." S "Ertu búinn að taka hana úr umbúðunum?" J "Já, já, hún stendur hérna alveg "nettó "fyrir framan mig og ég bara veit ekkert hvað ég á að gera næst." S "Mér finnst nú alltaf best að hafa þær uppi á borði þegar ég nota þær annars þreytist maður svo fljótt í bakinu." J "Jááá þú segir nokkuð. Ég skelli henni þá upp á borð!" S "Gott, svo sestu framan við hana og athugar hvort hún sé orðin heit." J "Ég er búin að þreifa aðeins á henni og hún er bara sæmilega volg víðast hvar..." S "Hvernig týpa er þetta annars? 486?" J "Tja- 6 og ekki 6...Það sem ég var með í huga var bara svona venjulegt sex allaveganna til að byrja með. Það er aldrei að vita hvað maður gerir svona seinna meir..." J "Þú segir að hún sé orðin volg, já Þá skaltu grípa um músina, og færa hana rólega þangað til að "bendillinn" er kominn þangað sem þú vilt." J "Grípa um músina? Er það nú ekki svolítið ruddalegt svona rétt á meðan við erum að kynnast?" S "Nei, nei. Það er alveg nauðsynlegt að vera liðugur á músina þannig að þú fáir það sem þú vilt." J "Jæja, það skal þá þannig vera, en heyrðu, það er allt fullt af hárum á músinni !" S "Klikkaðu undir hana og blástu svo á hana. Það ætti að duga. Hvernig er annars minnið í henni?" J "Tja, það hefur nú lítið reynt á það ennþá hún kom nú bara í gær" S "Þú ert náttúrulega með harðan? Er það ekki?" J "Harðan. Jú, og ég er búinn að vera með hann lengi. Loksins er ég búinn að fá eitthvað til að setja hann í! !" S "Hvað er hann stór?" J "Stór??? Hann er svona í góðu meðallagi!!!!" S "O.K. gott, þeim mun stærri því meiru getur þú hlaðið á hann. Segðu mér annað, hvernig drif er á henni?" J "Hvað meinar þú með drif??????" S "Sérðu ekki rifu framan á henni? Það er drifið..." J "Já, ég sé smá rifu en ég er vanur að kalla hana allt öðrum nöfnum." S "Já, rifan er til þess að bæta í hana einu og öðru. Þú stingur bara floppinum inn og svo er það bara "run" og "enter"." J "Run? Þarf það???? Ég er nú ekki með það stórt herbergi að ég geti verið að hlaupa mikið en ENTER það get ég!!!" S "Svo veistu að þú getur tekið pásu hvenær sem er því að sá harði geymir allt saman eins lengi og þú vilt, nema náttúrulega að hún krassi á þig!" J "Krassi á mig? Eiga þær það til líka? Ég get nú bara ekki hugsað þá hugsun til enda." S "Ef hún krassar þá getur sá harði skemmst." J "Það hlýtur að vera ósköp sárt!!!!" S "Enn hvað ætlar þú að gera við hana? Í hvað ætlar þú að nota hana?" J "Ég var nú aðallega að hugsa um að leika mér að henni meðan ég er að kynnast henni. Svo fer ég að nota hana í eitt og annað nytsamlegt." S "Það er upplagt að láta hana sjá um bókhaldið. Það er um að gera að nýta möguleika hennar á öllum sviðum eins og maður getur." J "Segðu mér eitt, er ekki óhætt að treysta þeim?" S "Jú, jú, þær eru nokkuð öruggar." J "Hvað finnst þér um hana? Heldur þú að hún sé ekki bara nokkuð góð? Hún Híun Dæ???" S "Jú, ég er búinn að skoða þær margar, og þessi er örugglega þrælgóð. Þú þarft náttúruleg að vita að þær úreldast fljótt. Þú kemur bara með hana niðureftir og uppfærir í eina nýja. Við tökum þá gömlu uppí!!" J "Það er ekki að spyrja að því. Toppþjónusta sem þið veitið....." S "Já, við leggjum okkur fram við að veita kúnnanum góða þjónustu. Margir skipta á svona tveggja ára fresti..." J "Heyrðu, ég þakka þér bara kærlega fyrir hjálpina. Nú er ég tilbúinn til þess að hjóla í hana...." S "Gott hjá þér, og ef þú lendir í frekari vandræðum þá skal ég koma á staðinn og hjálpa þér." þessi stendur alltaf fyrir sínu ![]() ![]() |
Author: | Alpina [ Tue 04. May 2004 19:59 ] |
Post subject: | |
Skemmtilega orðað ![]() ![]() ![]() |
Author: | Thrullerinn [ Sat 08. May 2004 10:48 ] |
Post subject: | |
![]() ![]() |
Author: | benzboy [ Sat 08. May 2004 13:06 ] |
Post subject: | |
Snilld, hrein snilld |
Author: | Jss [ Sat 08. May 2004 13:58 ] |
Post subject: | |
Þessi er alltaf jafn góður. ![]() |
Author: | Haffi [ Sat 08. May 2004 14:59 ] |
Post subject: | |
looooooool ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |