bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 04. May 2025 16:42

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 6 posts ] 
Author Message
 Post subject: Ein skrítla hér!!!
PostPosted: Mon 03. May 2004 19:34 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Thu 26. Feb 2004 11:19
Posts: 354
Location: Skagaströnd
Baldur hafði nýlega krækt sér í nýja kærustu og eins og manna er siður þá hafði hann þáð heimboð til foreldra hennar í mat. Baldur mætir stundvíslega, nýþveginn og strokinn til tengdó og er vísað til borðs. Baldur tyllti sér við hlið tengdamömmu og ætlaði heldur betur að mýkja hana með skjalli og fögrum fyrirheitum. Forrétturinn var nýbúinn þegar Baldur tekur eftir því að heimilishundurinn hafði skriðið undir borðið og lá makindalega við borðfæturnar. Allt í einu þarf Baldur svona heiftarlega að reka við, og verandi kurteis maður með eindæmum gat hann ekki hugsað sér að láta það gossa, Baldur herpir saman þjóhnappana og reynir að kvelja fretinn inn aftur, það tókst ekki betur en svo að kvikindið sleppur út um samanherptar rasskinnarnar með tilheyrandi hvell. Baldur eldroðnar en tengdamamman hvæsir á hundinn " Snati, komdu þér undan borðinu" hrópaði hún. Það hlakkaði í Baldri sem taldi sig vel sloppinn frá þessum skandal. En um það leiti er aðalrétturinn var að klárast fann Baldur að þarmarnir voru eitthvað að ókyrrast, hann hugsar með sér að hann geti nú alveg leikið sama leikinn tvisvar og lætur smá slatta seiðast út um rassgatið, tengdamamma hvæsir nú öðru sinni á hundinn og segir
"Snati!!! farðu undan borðinu" Baldur hugsar nú með sér að nú sé lag á að klára þarmavesinið bara alveg og rekur svona heiftarlega við að matborðið gjörsamlega nötraði. Tengdamömmu var nú nóg boðið og barði í borðið og hrópaði "SNATI VILTU KOMA ÞÉR UNDAN BORÐINU ÁÐUR EN BALDUR DRULLAR YFIR ÞIG"

_________________
Þetta er bara blær, blíður og vær.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. May 2004 19:37 
Offline
Go-kartbílstjóri
User avatar

Joined: Thu 10. Apr 2003 18:11
Posts: 425
Location: Kópavogur
Vá, þessi var virkilega góður. Sprakk alveg við punch line-ið... :lol:

_________________
Heiðar
BMW 320i E36
Nissan Sunny 1,4LX - Seldur


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. May 2004 20:20 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 07. Sep 2002 09:55
Posts: 5729
bwhahahahahahahahahahhahahahahahahahahahahahaahhaa :D

_________________
Haffi W. Schnurrenberger.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Mon 03. May 2004 20:30 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Same here, sprakk úr hlátri :wink:

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 04. May 2004 09:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Posts: 4811
Location: Hafnarfjörður
Snilld. :lol:

_________________
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Tue 04. May 2004 18:58 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
Því miður,,,,,,strákar mínir,,þessi er 30 ára gamall :? :cry: :cry:


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 6 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 13 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group