bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Veit einhver hvaða bíll þetta er? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=5693 |
Page 1 of 2 |
Author: | Chrome [ Tue 27. Apr 2004 21:15 ] |
Post subject: | Veit einhver hvaða bíll þetta er? |
http://www.bilasolur.is/Main.asp?SHOW=CAR&BILASALA=33&BILAR_ID=140584&FRAMLEIDANDI=BMW&GERD=750%20IA&ARGERD_FRA=1989&ARGERD_TIL=1991&VERD_FRA=310&VERD_TIL=910&EXCLUDE_BILAR_ID=140584 ...kannast einhver við kaggan og veit hvað amar að? ![]() |
Author: | Thrullerinn [ Tue 27. Apr 2004 21:22 ] |
Post subject: | |
Fallegur eðalvagn allavega, felgurnar sérstaklega ... |
Author: | Chrome [ Tue 27. Apr 2004 21:32 ] |
Post subject: | |
einmitt... ![]() ![]() |
Author: | íbbi_ [ Tue 27. Apr 2004 21:34 ] |
Post subject: | |
það eru tveir spjalmeðlimir búnir að eiga hann, skilst að þetta sé gott eintak, en mig minnir að stjórntölvan fyrir innspýtinguna sé ónýt, p.s mér finnst þetta alltof alltof alltof hátt verð |
Author: | Chrome [ Tue 27. Apr 2004 21:35 ] |
Post subject: | |
hann er að ég held gegn yfirtöku...ég er að spá í að taka hann ef hann er ennþá til sölu ![]() |
Author: | Alpina [ Tue 27. Apr 2004 22:15 ] |
Post subject: | |
Chrome wrote: hann er að ég held gegn yfirtöku...ég er að spá í að taka hann ef hann er ennþá til sölu
![]() Kýldu á það... |
Author: | Chrome [ Tue 27. Apr 2004 22:46 ] |
Post subject: | |
ég ætla að hafa betur samband við þá á morgun og ef ég fæ þessa vinnu sem ég á von á þá tek ég hann bókað ![]() ![]() |
Author: | íbbi_ [ Tue 27. Apr 2004 22:54 ] |
Post subject: | |
er það eitthvað skárra að kaupa hann dýrum dómi þótt hann sé á yfirtöku? bíllin sem alpina auglísti hér um daginn finnst mér á eðlilegu verði |
Author: | Alpina [ Tue 27. Apr 2004 23:04 ] |
Post subject: | |
íbbi_ wrote: bíllin sem ,,ALPINA,,auglýsti hér um daginn finnst mér á eðlilegu verði
Miðað við ástand held ég að það sé rétt,,,,,,,, Til að finna virkilegan góðann E32 750 erum við að tala um 1.000.000 >>>> þeas GÓÐANN bíl!!!!!!!! |
Author: | íbbi_ [ Tue 27. Apr 2004 23:49 ] |
Post subject: | |
ég hef verið að skoða verðið á bmw t.d í svíþjóð og finnst mér verðið hérna alltof hátt meðað við verð annara bíla, gamlir bmw-ar (eins og t.d E32)eru vissulega miklir bílar sem veita manni ánægju útúr akstri sem er vissulega ekki hægt að ganga að sem vísri þótt um nýrri bíl sé að ræða, en þó finnst mér engu síður mikilvægt að fólk sé ekki að borga of mikið fyrir þá, þetta eru orðnir gamlir og margir hverjir mikið notaðir bílar,og viðhald þar af leiðandi eðlilega meira og þetta eru jú mjög tæknilegir bílar enda flaggskip síns tíma, sem gerir það að verkum að þessir bílar eru kannski stífari í viðhaldi en lítil púdda í sama aldursflokk, sést vel á hversu mikið verðmunurinn á t.d 730 og 750 færist nær hvor öðrum með hverju árinu og á endanum eru ásett verð komin í það sama og 730 bíllin líklegri til að seljast á því en 750 bíllin, það er ekkert grín að halda við 12cyl bíl með raf/tölvukerfi sem þessu við þegar hann er komin á þriðja hundrað þúsund km. tala nú ekki um eins og íslensk veðurfar er, ég persónulega myndi ekki borga meira fyrir sona bíl í góðu standi en þann sem þú auglístir hér um daginn, ekki það að mér finnist bíll af þessu tagi vera verðlaust drasl, heldur sé ég kostin í þessum bílum að fá stóran og vægast sagt mikin bíl á sama verði og þætti eðlilegt að borga fyrir littla tík, vinur minn sem vann hjá tækniþjónustu Bifreiða fékk einmitt 735 89 eins og nýjan ekin um 200 á undir 200k (lést í honum í bílslysi á vesturlandsvegi? í janúar síðastliðnum) það þótti mér verð sem ég væri til í að borga fyrir sona bíla og fá þar af leiðandi stóran og skemmtilegan bíl á lítin pening og eyða þá jafnvel aðeins meira í viðhald án þess að sjá eftir krónuni, |
Author: | íbbi_ [ Tue 27. Apr 2004 23:57 ] |
Post subject: | |
en hinsvegar er ég fyllilega sammála því að verðleggja bílin eftir a´standi og þegar gullmolar eru annarsvegar þá má borga fyrir þá, fyrir 740/750 sem væri eins og nýr úr kassanum mætti alveg láta eina millu. en þeir eru það fæstir og mjög margir bera þess merki að eigandin hafi ekki alveg haft efni á að láta gera við bílin af réttum mönnum/verkstæðum og það hefur áhrif á bílin í heild sinni. |
Author: | Chrome [ Wed 28. Apr 2004 09:02 ] |
Post subject: | |
AMEN! ![]() |
Author: | jonthor [ Wed 28. Apr 2004 09:23 ] |
Post subject: | |
Tjah, ég verð nú bara að vitna í fleir hér á spjallinu tengdu þessu endalausa besservissi um hvað er "rétt" verð: Rétt verð er það sem einhver er tilbúinn til að borga fyrir bílinn. Ef einhver setur 2 milljónir á '85 módelið af 316i þá selur hann bílinn líklegast ekki. |
Author: | Chrome [ Thu 29. Apr 2004 14:07 ] |
Post subject: | |
íbbi_ wrote: það eru tveir spjalmeðlimir búnir að eiga hann, skilst að þetta sé gott eintak, en mig minnir að stjórntölvan fyrir innspýtinguna sé ónýt
veit einhver hvað kostar að skipta um/laga hana? ![]() ![]() |
Author: | force` [ Thu 29. Apr 2004 14:24 ] |
Post subject: | |
mér finnst nú ekki rétt að vera að benda á verð í löndum sem eru samliggjandi við þýskaland. við þurfum að fljúga bílunum heim eða senda þá í gámi yfir hafið, og við borgum alveg þokkalega tolla hérna og önnur vita gagnslaus gjöld og fáránlegheit eins og spilliefnagjöld, þeas við erum að borga fyrir að koma með smá olíu sem er á vélinni þegar bílnum er hleypt inn. verð á að fara eftir ástandi bílsins, ekki einhverjum lista eða hvað fólki finnst réttmætt sem er ekki einusinni að spá í að kaupa svona bíl eða hinsegin bíl sem er verið að ræða um. Verð er bara afstætt eftir hverjum og einum einstaklingi og hverjum og einum bíl, jú það verður kanski að vera raunsætt eins og það þýðir ekkert að vera að reyna að fá 3 millur fyrir svona bíl eins og hérna að ofan, en hvort það sé upp eða niður um 200þús kall eða svo ætti ekki að skipta neinu máli, og fatta hreinlega ekki afhverju fólk þarf að stökkva upp og arga og garga því að þeim finnst verð á einhverjum bíl sem kemur þeim ekki einusinni við vera óraunsætt eða ósanngjarnt. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |