bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Suð úr hátölurum Audi TT '04
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=56500
Page 1 of 1

Author:  Hreiðar [ Wed 09. May 2012 11:01 ]
Post subject:  Suð úr hátölurum Audi TT '04

Sælir drengir, ég er hérna með spurningu til ykkar hvort þið vissuð eitthvað hvað þetta gæti verið.
Málið er það að allt í einu kemur suð í hátölurunum á TT að aftan, ekki að framan. Þetta kemur
bara stundum, en stundum er þetta stöðugt og fer í mínu fínustu taugar!
Það er orginal kerfi í honum og ég hef ekkert fiktað í því, byrjaði bara allt í einu.
Suðið er ennþá, þótt svo að ég slökkvi á útvarpinu og það heyrist hærra þegar ég gef inn.

Hverjir væru bestir til þess að kanna þetta? Ég vill alls ekki fara til Heklu $$$$$$$$$$$
Vonandi fæ ég góð og hjálpleg svör. :)
Kveðja, Hreiðar.

Author:  ///M [ Wed 09. May 2012 11:21 ]
Post subject:  Re: Suð úr hátölurum Audi TT '04

because ... audi tt

Author:  Hreiðar [ Wed 09. May 2012 11:48 ]
Post subject:  Re: Suð úr hátölurum Audi TT '04

///M wrote:
because ... audi tt

frekar bara.. because...audi!

Voðalega pirrandi allir þessir hlutir sem fylgja þessum TT-um, en þeir eru alveg æðislega skemmtilegir :)

Author:  jeppakall [ Wed 09. May 2012 15:59 ]
Post subject:  Re: Suð úr hátölurum Audi TT '04

Hef lent í þessu, þó ekki á TT, en það var nú bara ryk í hátölurunum.

Þetta er allavega það ódýrasta sem mér datt í hug!

Author:  Benzari [ Wed 09. May 2012 16:23 ]
Post subject:  Re: Suð úr hátölurum Audi TT '04

Nesradíó í Síðumúla eru/voru alltaf að sjá um Heklubíla.

Keyrðu bara beint á verkstæðið á bakvið. :mrgreen: :lol:

Author:  sosupabbi [ Wed 09. May 2012 18:17 ]
Post subject:  Re: Suð úr hátölurum Audi TT '04

Ef það eltir snúninginn á vélinni þá hlítur snúran fyrir loftnetið að liggja einhverstaðar útí boddýið, gæti farið ef þú stillir hann á cd eða eh álíka, annars getur þetta líka verið magnarinn.

Author:  Vlad [ Wed 09. May 2012 20:41 ]
Post subject:  Re: Suð úr hátölurum Audi TT '04

Volkswagen rafkerfi er satans. En mér þykir magnarinn líklegastur.

Author:  Hreiðar [ Thu 10. May 2012 00:55 ]
Post subject:  Re: Suð úr hátölurum Audi TT '04

Kíkti í nesradio í dag, hann sagði einmitt að magnarinn væri líklegastur.

Veit reyndar ekkert hvar hann er staddur í bílnum.

Author:  Axel Jóhann [ Thu 10. May 2012 16:13 ]
Post subject:  Re: Suð úr hátölurum Audi TT '04

www.bilvogur.is :thup:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/