ég hugsa að það sé nú raunverulega stærra bros á smettinu á mér þegar ég geri þennan þráð en ansi marga aðra um þetta bras mitt.
en í gær má nú eiginlega segja að það hafi orðið smá þáttaskil í þessu hjá mér þegar að það kom að þeim áfanga í gær að bíllinn er í fyrsta skiptið orðinn algjörlega functional. og eftir að verða bráðum 6 ár þá keyrði ég í fyrsta skipti bílin, með breytingunum sem heild, og öllum komnum í bílin, ég keyrði hann sumarið 2006 alveg bone stock, 2007 reyndar setti ég einhverja örfáa tugi km á hann með nýja mótornum, en ómappaðan, hikstandi og fretandi. vökvastýrislausan og allan í þá áttina
ég er vægast sagt ánægður með útkomuna, breytingin á bílnum í akstri er gríðarleg, og ég held hreinlega að ef ég vissi ekki betur þá myndi ég aldrei tengja að þetta sé sami bíll og ég keypti 2006, hann er mjög brútal allur.. en samt alveg usable. ég prufai hann með pústið "dumped" fyrir framan hásingu, sem hljómar afar vel, en þegar hann fer á plöturnar þá verður hann kominn aftur með kerfi alveg aftur úr. er bara að gera smá breytingar á því svo ég eigi einhevrja mögulega á að fá skoðun,
mundurinn á handling og fjöðrun er unreal, maður finnur vel hversu lægri hann er orðinn, hann er alveg grjótstífur og ekkert boddyroll, samt ekki hastur. það var líka öllu skipt út sem kom að fjöðrun, gormar demparar, ballancestangir,endar, pólýfóðringar í öllu, afturfjöðrunin sem svo adjustable og búið að færa spyrnur 3" neðar en þær komu orginal,brace-a saman subframeinn í honum, strut bar, og allt úr stál og chromoly rörum, spyrnunar einnig og því hefur bíllinn alveg sama fjöðrunarsvið og hann hafði þótt han sé orðinn svona lágur. þetta á náttúrulega allt eftir að sanna sig eða ekki ef svo fer, en þetta lofar góðu, munum samt að við erum að tala um hlunk sem er jafnstór og 7 línu bíll, á hásingu, og miða væntingarnar við það ;P
bíllinn var 4 manna, með gráum plusstólum, en núna orðinn 2seater, og með hálfleðraða körfustóla. og það eitt og sér er eflaust einhver mesta breytingin sem hægt að gera á bílnum.. enda ekki erfitt að toppa sætin sem koma í þessu orginal.
og svo var náttúrulega jú.. mótorinn, hann hefur nú verið prufaðu áður., en þá metra sem hann hefur keyrt með nýju ECU+map þá var vesen með villukóða. falskt loft og flr og því var og er enn ekki komið í ljós hvað þetta getur. en hann gékk algjörlega villu-free í gær og ég get nú eiginlega ekki sagt annað en að mér hálf brá hvað þetta pullar svakalega. botngjöf er ekki option fyrr en í 3ja gír. og voða lítið traction að fá fyrr en eftir 100, allavega á köldu undirlagi eins og var í gær. tek það nú samt fram að það var engin heimska eða fíflagangur í gangi. og valin öruggur staður til að prufa bílin, sem náði nú varla 5 mín hvort sem er.
bíllin er nú samt ekki tilbúinn, ég á eftir að fá eitt stk í fjöðrunina, mig vantar rafmagnsrúðumótora, ætla setja catch can, þarf að fara aðeins í gegnum nitrokerfið, og klára að festa kútinn. henda wideband tölvuni minni í. og svo er ég að breyta aðeins SLP pústinu, fyrir utan jú að ég á til aðra innrettingu í hann, sem ég ætla sameina svona til helminga við orginal innrétinguna, og fá bílin einlitan dökkan að innan, fæst af þessu eru samt skoðunartengd atriði, en ég vill nú klára þetta fyrst. og keyra svo
nýjar myndir
og smá soundclip af honum á ferðini. þrátt fyrir að hitt kerfið sé komið undan þá er nú ekki hægt að segja að þetta hljómi eitthvað mildara
_________________ M.benz E320 Family Wagon Chevrolet Silverado vinnujálkur Chevrolet Silverado skúrajálkur Cadillac eldorado 1973, ísbíll
Vantar þig aðstoð við að panta af ebay eða annarstaðar á netinu? Sendu mér PM. ██ 1994 BMW E36 332i sedan ██ 1991 Chevrolet Camaro Z28 ██ 1982 Toyota Carina A60 ██ 2005 Ford Fiesta ST
Svezel wrote:
Þú ert svo mikill bíla-hipster að það er ekki fyndið
Ekkert smá clean. Flottar breytingar sem þú gerðir með smooth berger panel og front grillið Get ekki ýmindað mér brosið sem kemur þegar maður klárar svona verkefni og í hvert skipti sem maður startar kerrunni Ekkert sem jafnast á við svona leiktæki
Bara flott hjá þér. Nú er bara málið að þú njótir þessarar vinnu þinnar sem er nú búin að vera ófára klukkustundir með en ekki selja bílin og láta einhvern annan gera það.
Hann er ótrúlega clean og smekklegur bíllinn og mjög vel valin mod hjá þér
ég þakka kærlega góð comment. já djöfull var hrkalega gaman að taka loksins í gripinn. og eins og planað var þá er ég alveg að drepast úr spenningi yfir að komast með hann á götuna til að keyra meira
ég er að snúa honum í 7k, eitthvað lægra í video-inu var bara að hræða pabba gamla aðeins
_________________ M.benz E320 Family Wagon Chevrolet Silverado vinnujálkur Chevrolet Silverado skúrajálkur Cadillac eldorado 1973, ísbíll
Users browsing this forum: No registered users and 7 guests
You cannot post new topics in this forum You cannot reply to topics in this forum You cannot edit your posts in this forum You cannot delete your posts in this forum