Ég er með smá vefsíðuverkefni hérna þar sem ég er m.a. að reyna á
mjög einfaldan, gróflegan og græningjavænan hátt að sýna kosti og galla mismunandi skiptinga í bílum.
S.s. ég er að pæla í að hafa tvo dálka, annarsvegar comfort/smoothness og svo efficiency, og gef einkunn frá einum og upp í þrjá. Ég endurtek að þetta er mjög gróft, og á ekki að vera neitt of vísindalegt. Meira svona fyrir casualinn sem kannski þekkir ekki alveg muninn á V8 og V6, en ég er að pæla hvort þið mynduð setja eitthvað út á þessar tölur hjá mér:
Code:
comfort efficiency
manual 1 2 Gamla góða.
auto 3 1 Mjúkar skiptingar en minna efficiency útaf torque converter.
semiauto 1 2 S.s. electronic kúplingaskiptingar ala. E46 M3.
semiauto dual clutch 2 2 Spurning hvort þessi fengi 3 í comfort. En það er kannski allur gangur á því hversu góðar þær eru?
cvt 3 3 http://en.wikipedia.org/wiki/Continuously_variable_transmission
Eru þetta í einhverju rugli? Hverju mynduð þið breyta? Jafnvel kannski hafa skalann frá 1-4 frekar? Eða er kannski vonlaust að reyna slumpa skiptingar frá mismunandi framleiðendum í sama hóp?
Markmiðið er s.s. að leyfa fólki að bera saman skiptingar bara á núll-einni, án þess að þurfa lesa eitthvað.