Page 1 of 1

** Stolin kerra - Ifor Williams - Getur þú hjálpað? Fundarl.

PostPosted: Wed 14. Mar 2012 21:37
by siggi_runar
Kerru, eins og á þessari mynd var stolið við sumarbústað í Skorradal í Borgarfirði á tímabilinu 10.febrúar til 10.mars. Kerran er Ifor Williams og er mjög heilleg. Eins og sést á mynd er kerran tveggja öxla. Heildarlengd er 4,97m og 1,73m á breidd.

Image

Undir henni að aftan eru útdraganlegar keyrsluslyskjur (sjá mynd).

Skráninganúmer á henni er IKR29 en mögulega er búið að taka plöturnar af henni eða láta aðrar plötur á.

Kúlutenginu var læst með lykli, mögulega er búið að bora cylinderinn út eða skemma læsinguna. Læsingin sést betur á mynd.

Sá sem finnur þessa kerru þannig að hún komist í hendur fyrri eigenda má búast við góðum fundarlaunum!

Vinsamlegast hafi samband við Birgi í síma 892-2605 eða Lögregluna í Borganesi 433-7612.

Image

Image

Re: ** Stolin kerra - Ifor Williams - Getur þú hjálpað? Fund

PostPosted: Thu 22. Mar 2012 00:18
by siggi_runar
Enginn séð þessa kerru?

Góð fundarlaun í boði !!

Re: ** Stolin kerra - Ifor Williams - Getur þú hjálpað? Fund

PostPosted: Sun 25. Mar 2012 12:38
by IngóJP
Helvítis kerruþjófar útum allt virðist vera. Ég þekki tvo einstaklinga sem hafa lennt í þessu á síðustu 2 vikum :thdown:

Re: ** Stolin kerra - Ifor Williams - Getur þú hjálpað? Fund

PostPosted: Sun 01. Apr 2012 21:34
by siggi_runar
Já þetta er ömurlegt.

Ég er annars enn að leita en vísbendingarnar hingað til hafa ekki leitt til þess að ég hafi fundið hana.

Þannig að ég bið fólk endilega um að láta mig vita ef einhver sér kerruna eða mjög heillega svona kerru.