Page 1 of 1

Sprautun á álfelgum

PostPosted: Sun 12. Feb 2012 13:19
by HAMAR
Ég þyrfti að láta sprauta svona álfelgur undan Grand Cherokee:

Image

er ekki einhver snillingurinn hér inni sem gæti gefið mér hugmynd um kostnaðinn við svoleiðis verk?

Svo er annar möguleiki hjá mér í stöðunni, felgurnar hafa verið sprautaðar seinnt á síðustu öld og
lakkið orðið upphleift og sprungið, er kannski hægt með sæmilega góðu móti að fjarlægja gamla lakkið
og ná upp OEM lúkkinu á felgunum (pólerað ál)?

Re: Sprautun á álfelgum

PostPosted: Sun 12. Feb 2012 21:22
by T-bone
HAMAR wrote:Ég þyrfti að láta sprauta svona álfelgur undan Grand Cherokee:

Image

er ekki einhver snillingurinn hér inni sem gæti gefið mér hugmynd um kostnaðinn við svoleiðis verk?

Svo er annar möguleiki hjá mér í stöðunni, felgurnar hafa verið sprautaðar seinnt á síðustu öld og
lakkið orðið upphleift og sprungið, er kannski hægt með sæmilega góðu móti að fjarlægja gamla lakkið
og ná upp OEM lúkkinu á felgunum (pólerað ál)?



Lítið mál að fara með mekló málningaruppleysi eða álíka efni á málninguna, og ná henni af. Nota svo autosol og vatnspappír til að ná fram póleringunni.