bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Daewoo Musso
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=5458
Page 1 of 1

Author:  fart [ Tue 13. Apr 2004 19:00 ]
Post subject:  Daewoo Musso

Er það dæmi í lagi? er hægt að selja þetta.

Author:  benzboy [ Tue 13. Apr 2004 19:02 ]
Post subject:  Re: Daewoo Musso

fart wrote:
er hægt að selja þetta.


Ekki ef marka má alla bílana sem eru á sölu

Author:  gunnar [ Tue 13. Apr 2004 19:36 ]
Post subject: 

Getur kíkt á bílasölu reykjavíkur, sérð þá alla 13 held ég standa þar..

Author:  bebecar [ Tue 13. Apr 2004 20:43 ]
Post subject: 

Er verið að bjóða þér þetta uppí?

Ég myndi forðast þetta nema milligjöfin sé góð eða bíllinn sem þú færð mjög ódýr.

Sumir freystast til að kaupa þetta á kringum milljón.

Þeir virðast sumir vera gallagripir en ég þekki nú konu sem á Korando og hann rúllar endalaust og er kominn í 200 þús núna án þess að klikka.

Author:  ///MR HUNG [ Tue 13. Apr 2004 23:30 ]
Post subject: 

Ef þú ert að pæla að taka uppí jeep þá er í lagi að skoða það sérstaklega ef þetta er nýrra boddýið og þetta eru ekkert verri bílar enn hvað annað.

Author:  force` [ Tue 13. Apr 2004 23:33 ]
Post subject: 

ég get ekki séð að þeir seljist, þeir standa í röðum á bílasölum og það
klikkar ekki að ég geti fundið 1-3 í blaðinu í hvert sinn sem mér dettur í hug að kíkja á það, þeir eru allstaðar.

ég veit heldur ekki afhverju fólk vill þetta ekki, ekkert ljótir bílar,
en getur verið að þeir séu svona gjarnir á að bila eða?
ég veit að þeir eru þægilegir, eru kanski ekki með mestu aksturseiginleika
í heimi.....

en hinsvegar þá myndi ég alls ekki vilja einn, aðallega bara því að ég
finn það að ég myndi aldrei selja hann nema undir núverandi gangverði
og að hann sé eitthvað rosalega spes....

Author:  ///MR HUNG [ Tue 13. Apr 2004 23:35 ]
Post subject: 

force` wrote:
ég get ekki séð að þeir seljist, þeir standa í röðum á bílasölum og það
klikkar ekki að ég geti fundið 1-3 í blaðinu í hvert sinn sem mér dettur í hug að kíkja á það, þeir eru allstaðar.

ég veit heldur ekki afhverju fólk vill þetta ekki, ekkert ljótir bílar,
en getur verið að þeir séu svona gjarnir á að bila eða?
ég veit að þeir eru þægilegir, eru kanski ekki með mestu aksturseiginleika
í heimi.....

en hinsvegar þá myndi ég alls ekki vilja einn, aðallega bara því að ég
finn það að ég myndi aldrei selja hann nema undir núverandi gangverði
og að hann sé eitthvað rosalega spes....
Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að þeir seljast illa fólk heldur hitt og þetta og það er ekkert að þessum bílum :!:

Author:  force` [ Tue 13. Apr 2004 23:39 ]
Post subject: 

ég myndi hugsanlega líta öðruvísi á þessa bíla ef þeir stæðu ekki í hrúgum útum allt. mig reyndar langar að vita afhverju þeir fóru að hrúgast svona á sölur?
og veit einhver afhverju þeir seljast ekki? er það sama ástæða og mín, að ég myndi ekki vilja standa í því að reyna að selja hann á móti öllum hinum? is that all?

Author:  ///MR HUNG [ Wed 14. Apr 2004 00:00 ]
Post subject: 

Ástæðan fyrir því að þeir eru svona margir hjá benna núna er að liðið setti þá uppí nýja musso pikkann.

Author:  Kristjan [ Wed 14. Apr 2004 01:20 ]
Post subject: 

Við erum með nokkra Musso í vinnunni og þeir eru frekar leiðinlegir að mínu mati, alltaf á verkstæði og með vesen læsandi hurðum sjálfvirkt til dæmis. Ég tek alltaf VW Transporter framyfir þá þegar færi leyfir.

Author:  bebecar [ Wed 14. Apr 2004 08:20 ]
Post subject: 

Það var ein með Musso hér í vinnunni og hann var frægur fyrir að bila í jeppaferðum, var alltaf dreginn í bæinn (keyptur nýr).

Svo er ein hér með Korando og hann rúllar og rúllar og klikkar aldrei. :roll:

Author:  Twincam [ Wed 14. Apr 2004 08:22 ]
Post subject: 

Ég hef heyrt að Mussoinum finnist það stuð að láta hafa fyrir sér og bili gjarna.

En svo virðist sem að reynslan af Korandoinum sé mun betri. Þó átti frænka mín svona Korando sem var alltaf eitthvað að hrekkja hana.

Svo maður vitni í þá frábæru mynd Gremlins... "There are gremlins in it" :P

Author:  fart [ Wed 14. Apr 2004 08:55 ]
Post subject: 

Image

http://www.bilasolur.is/Main.asp?SHOW=CAR&BILASALA=7&BILAR_ID=216308&FRAMLEIDANDI=DAEWOO&GERD=MUSSO%20E-32

Hvernig er þessi.

Author:  íbbi_ [ Sat 17. Apr 2004 01:56 ]
Post subject: 

ég hef nokkuð mikla reynslu af 2 mussoum, annar er af fyrri árgerðunum 96-98 og hann er bókstaflega aldrei í lagi alskonar rafmagnsklikk, framdrifið<--(mjög algeng bilun í þeim) og síðast en ekki síst þá hrundi vélin í honum, ekki einu sinni heldur 2svar.

hinn er mun nýrri bensínbíll og eins og hinn þá er framdrifið búið að vera með vesen, og síðan voru einhverjir aðrir hlutir sem ég man ekki,

síðan var einn með með mér á sjó sem átti e32 bensín, hann talar um að hann eyði svipað miklu og 8gata tryllitækin sem hann var á á mínum aldri en sá bíll hefur ekki verið til mikilla vandræða,

engu síður finnst mér þetta skemmtilegir bílar góð sæti nokkuð laglegir að innan og hafa stóran kost framyfir flesta japanska jeppa eins og t.d lc90 að aftursætin er vel bjóðanleg mönnum :idea:

myndi samt ekki kaupa mér sona bíl :roll:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/