bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Discovery á sunnudögum https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=5350 |
Page 1 of 1 |
Author: | Svezel [ Sun 04. Apr 2004 22:26 ] |
Post subject: | Discovery á sunnudögum |
Ég veit ekki hvort þið vitið þetta en svo virðist sem sunnudagar á Discovery séu gersamlega uppfullir af skemmtilegum bílaþáttum. Ég hef bara legið fyrir framan imbann í nánast allan dag og horft á hvern snilldarþáttinn á fætur öðrum sem fjalla um allt frá breyttum Hummer H2 til formúlu 1. Langaði bara að deila þessu með ykkur ![]() |
Author: | Jss [ Sun 04. Apr 2004 22:27 ] |
Post subject: | Re: Discovery á sunnudögum |
Svezel wrote: Ég veit ekki hvort þið vitið þetta en svo virðist sem sunnudagar á Discovery séu gersamlega uppfullir af skemmtilegum bílaþáttum. Ég hef bara legið fyrir framan imbann í nánast allan dag og horft á hvern snilldarþáttinn á fætur öðrum sem fjalla um allt frá breyttum Hummer H2 til formúlu 1.
Langaði bara að deila þessu með ykkur ![]() Hef séð þetta einhvern tíma en tekst einhvern veginn alltaf að gleyma þessu. ![]() |
Author: | Chrome [ Sun 04. Apr 2004 22:40 ] |
Post subject: | |
mikið rétt ![]() |
Author: | Benzari [ Sun 04. Apr 2004 22:40 ] |
Post subject: | |
Í dag var spes "Bíladagur" á stöðinni, flesta af þessum þáttum er hægt að sjá öðru hvoru í dagskránni. Mæli með "Fast Cars" þar sem þrír góðir sportarar eru grandskoðaðir, Porsche 911 Turbo, Corvette "Callaway"ed., Ferrari F50. Var að sjá þennan þátt í þriðja skiptið svo hann verður örugglega sýndur oftar. Reyni að muna eftir auglýsingarþræði næst þegar svona bílamaraþon er í gangi, sá þetta nefnilega auglýst á föstudag og steingleymdi að pósta því ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | Svezel [ Sun 04. Apr 2004 23:04 ] |
Post subject: | |
Já það hlaut að vera að það væri einhver sérstakur bíladagur í dag, hef ekki orðið var við þetta marga bílaþætti áður á sunnudögum. Horfði einmitt á "Fast Cars" í dag sem er mjög skemmtilegur þáttur en ég var búinn að sjá eitthvað af honum áður. Svo voru tveir formúlu 1 þættir sem ég sá milli 11 og 13. Horfði frekar á þá en keppnina sem var í dag. Einnig voru a.m.k. 2 þættir um hraðameta á landi sem voru mjög áhugaverðir. Auk þess sá ég tvo "Rides" þætti sem voru mjög góðir, annar var um einhvern gaur sem breytir bílum og þá sérstaklega Hot Rod bílum en hinn um svona bling bling breytingar en hann var mjög spaugilegur. Merkilegt að nokkrum manni skuli detta í huga að breyta Ferrari Enzo. Svo var einhver þáttur áðan um sögu bílsins en ég fylgdist ekkert sérstaklega vel með honum nema í lokin. Snilldar dagskrá ![]() |
Author: | Benzari [ Sun 04. Apr 2004 23:13 ] |
Post subject: | |
![]() ![]() ![]() Kom fram að upphaflega verðið hjá Ferrari var $650.000 en þeir eru seldir þaðan á $1.milljón!!!(2.millur aftermarket price) Ekki nóg með það heldur velur Ferrari gaumgæfilega kaupanda á hvert einasta af þessum 399 sem framleiddir verða(voru?) Hinar bling bling breytingarnar voru bara í ruglinu og kosta oft meira en bíllinn sjálfur frá verksmiðju. |
Author: | Svezel [ Sun 04. Apr 2004 23:18 ] |
Post subject: | |
Já þeir virtust láta það duga að setja þessar bling bling felgur undir en voru samt eitthvað að væla um að skitpinguna, stýrið og rafmagn í rúðum. Sá alveg fyrir mér að þeir myndu rústa bílnum en svo var sem betur fer ekki. Menn sem vilja lúxus og bling bling eiga að kaupa eitthvað annað en ENZO! |
Author: | bjahja [ Mon 05. Apr 2004 16:35 ] |
Post subject: | |
Discovery er uppáhalds stöðin mín........það eru alveg geggjaðir þættir þarna. En já Enzo og bling bling á ekki að vera saman í setningu ![]() |
Author: | Chrome [ Mon 05. Apr 2004 16:59 ] |
Post subject: | |
bjahja wrote: Discovery er uppáhalds stöðin mín........það eru alveg geggjaðir þættir þarna.
En já Enzo og bling bling á ekki að vera saman í setningu ![]() Sammála þessu! ![]() |
Author: | Benzer [ Mon 05. Apr 2004 18:09 ] |
Post subject: | |
Felgurnar sem settar voru undir Enzoinn voru ljótar fannst mér...pössuðu allavega ekki neitt við bílinn hefði haft hann frekar á orginal felgunum... Síðan var líka tekið fram að það kostaði 700 dollara að láta smyrja hann.. |
Author: | hlynurst [ Mon 05. Apr 2004 18:10 ] |
Post subject: | |
Þessar felgur voru ekki að gera það fyrir mig... orginal-inn var miklu flottari. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |