bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Bebecar?!?!?!
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=5157
Page 1 of 12

Author:  Djofullinn [ Wed 24. Mar 2004 22:22 ]
Post subject:  Bebecar?!?!?!

Ertu kominn á Porsche?????????????
Carrera replicuna eða??

Author:  gunnar [ Wed 24. Mar 2004 22:32 ]
Post subject: 

NAUHHHHHHHHHHH? ?!?!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! TELL US ! :twisted: :twisted: :twisted: :twisted: :twisted: :twisted: :twisted:

Author:  Benzari [ Wed 24. Mar 2004 23:07 ]
Post subject: 

Á meðan Bebecar skrifar tilkynninguna þá leyfi ég mér að giska á þennan

Image

Author:  bebecar [ Wed 24. Mar 2004 23:13 ]
Post subject: 

Ég beið eftir að einhver kommentaði :lol:

Nei, því miður er þetta ekki Carrera Replican... þetta er þessi svarti sem var síðar í þræðinum.

Ég stóðst ekki mátið, bíllinn reyndist vera miklu betri en ég átti von á. Hann er ekki gallalaus (of hár, of breiður, með ljóta sílsa og á of breiðum dekkjum og felgum).

Hann er hinsvegar með NÝ upptekna vél, nýyfirfarin gírkassa (ekkert gert, bara skoðaður og yfirfarinn), nýja kúplingu, nýtt á sætum og lofti, nýtt stýri og ný frambretti og bita að framan (ný innri bretti líka). Hann er ekki skráður tjónabíll en hefur lent á gangstéttarkanti allavega tvisvar - þessvegna var skipt um framendann á honum.

Hann er alveg beinn, keyrir þráðbeint og vélin er stórkostleg.

Hann er ekki sérlega vel sprautaður, en ekkert rosalega ílla heldur. Hann er verstu að aftan ein smá ryðskemmd en ég kem til með að taka afturbrettin af vonandi í vetur, setja á hann venjuleg turbolook bretti og aðrar og mjórri felgur, líklega 16" eða 17".

Var ég búin að segja að hann væri ryðlaus? Botninn er bara stráheill, enda er þetta heilgalvaniserað.

Svo er eitt atriði sem er stór galli þannig séð en hægt að leysa á góðan máta. Það vantar stykkið í miðstöðina, en ég vil setja bensínmiðstöð í hann í staðinn Guðbergi fannst það mjög góð hugmynd.

Ég held samt að það fari í forgang að skipta um bretti og felgur, ég get alveg klætt af mér kuldann en ég þoli ekki þessi bretti og sílsana!

Allavega, bíllin var alltof góður til að sleppa frá mér og á viðráðanlegu verði.

Planið er svo að hanga á þessum þangað til ég get bætt við mig og keypt 1984-1989 módel.

Mynd.

Image

Hann á svo að verða NÁKVÆMLEGA svona næsta sumar.

Image

Til að gera hann svona þarf ég bara að kaupa ný afturbretti í hefðbundnu turbolook og aðrar felgur, svo er vinna við að setja þetta á auðvitað og sprauta.

Já, vélin er 2.7 lítra með cam chain tensioner upgrade úr yngstu bílunum. Hún á að skila 165 eða 175 hestöflum en hann er skráður 220 hestöfl. Hann virkar allavega eins og þetta sé nokkuð öflugt.

Hann er að öðru leiti berstrípaður og ég held ég haldi honum þannig.

Hann er núna alltof hár, en það er víst hægt að lækka hann án mikillar fyrirhafnar á einni kvöldstund, ég bara kann það ekki - ennþá :wink:

Author:  bjahja [ Wed 24. Mar 2004 23:17 ]
Post subject: 

TIL HAMINGJU!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Maður fær kanski að sníkja rúnt einhverntímann :wink:

Author:  Kull [ Wed 24. Mar 2004 23:17 ]
Post subject: 

Til lukku félagi. Ég verð að fá að sitja í hjá þér við tækifæri.

Author:  bebecar [ Wed 24. Mar 2004 23:18 ]
Post subject: 

Ég verð hálft árið að rúnta með alla sem vilja koma hring (ekki fer ég að troða þremur í bílinn :lol: ).

Það verður bara að hafa það, maður vonar að einhverjir smitist líka.... :wink:

Tvær myndir í viðbót.
Image
Image

Author:  bebecar [ Wed 24. Mar 2004 23:24 ]
Post subject: 

Fyndið, það er sami akstur á mælinum á þessum og á mínum - nema hjá mér er það í mílum :lol: semsagt sinnum 1.6!
Image

Author:  bjahja [ Wed 24. Mar 2004 23:25 ]
Post subject: 

Það er gott að þú ert kominn með þennan bíl..........bjargar honum alveg, hann er nálægt því að vera hrísaður :lol:
Líst vel á þig, hann á eftir að vera GEGGJAÐUR

Author:  Benzari [ Wed 24. Mar 2004 23:26 ]
Post subject: 

Þetta er bara hin mesta snilld og gaman þegar að virkilega spes bílar finna góða temjara :D

TIL HAMINGJU aftur.

Author:  bebecar [ Wed 24. Mar 2004 23:28 ]
Post subject: 

Takk takk félagar....

Þetta er einkennilega grípandi tæki \:D/

Author:  Haffi [ Wed 24. Mar 2004 23:30 ]
Post subject: 

OUUUUUUUUUUUUUCH TIL HAMINGJU :* :* :* :* :*

BTW hann er gjöðveikur :D
en það er bara ég 8)

Author:  Aron [ Wed 24. Mar 2004 23:31 ]
Post subject: 

aahhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhh Guð!

má ég snerta þig? þú ert besta fyrirmynd í heimi, bíla listinn þinn er eins og best væri á kosið. M5, E21 323, og þessi.

Author:  iar [ Wed 24. Mar 2004 23:33 ]
Post subject: 

Til hamingju með þennan stórglæsilega bíl bebecar. :-)

Áhugavert að lesa 911E 1970 þráðinn hér undir Off-Topic eftir þessi kaup þín. ;-)

Author:  Heizzi [ Wed 24. Mar 2004 23:33 ]
Post subject: 

Alltaf gaman þegar menn láta draumana rætast, til hamingju með þetta :D

Page 1 of 12 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/