bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Ódýr bílaleiga í þýskalandi með ótakmarkaðann akstur? https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=51501 |
Page 1 of 1 |
Author: | Svessi [ Tue 07. Jun 2011 22:29 ] |
Post subject: | Ódýr bílaleiga í þýskalandi með ótakmarkaðann akstur? |
Ég er að fara til Þýskalands og vantar að geta leigt mér mjög ódýrann, sparsamann bíl sem ég má keyra bara endalaust. Ég reikna með að ég þyrfti hann í svona viku tíma og reikna með að ég geti mjög auðveldlega farið með 2500 km + Ég væri bara mjög sáttur við Polo diesel eða álíka. Ég hef yfirleitt leigt bíla hjá Sixt þegar ég hef farið til Þýslands, en þeir eru komnir með 300 km hámark á dag eða 2100 km fyrir vikuna. Og ég þarf að meiga keyra hann til Bretlands. Er einhver síða eða leiga sem þið getið bent mér á? Ég hef líka verið að spá í hvort það borgi sig nokkuð að kaupa bara einhverja ódýra druslu og tryggja, þá gæti maður auðvitað ekið eins og maður vildi. Hefur einhver reynslu af því í Þýslandi? |
Author: | gardara [ Wed 08. Jun 2011 12:54 ] |
Post subject: | Re: Ódýr bílaleiga í þýskalandi með ótakmarkaðann akstur? |
Eru Dollar Thrifty ekki með ótakmarkaðan km fjölda? http://www.thrifty.com/locations.aspx |
Author: | Kristjan [ Wed 08. Jun 2011 13:38 ] |
Post subject: | Re: Ódýr bílaleiga í þýskalandi með ótakmarkaðann akstur? |
Þarf maður ekki að eiga heima í þessum löndum til að geta skráð bíl á sig þar? |
Author: | Svessi [ Wed 08. Jun 2011 22:27 ] |
Post subject: | Re: Ódýr bílaleiga í þýskalandi með ótakmarkaðann akstur? |
Kristjan wrote: Þarf maður ekki að eiga heima í þessum löndum til að geta skráð bíl á sig þar? Það er voðalega misjafnt. Svo er líka roslalega misjafnt hvernig tryggingarnar eru, bæði verð og hvort þú þurfir að borga fyrir heilt ár eða getir samið um nokkra mánuði. Ég veit að í sumum löndum er þetta ekkert mál, öðrum alls ekki hægt og svo geggjað vesen í enn öðrum (skylst t.d. í Canada). Ég gerði þetta einu sinni með Pabba í USA. Þá reyndar keyptum við bílinn til að flytja út, en við máttum keyra hann í USA í 3 vikur. Þannig getur verið að við höfum verið á einhverju takmörkuðu leyfi. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |