bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Bíladagar Borgó 2011 18-19 maí NÝJU DAGSETNINGARNAR !! Skrán https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=51060 |
Page 1 of 1 |
Author: | tinni77 [ Wed 11. May 2011 21:38 ] |
Post subject: | Bíladagar Borgó 2011 18-19 maí NÝJU DAGSETNINGARNAR !! Skrán |
Vegna tafa á framkvæmdum við Kvartmílubrautina verður ekki keyrt á Kvartmílunni í Bíladögum Borgó þetta árið en Bíladagar Borgó verða haldnir dagana 18-19 maí, s.s. 2 dagar. Á Bíladögum í ár verður keppt í Tímatöku og Drifti á Rallycrossbraut(Akstursbraut), og svo verður Bílasýning á bílaplani Borgó. Rallycrossbraut 18 maí kl 18:00 Bílasýning kl 18:00 Miðv 18 maí: Tímataka á Rallycrossbraut, felst í að ná sem bestum tíma á malbikaða kaflanum á RC-brautinni í HFJ. Engir flokkar verða í ár, þannig að sá sem er bara með besta tímann í heildina, vinnur.. Einnig verður keppt í drifti, dómarar verða og dæmt verður hver er besti driftarinn. Fimmt. 19 maí: Bílasýning, græjukeppni og verðlaunaafhending: Bílasýning verður svo haldin á bílaplani Borgó og eru allir hvattir, bæði nemendur og ekki nemendur, til að mæta með flottan bíl á hana, sama hvort þeir eigi hann eða ekki, en einnig verður verðlaunaafhending fyrir hinar keppnirnar. Valinn verður flottasti bíllinn, flottasti breytti vélarsalurinn og flottustu felgurnar á sýningunni og eru vinningar þar einnig í boði. Einnig verður græjukeppni þar sem mæld verða desíbel, og sá sem býr til flest desíbel vinnur. Skráning fer fram hjá mér á mailið: biladagar2011@hotmail.com. Það sem þarf að koma fram í skráningu er: Nafn Kennitala Heimilisfang Bíltegund Bílnúmer Símanúmer Keppendur þurfa að hafa fullskoðaðan bíl, ef um endurskoðun er að ræða þá sýna skoðunarvottorð. Tryggingarviðauki er á ábyrgð keppenda (athuga hjá sínu tryggingarfélagi) Sýna gilt ökuskírteini Löglegan hjálm! Ekki hika við að skrá ykkur, þetta verður ÓKEYPIS að þessu sinni, s.s. engin þátttökugjöld, þetta er tækifærið til að skemmta sér á bílnum sínum ! Fullt af flottum vinningum verða í boði og mun ég koma með update á þennan þráð á næstunni. Kv Tinni |
Author: | Jón Ragnar [ Wed 11. May 2011 21:48 ] |
Post subject: | Re: Bíladagar Borgó 2011 18-19 maí NÝJU DAGSETNINGARNAR !! S |
Tinni, mundi nú bóka brautina áður en svona er auglýst ![]() |
Author: | Mazi! [ Wed 11. May 2011 22:00 ] |
Post subject: | Re: Bíladagar Borgó 2011 18-19 maí NÝJU DAGSETNINGARNAR !! S |
John Rogers wrote: Tinni, mundi nú bóka brautina áður en svona er auglýst ![]() ![]() ![]() |
Author: | gardara [ Wed 11. May 2011 22:17 ] |
Post subject: | Re: Bíladagar Borgó 2011 18-19 maí NÝJU DAGSETNINGARNAR !! S |
Á þetta ekki heima undir "mótorsport" ? ![]() |
Author: | BMW_Owner [ Sat 14. May 2011 22:32 ] |
Post subject: | Re: Bíladagar Borgó 2011 18-19 maí NÝJU DAGSETNINGARNAR !! S |
á ég ekki að skella mér á þetta og vinna þetta flottasti breytti vélasalurinn.... ![]() eða má ég ekkert taka þátt? |
Author: | rockstone [ Sat 14. May 2011 22:54 ] |
Post subject: | Re: Bíladagar Borgó 2011 18-19 maí NÝJU DAGSETNINGARNAR !! S |
mátt taka þátt í sýningunni held ég en ekki uppá aksturbraut ![]() |
Author: | Árni S. [ Sun 15. May 2011 06:36 ] |
Post subject: | Re: Bíladagar Borgó 2011 18-19 maí NÝJU DAGSETNINGARNAR !! S |
rockstone wrote: mátt taka þátt í sýningunni held ég en ekki uppá aksturbraut ![]() bílar frá fólki sem er ekki í borgó mega koma á sýninguna en þeir eru ekki gildir keppendur í hluti eins og flottasta bílinn eða slíkt ... það er einungis fyrir bíla sem nemendur eiga. |
Author: | dofri1 [ Mon 16. May 2011 02:12 ] |
Post subject: | Re: Bíladagar Borgó 2011 18-19 maí NÝJU DAGSETNINGARNAR !! S |
fer kvartmílubrautin ekkert að komast í gagnið? |
Author: | gardara [ Mon 16. May 2011 02:19 ] |
Post subject: | Re: Bíladagar Borgó 2011 18-19 maí NÝJU DAGSETNINGARNAR !! S |
Er ekki verið að bíða eftir því að Reykjafoss komi til landsins? |
Author: | tinni77 [ Mon 16. May 2011 02:23 ] |
Post subject: | Re: Bíladagar Borgó 2011 18-19 maí NÝJU DAGSETNINGARNAR !! S |
gardara wrote: Er ekki verið að bíða eftir því að Reykjafoss komi til landsins? jöbbs |
Author: | HAMAR [ Mon 16. May 2011 03:50 ] |
Post subject: | Re: Bíladagar Borgó 2011 18-19 maí NÝJU DAGSETNINGARNAR !! S |
Reykjafoss ''strandaði'' í Argentía, http://eimskip.is/IS/Reykjafoss.html |
Author: | gardara [ Wed 18. May 2011 17:19 ] |
Post subject: | Re: Bíladagar Borgó 2011 18-19 maí NÝJU DAGSETNINGARNAR !! S |
Kostar eitthvað að koma og horfa á? |
Author: | Árni S. [ Wed 18. May 2011 17:24 ] |
Post subject: | Re: Bíladagar Borgó 2011 18-19 maí NÝJU DAGSETNINGARNAR !! S |
neibb kostar ekki ... öllum velkomið að koma að horfa á . ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |