bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Er eitthvað sem heitir ódýr suðuvél?
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=50712
Page 1 of 1

Author:  JOGA [ Sat 23. Apr 2011 22:35 ]
Post subject:  Er eitthvað sem heitir ódýr suðuvél?

Heil og sæl,

Ég er eitthvað að gæla við það að reyna við ryðviðgerðir sjálfur á 325i.
Skilst að MIG sé einfaldara fyrir byrjendur. Þurfa ekki að vera súper sætar suður. Bara snyrtilegar og góðar.

Er hægt að kaupa ódýrar suðuvélar sem skila góðum suðum?
Ég tími ekki að eyða miklu, myndi ekki nota þetta mikið.

Hvað segið þið um þetta?

Author:  auðun [ Sat 23. Apr 2011 22:48 ]
Post subject:  Re: Er eitthvað sem heitir ódýr suðuvél?

ég náði mér í ágætis Mig eða mag reyndar a 35 kall. var algjör kettlingur en mjög hentugur í ryðdjobbið. það dýrasta við þetta er allur aukapakkinn. mig vantaði mæli. 15 kall, gas það er ekki ódýrt ef þú færð þér blandgas. kolsýran er ódýrari en ekki eins fallegar suður.

Author:  JOGA [ Sun 24. Apr 2011 13:12 ]
Post subject:  Re: Er eitthvað sem heitir ódýr suðuvél?

Er leigumarkaðurinn hjá Byko enn starfræktur?
Sé að þeir eru með einhverja ágætis suðuvél á leigu.

Author:  300+ [ Sun 24. Apr 2011 13:40 ]
Post subject:  Re: Er eitthvað sem heitir ódýr suðuvél?

Þetta er pinnavél, en þú sýður lítið með pinna í blikk, hinsvegar er á myndinni TIG-kló og ef þú færð hana með og vélin býður uppá DC-tig þá vantar þig bara skaut og íblöndunarvír og þá ættirðu að geta notast við þessa vél. Myndi mæla með 1,6mm bláu skauti.

Author:  JOGA [ Sun 24. Apr 2011 13:47 ]
Post subject:  Re: Er eitthvað sem heitir ódýr suðuvél?

300+ wrote:
Þetta er pinnavél, en þú sýður lítið með pinna í blikk, hinsvegar er á myndinni TIG-kló og ef þú færð hana með og vélin býður uppá DC-tig þá vantar þig bara skaut og íblöndunarvír og þá ættirðu að geta notast við þessa vél. Myndi mæla með 1,6mm bláu skauti.

Er þetta pinnavél á bls 68?
http://ecbooks.ecweb.is/expo/byko/lm_byko_2009-2010/

Author:  JonHrafn [ Sun 24. Apr 2011 14:00 ]
Post subject:  Re: Er eitthvað sem heitir ódýr suðuvél?

JOGA wrote:
300+ wrote:
Þetta er pinnavél, en þú sýður lítið með pinna í blikk, hinsvegar er á myndinni TIG-kló og ef þú færð hana með og vélin býður uppá DC-tig þá vantar þig bara skaut og íblöndunarvír og þá ættirðu að geta notast við þessa vél. Myndi mæla með 1,6mm bláu skauti.

Er þetta pinnavél á bls 68?
http://ecbooks.ecweb.is/expo/byko/lm_byko_2009-2010/

Author:  SiggiGS [ Sun 24. Apr 2011 14:38 ]
Post subject:  Re: Er eitthvað sem heitir ódýr suðuvél?

Hvað kostar alvöru suðuvél annars?

Author:  300+ [ Sun 24. Apr 2011 15:02 ]
Post subject:  Re: Er eitthvað sem heitir ódýr suðuvél?

SiggiGS wrote:
Hvað kostar alvöru suðuvél annars?

Fyrir skúra-brasarann þá held ég að Mig-vélar verði ekki ódýrari en þessi efsta í þessum link
http://www.holt1.is/suduvelar.html

Svo þurfa menn ekki endilega að fara í gasið þó það sé mun betra, það er hægt að fara í
flux-fylltan vír sem er reyndar helmingi dýrari og sleppa gasinu en suðuvélin verður mun meðfærilegri fyrir vikið.

Author:  SiggiGS [ Sun 24. Apr 2011 15:27 ]

Og fyrir forvitnissakir hversu mikið dýrari eru gasvélar?

Author:  Alpina [ Sun 24. Apr 2011 15:36 ]
Post subject:  Re: Er eitthvað sem heitir ódýr suðuvél?

Image

Image

Garðar Jón hann vildi gera
gæla við að rafsjóða
batterý þá inn skal bera
bara tengja og saman lóða

Author:  JonHrafn [ Sun 24. Apr 2011 16:01 ]
Post subject:  Re: Er eitthvað sem heitir ódýr suðuvél?

Frúin er nú ágætis suðvél en hún myndi nú kosta eitthvað meira en þessar á vegamótum.

En maður hefur séð mig-mag vélar með kút og öllu fara niður í 100kall notaðar.

Author:  JonHrafn [ Sun 24. Apr 2011 16:04 ]
Post subject:  Re: Er eitthvað sem heitir ódýr suðuvél?

SiggiGS wrote:
300+ wrote:
SiggiGS wrote:
Hvað kostar alvöru suðuvél annars?

Fyrir skúra-brasarann þá held ég að Mig-vélar verði ekki ódýrari en þessi efsta í þessum link
http://www.holt1.is/suduvelar.html

Svo þurfa menn ekki endilega að fara í gasið þó það sé mun betra, það er hægt að fara í
flux-fylltan vír sem er reyndar helmingi dýrari og sleppa gasinu en suðuvélin verður mun meðfærilegri fyrir vikið.

Og fyrir forvitnissakir hversu mikið dýrari eru gasvélar?

Venjuleg rúlla kostar hvað 8þús ,, þannig að gaslaus vírrúlla er 12-16þús?

Ódýrara tæki, mun fyrirferðaminna, það má nú borga aðeins meira fyrir vír rúlluna og losna við að hafa vagn í rassgatinu. Eru alveg sambærilegar suður úr gaslausu?

Author:  Tasken [ Mon 25. Apr 2011 16:05 ]
Post subject:  Re: Er eitthvað sem heitir ódýr suðuvél?

Ég á til svona gaslausa mig vél eins og þeir eru að tala um
væri alveg skoðandi að þú gætir fengið hana tími samt varla að selja hana

gæti líka kennt þér svona grunnin í þessu ef þú kannt ekkert á þetta

Author:  Tasken [ Mon 25. Apr 2011 16:05 ]
Post subject:  Re: Er eitthvað sem heitir ódýr suðuvél?

Kom óvart tvisvar

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/